Ég ákvað að skrá hér hjá mér skuldir ríkisins í íslenskum krónum skv. frétt mbl.is frá 15. janúar (evran var rétt um 170 krónur). Ég set upphæð erlendra lána í evrum innan sviga til að auðvelda mér að fylgjast með tölunum í framtíðinni.
Innlendar skuldir – 336 milljarðar
Endurfjárm. bankanna – 385 milljarðar
Tap v. skortsölu – 35 milljarðar
Fjárlagahalli 2009 – 154 milljarðar
Alls skortir því 910 milljarða íslenskra króna.
Erl. langtímaskuldir – 318 milljarðar (1,9 milljarðar evra)
Icesave skuldirnar – 695 milljarðar (4,1 milljarðar evra)
Veðlánatöp – 270 milljarðar (1,3 milljarðar evra)
FIH bankinn – 84 milljarðar (0,5 milljarðar evra)
Alls skortir því 1.367 milljarða (7,8 milljarða evra)
Hvaðan koma peningarnir?
Til að mæta þessu er lánið frá IMF og vinum okkar út í heimi upp á 644 milljarða króna (3,8 milljarða evra).
Eins kemur lán frá ICESAVE og Edge löndum upp á 695 milljarða (4,1 milljarð evra).
Fyrirvarar
- Kostnaður vegna endurfjármögnunar bankanna gæti orðið mun hærri en 345 milljarðar króna.
- Yfirvöld láta sig dreyma um að sala á ICESAVE eignum skili 445 milljörðum (2,6 milljörðum evra), sem gengur upp í lánið frá ICESAVE og Edge löndum.
- Hugsanlega fást allt að 60 milljarðar (0,35 milljarðar evra) fyrir FIH bankann í Danmörku. Það verður að teljast fremur ósennilegt.