Mér duttu í hug rannsóknartilgátur sem eru verðar rannsóknar fyrir hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarfræðinema. Ef einhver slíkur rekst inn á annála þá er tilgátan tvíþætt.
- Börn sem nota ekki snuð fyrstu tvö ár ævi sinnar eru þyngri en jafnaldrar þeirra sem nota snuð.
- Eftir tveggja ára aldur dregur saman með þyngd snuddubarna og þeirra sem ekki notast við friðþægingartækið.
Ef einhver hjúkrunarfræðinemi í lokaverkefnisleit hefur áhuga á að rannsaka ofangreindar tilgátur, þá þarf ekki að geta mín í þakkarlistanum fyrir að hafa komið fram með hugmyndina.
En er svarið ekki nokkuð augljóst? Þau sem ekki eru með snuð fá frekar brjóst/pela. Erlendis (t.d. á Spáni) hef ég séð allt að fimm sex ára börn með snuð. Spurning hvort slík snuddubörn séu líka léttari. En þar væri líklega rannsóknarverkefni að athuga foreldra þeirra.
Ég hef það á tilfinningunni að svarið sé augljóst, en finnst það samt vert skoðunar, því stundum er ekki allt sem sýnist.