3 thoughts on “Um skilgreiningar á Guði”

  1. Ég vil minna á bók Ernst Boch (læriföður Moltmanns), Atheismus im Christentum í þessu sambandi. Þar bendir hann m.a. á að í eitthvert fyrsta skipti sem kristnir menn voru nefndir á nafn í fornum heimildum, voru þeir kallaðir guðleysingjar. Þeir trúðu á mann, sem þeir kölluðu Krist, ekki á Guð. Kannski er það hið eina lógíska, þ.e. að tala um raunkristna menn sem guðleysingja?

  2. Snerist þetta ekki líka um það að þeir neituðu að tigna keisarann sem Guð? Mér finnst að ég hafi einhvers staðar lesið það.

  3. Jú, einmitt. Hinir kristnu trúðu á mann en ekki guði samfélagsins eins og keisarann, sem var dýrkaður sem guð. Því þetta nafn: a-theistar eða ó-guðlegir, sem þýtt er á íslensku sem guðleysingjar.

Comments are closed.