7 thoughts on “Meira af gleðiefni”

  1. Kirkju sem vill vera kirkja, samfélag trúaðra sem lútir vilja Guðs, hlýtur að leitast við að vera óháð yfirvöldum á hverjum tíma. Sú Konstantínusarvilla að samspil kirkju og ríkisvalds sé æskileg kallar á doða og stöðnun í trúarlífi. Konstantínusarvillan undirbyggir sérfræðingavæðingu trúarlífs og deyðir almennan prestsdóm.

  2. Já, þetta eru gleðifréttir. Þetta er sá bikar sem nútímaleg kirkja lætur ekki framhjá sér fara. Hún þarf að drekka hann í botn.

  3. Það sem þarf að fylgja, er að biskup þarf að geta fært fólk til í starfi, milli sókna og til og frá stofnana kirkjunnar. Það er hinsvegar ekki svo, að þessi málaflokkur sé auðveldur viðfangs, auðvelt fyrir starfsmenn kirkna að upplifa það að þeir séu ekki verðmæti í augum þeirra sem vígja þá til starfa.

Comments are closed.