Þankar um skjaldarmerkið

Fyrir jól urðu nokkur skrif um meint tengsl landvættanna og guðspjallamannanna. Þar áttu Óli Gneisti og Þórhallur Heimisson í nokkrum skoðanaskiptum um lítt rökstudda en skemmtilega hugmynd Þórhalls um uppruna landvættanna og tengsl við Biblíusögur.

Óli benti réttilega á að fremur langsótt væri að segja ljón vera dreka og mannsmynd vera tröll, og það má vissulega taka undir þá gagnrýni á hugmyndir Þórhalls þó skemmtilegar séu. Hins vegar er gaman að segja frá því að nýlega rakst ég á írskt rit frá 8. öld (Book of Kells) þar sem guðspjallamennirnir eru málaðir sem “risi”, naut, dreki og fugl.

Það sem meira er, uppruni bókarinnar er tengdur komu skríns Columba til Kells, sem Víkingar reyndu síðan að taka yfir á 9. öld. Því er e.t.v. ekki algjörlega fráleitt að þessar ímyndir komi þaðan inn í norræna söguhefð. Þannig sé frásögn Heimskringlu um tilvonandi innrás Dana, og tilfærslan úr ljóni í dreka, ekki frá Snorra kominn heldur eldri og eigi rætur að rekja til Írlands, hugsanlega til innrásar Víkinga á Kells. Fyrir þessu hefi ég engar heimildir aðrar en myndir af guðspjallamönnunum úr Book of Kells og þá staðreynd að heimildir um innrásir á Ísland af hendi Víkinga höfum við fáar, en þeim mun fleiri tengdar Írum. 

Þannig sé saga Snorra um íslensku landvættirnar hugsanlega afbökuð írskt mýta um vernd guðspjallanna, sprottin úr samfélaginu í Kells.

Vissulega væri gaman að gera á þessu fræðilega rannsókn, leita uppi slíkar frásögur og e.t.v. lesa sér til um írska sögu, en þar sem ég les ekki keltísk mál, er upptekin við önnur fræði og hef enga sérstaka þörf að gefa Írum landvætti Íslands, þá læt ég staðar numið í bili.

3 thoughts on “Þankar um skjaldarmerkið”

  1. Ég kannast við myndirnar sem þú vísar í, enda áhugamaður um Írland. Ef þú lest klausuna hjá Ólafi Briem í fyrri útgáfu bókarinnar sem kom við sögu í ritdeilu okkar Þórhalls þá minnir mig að þar sé talað um möguleikann á því að táknin hafi ekki borist í texta eða söguformi heldur í myndaformi. Mér þykir sú kenning að miklu sennilegri en hin að um bein textatengsl hafi verið um að ræða. Þetta minnir að einhverju leyti á kenningar Péturs Péturssonar um Völuspá sem ljóðræna framsetningu á myndum sem einhverjir kristniboðar kynnu að hafa með sér. En mér finnst kenning Bo Almquist um verndarana (sem eru, ef við erum nákvæmir, væntanlega ekki landvættir heldur eru það landvættir sem fylgja þeim) sem táknmyndir fyrir héraðshöfðingjana sennilegri (og hann kannast án efa við myndirnar sem þú vísar í enda kenndi hann þjóðfræði í University College Dublin um árabil og býr enn á Írlandi).

    Ég á reyndar örugglega eftir að skrifa meira um þetta við tækifæri en setja það í fræðilegri búning.

  2. Það er eins og mig minnir að kenningin um tengingu skjaldamerkisins og guðspjallanna sé ekki Þórhalls (þótt hann hafi unnið hana áfram) heldur Einars Sigurbjörnssonar. Hann nefndi þetta í tímum í trúfræði fyrir mörgum áratugum en vann ekki meir með hana.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.