Ég fór í dag á hið merka Sköpunarfræðisafn rétt utan við Cincinnati. Nákvæm færsla um ferðina býður betri tíma, en þó var merkilegt að sjá vitnað í James Ussher, sem sérstaklega virtan fræðimann á sviði Biblíuvísinda og ekki síður var það sérstakt fyrir mig persónulega að skilja loksins trúarlegt inntak stórmyndarinnar “Ekki á morgun heldur hinn” sem ég sagði ranglega í færslu fyrir þremur árum að hefði “engin hefðbundin trúarleg tákn”. Hamfarir þeirrar myndar kallast skemmtilega á við Nóaflóðið eins og það er sett fram á safninu. Reyndar minnist ég þess ekki að Veðurfræðingurinn (Nói) í kvikmyndinni hafi verið sérlega mikið fyrir sopann, en hins vegar er ljóst að það voru verulegir brestir í fjölskyldulífi hans. Reyndar kemur ekkert fram um þessa bresti Nóa á sýningu safnsins.
En ég hyggst fjalla nánar um safnið síðar, enda klukkan vel fram yfir miðnætti hér á vegamótelinu sem ég dvelst á í fjallabænum Bridgeport í norðvesturhluta Vestur-Virginíufylkis.
Keli tók viðtal við einn af handritshöfundum myndarinnar þegar hann kom hingað til lands. Viðtalið var birt á vef Deus ex cinema og þar segir meðal annars:
Það er greinilegt að ég hef ekki lesið Deus-vefinn nægilega samviskusamlega, eða ekki náð tenginginu þegar ég las viðtalið.
Það er nú engin krafa um það 🙂 En mér datt þetta í hug þegar ég las færsluna þína.