5 aura brandarnir

Óli Jói hefur á tíðum sett inn á annálana sína brandara í ódýrari kantinum, sem geta lýst upp daginn. Torfi setti nokkra slíka inn á ummælin mín í dag.

Reyndar áttu brandararnir ekki heima þar, svo ég læt þá flakka hér fyrir Torfa.

Hafið þið heyrt nýjustu kjaftasögurnar um Davíð?

Hann ætlar að láta taka af sér tvo fingur!!!!
Baugfingurna!!!!

Svo er hann hættur að fara út á kvöldin…..
……af því hann er svo hræddur við Norðurljósin!!

Svo fer hann snemma að sofa til að fá ekki bauga undir augun.

[Breytt, sjá skýringar]

One thought on “5 aura brandarnir”

  1. Þakka þér fyrir þessa tilfærslu Elli minn. Aðvitað er þetta rétt hjá þér. Fimm aura brandarar eiga ekki heima í eins merkilegri umræðu eins og þeirri sem þú leiðir um fjölmiðlafrumvarpið. Einnig er gott hjá þér að flokka limruna sem fimm aura brandara, þó sumir hefðu nú kveðið sterkar að orði og kallað hana níð. Slíkt á þó aðeins við þegar talað er með lítilsvirðingu um forsætisráðherrann, en ekki þegar fjallað er um “íbúann í Bessastaðahreppi” eins og þú tíðum kallar forsetann, eða þegar vinur þinni hann Binni gefur honum eitt nafnið til: Reykhás. Já, það gleður mig að sjá að þið félagar, Elli og Binni, skuluð samkvæmt einhverri könnun tilheyra miðjumoðinu en ekki “frjálslyndum” hægri mönnum eins og maður hefði nú haldið. En hvort þeir sem hingað til hafa talið sig vera miðjumenn eru eins glaðir er ég ekki viss um.

Comments are closed.