Einfaldur

Eitt af því sem er hvað erfiðast við að stíga út fyrir mörk öryggisins, er að horfast í augu við eigin barnaskap og einfaldleika. Í janúar dvaldi ég í Detroit og var neyddur til að horfast í augu við forréttindi mín og rasisma á algjörlega nýjan hátt. Ég gæti skrifað lærða kafla um ungbarnadauða í fátækrahverfum í BNA, misbeytingu valds af hendi lögreglunnar, spillta stjórnmálamenn, kynþáttamisrétti, sálarmorð á samkynhneigðum og margt fleira sem ég sá með eigin augum þar sem ég heimsótti heilsugæslu, barnaspítala, geðdeildir, skrifstofu borgarstjóra og tók í hendina á einhverjum spilltasta stjórnmálamanni BNA, heimsótti félagsmálaþjónustu, gistiheimili fyrir heimilislausa og ræddi við kirkjugesti og presta í jafnt svörtum og hvítum kirkjum í þessu ríkasta landi heims. Ég var enda reiður fyrstu fjóra dagana, ég kallaði samnemendur mína fífl, fyrir að taka þátt í svona samfélagi og bregðast ekki við. Ég benti þeim á að ungbarnadauði í Detroit væri sjö sinnum meiri en í mínu heimalandi, ég hneykslaðist á misskiptingunni í skólakerfinu sem við heyrðum um frá skólastjórum almenningsskóla í borginni og svo mætti lengi telja.

Það var ekki fyrr en á fjórða degi að ég þorði að horfast í augu við sjálfan mig og mínar aðstæður í besta landi í heimi. Ég hugsaði til þess að auður sumra Íslendinga er byggður á atvinnulausum símamönnum í Austur-Evrópu, mér varð hugsað til þess hvernig stjórnmálamenn á Íslandi eins og Gunnlaugur M. Sigmundsson hafa selt sjálfum sér ríkiseignir. Mér varð hugsað til þess hvernig stjórnmálamenn á Íslandi sem aðhyllast jöfnuð hafa uppi stórar hugmyndir um að innleysa milljarðahagnað í orkuveitum í fátækustu löndum heims. Vissulega er Detroit Íslendinga ekki staðsett í Norður-Atlantshafi, okkar Detroit er í Búlgaríu.

En hugsaði ég, við vorum alla vega ekki þrælahaldarar, við fluttum ekki milljónir manna frá heimkynnum sínum. Sú hugsun varði ekki lengi, á African-American safninu í Detroit eru flögg nokkurra stórtækra Evrópuþjóða í þessum ómanneskjulegustu þjóðflutningum sögunnar, þar mátti sjá bæði danska og sænska fánann. Ég hef lesið mér til síðan þá, bæði sænska og danska krúnan byggðu fjármálaveldi sitt á þrælaflutningum yfir Atlantshafið. Skyndilega fékk frásagan um endurheimt Guðríðar Símonardóttur úr ánauðinni í Alsír nýja vídd. Auðvitað var danski konungurinn með þrælakaupmenn á sínum snærum.

Ég vil því með þessari færslu biðja fermingarbörn síðustu ára í Vatnaskógi afsökunar. Ef fræðarinn ykkar sagði ykkur sögu Guðríðar þá var það hugsanlega ekki sagan öll. Við vorum ekki saklaus fórnarlömb þrælahaldara, heldur hluti konungsveldis sem var í bransanum.

One thought on “Einfaldur”

  1. Þetta er þung færsla. Ég sé að nám þitt gengur nærri kvikunni. Próf. Þórir Kr. benti okkur, nemendum hans á það fyrir tæpri kynslóð síðan, að ef við leituðum réttlætis í mannlegu samfélagi, ef við leituðum réttláts fengins fjár eða valds, þá þyrftum við að leita lengi. Færsla þín gerir orð hans greinilegri og setur kjöt á beinin.

    Stór spurning varðandi þrælahaldið er nú sú, hvort tengsl okkar vestur, í NATO baki okkur ekki sekt í suðaustri. Ég fyrir mitt leiti held að svo sé. Öryggi og viðskiptatækifæri fengin á kostnað mannslífa allt frá því að verslunarbann var sett á Írak.

Comments are closed.