Verkefnum lokið

Í dag sendi ég greinargerð um forstöðumennsku í Vatnaskógi og aðra um Global Mission Event á vegum ELCA til umsjónarkennarans míns. Þar með líkur sumarmisserinu í skólanum formlega hjá mér.

Þá hef ég lokið frágangi á gögnum vegna tveggja verkefna í tengslum við Biskupsstofu sem fara í hefðbundinn póst síðar í dag ásamt bréfi til skattayfirvalda hér í BNA, vegna skorts á kennitölu, sem ég reyndar fékk í pósti frá Social Services í dag.

Þar sem öllum verkefnum er lokið, og fátt bíður nema að taka það rólega með börnunum fram til 27. ágúst hyggst ég senda tölvuna mína í langþráð sumarfrí og setja hana upp á skáp fram að skólabyrjun. Við kveðjum því í bili.