Ein lög skulu gilda hjá ykkur, þau sömu fyrir aðkomumanninn og þann sem fæddur er í landinu.
Það er áhugavert að þessi áhersla um jafnan rétt hins aðflutta skuli sett framan við lýsingar á því hvernig tjaldbúð Ísraelsmanna var flutt um í eyðimörkinni.
Annars er megininntak textans um mikilvægi þess að öllum Ísraelsmönnum sé skylt að taka þátt í páskahátíðinni. Þeim sem af einhverjum ástæðum teljast óhreinir er einnig heimilt að taka þátt.