Vinnufyrirkomulag í kirkjustarfi

Fyrir um 20 árum tók ég þátt í oft flóknum, tilfinningaríkum og erfiðum umræðum um vinnufyrirkomulag í kirkjunni og sér í lagi í barna- og unglingastarfi sem oft fór fram á kvöldin og um helgar.

Fyrir tiltölulega nýja fagstétt þá var stærsta vandamálið ekki að finna út hvað væru eðlileg laun fyrir fullt starf, heldur miklu mun frekar, hvað fólst í fullu starfi. Þannig voru hugmyndir um að 2 tímar eftir kl. 18 ættu að teljast sem 2,6 tímar og ef unnið væri um helgar eða eftir 22, yrðu 2 tímar 3 tímar. Í viðbót við þetta voru vangaveltur um hversu langan tíma ætti að skrá á æskulýðsfundi og svo framvegis. Auðvitað var síðan mótahald og ferðalög tilefni til endalausra vangaveltna og vandræða.

Þessi óvissa um hvað væri fullt starf og hvernig ætti að reikna kvöld- og helgarvinnu, nú eða meta æskulýðsstarf varð oft til að valda spennu í söfnuðum milli æskulýðsfulltrúa, sóknarnefnda og jafnvel presta.

Nú í vikunni rakst ég á áhugavert módel fyrir starfsfyrirkomulag í kirkjum sem felst í “blokkum”. Hverjum degi vikunnar er skipt í þrjár blokkir, t.d. 9-14, 14-19 og 19-24. Fullt starf telst vera 10-12 blokkir í BNA. Á íslandi værum við líklega að tala um 9 blokkir. Síðan er samið um hvernig blokkunum er skipt upp.

Hér í BNA virðist algengt módel vera að leggja upp með 2 blokkir á kvöldin, 2-3 blokkir um helgar og aðrar blokkir á hefðbundnum vinnutíma. Einn fastur frídagur í viku á virkum degi. Með þessu móti eru ekki taldar klst heldur blokkir.

Ef við erum t.d. með prest í 25% starfi, þá má gera ráð fyrir að hann starfi að jafnaði 1 blokk á sunnudagsmorgnum, eina kvöldblokk í viku og 0-1 blokk á öðrum tímum (sem færi væntanlega öll í skrifa prédikun og undirbúa helgihald).

Ég veit ekki hversu raunhæft svona kerfi er og hvort það virki í raun, en mér fannst rétt að halda því til haga hér.

Dæmi um vinnufyrirkomulag í fullu starfi í svona blokkakerfi.

MánÞriMiðFimFösLauSun
09-14FríVinnaVinnaVinnaVinna
14-19FríVinnaVinnaVinna(Vinna)
19-24FríVinnaVinna(Vinna)
Hér er gert ráð fyrir 10 blokkum í fullu starfi. Einungis væri unnið í annarri af tveimur blokkum í sviga í hverri viku. Þá er mikilvægt að ekki er alltaf nauðsynlegt að vinna alla fimm klst í stakri blokk, heldur eingöngu sinna þeim verkefnum sem kallað er eftir. Þetta á sérstaklega við um kvöld og helgarblokkir.

Dæmi um vinnufyrirkomulag í 1/2 starfi í svona blokkakerfi.

MánÞriMiðFimFösLauSun
09-14FríVinnaVinna
14-19Frí(Vinna)(Vinna)
19-24FríVinnaVinna
Hér er gert ráð fyrir 5 blokkum í hálfu starfi. Einungis væri unnið í annarri af tveimur blokkum í sviga í hverri viku. Það er mikilvægt að ekki er alltaf nauðsynlegt að vinna alla fimm klst í stakri blokk, heldur eingöngu sinna þeim verkefnum sem kallað er eftir. Þetta á sérstaklega við um kvöld og helgarblokkir.

Skv. þessu væri helgarferðir ýmist 5 eða 6 blokkir, ein á föstudegi, þrjár á laugardegi og ein til tvær á sunnudegi.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.