Skv. færslulistanum í WordPress þá er þessi færsla númer 1.000 á iSpeculate.net. Þessar færslur eiga ekki allar uppruna sinn hér, þannig ber elsta dagsetta færslan frá 19. maí 2004 heitið “Kominn á annál”, en lengst af var www.annall.is/elli og síðar elli.annall.is það vefsvæði sem ég skráði bloggið mitt á.
Um tíma skrifaði ég færslur á moggabloggið á halldorelias.blog.is og eins gerði ég tilraunir á hvergikirkja.org. Fyrstu bloggfærslurnar voru þó á vefsvæði konunnar minnar simnet.is/jennyb á árunum 2003-2004, en þar notaðist ég við mitt eigið færslukerfi sem ég skrifaði í php með aðstoð javascript og var það afleitt. Enn fyrr, 2000-2001, tók ég virkan þátt í spjallþráðakerfi strik.is, og má segja að sumar færslurnar þar hafi verið blogg-ígildi, og ekki voru umræðurnar þar minna krassandi en ummæli á bloggsíðum dagsins í dag.
Fyrir nokkru síðan tók ég mig til og sameinaði eldri skrif mín á vefnum undir heitinu ispeculate.net og ýmist hætti skrifum á eldri svæðum og/eða eyddi þeim. Í dag er ispeculate.net því helsti vettvangur minn fyrir bloggskrif ásamt fréttavef fjölskyldunnar og starfstengda ráðgjafavefnum mínum, vangaveltur.net. Á síðustu þremur árum hafa auk þess félagsvefir eins og Facebook og Twitter breytt vefnotkun minni, þannig að tíðni bloggfærslna er eitthvað lægri en áður.
Það er synd að það sé ekki til afrit af umræðunum á strikinu. Ég væri til í að renna yfir þær.
Ég afritaði eitthvað af skrifunum mínum (sem mér fannst þess verð að geyma) á Strikinu og hugsanlega eitthvað af ummælum frá þér og Birgi. Ég finn þetta ekki á tölvunni sem ég nota núna, en mig grunar að þetta sé meðal gagna sem fjölskyldan lætur geyma á öruggum stað.
Þetta eru samt sem áður einvörðungu afrit af skrifum sem láta mig líta vel út. 🙂
Eina tilvitnunin sem ég á í sjálfan mig af umræðunum á Strik.is endaði sundurklippt og án samhengis á glærum í guðfræði 🙂