Merkisdagur hjá Önnu Laufeyju

Anna Laufey er sex ára á sunnudaginn. Hún er búin að vera spennt útaf þessu afmæli síðasta mánuðinn 🙂

Anna Laufey fær súkkulaðiköku (leikskólinn vill sjálfur annast afmælisveitingar) og kórónu í leikskólanum á morgun – held hún njóti sín vel, verandi elst í leikskólanum. Afmælisveislan verður á sunnudaginn klukkan tvö. Vinkonur hennar af leikskólanum, Aþena, Karen Sif, Katrín Rut og Sigrún Ása mæta í afmælið.

Alltaf skemmtilegt að geta gert hermifærslu.

3 thoughts on “Merkisdagur hjá Önnu Laufeyju”

  1. Frænkan mætir líka hress og kát og á eflaust eftir að una sér vel í barnahópnum, meira að segja búin að kaupa gjöf, bleika peysu og háa hæla til að spóka sig í.

Comments are closed.