Landvistarleyfið og vangaveltur.net

Þegar þetta er skrifað er ég kominn aftur til BNA eftir rúmlega tveggja vikna dvöl á Íslandi, þar sem ég hitti fjölmargt skemmtilegt fólk og það sem ekki er síður um vert, fékk F2 vegabréfsáritun hjá bandaríska sendiráðinu. Það hljómar reyndar næstum fáránlegt en viðtalið sem ég þurfti að fara í tók varla 2 mínútur, en starfsmaður sendiráðsins spurði hvernig konunni miðaði í náminu, og hvort ég hefði ekki verið í námi í BNA sjálfur. Ég svaraði báðum spurningum fremur ítarlega og útskýrði að ég hefði ætlað mér að starfa á OPT eftir námið en ekki fundið vinnu, en ég hafði samt á tilfinningunni að starfsmanninum væri næstum sama um það, enda sagði konan eitthvað á þá leið að það væri nú þegar búið að samþykkja umsóknina.

Það var merkilegt að vera á Íslandi, það virðist sem afleiðingar hrunsins séu víða að koma fyrst fram núna, sér í lagi í kirkjunni. Mjög víða er búið að segja upp fólki með mikla reynslu og ráða ódýrari starfsmenn. Metnaðurinn víða felst í varnarbaráttu, tilraunum til að halda í horfinu án neinnar framtíðarsýnar. Það er um margt skiljanlegt enda erfitt í ári hjá kirkjunni á öllum sviðum, ekki bara hinu fjárhagslega.

Vegna upplifunar minnar af ástandinu hef ég ákveðið að hleypa af stað verkefni sem ég hef lengi gælt við, einhvers konar ráðgjafar-, samtals-, fræðslu- og rannsóknarvettvangi þar sem ég býð fram þjónustu mína til góðra verka í kirkjunni og á kristnum vettvangi á þeim sviðum sem ég hef sérþekkingu á. Ég kalla verkefnið að svo stöddu Vangaveltur um kirkju og kristni og hef fundið því stað á vefsvæðinu vangaveltur.net. Það er um að gera fyrir þau ykkar sem vilja veg kirkju og kristni sem mestan á Íslandi og eruð tilbúin til að takast á við spennandi hugsanir og glíma við framtíðina að hafa samband og athuga hvort ég geti orðið að liði.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.