Barátta Faraó og Móse heldur áfram. Móse hótar frekari eymd af hendi YHWH ef faraó gefur ekki eftir Ísraelsþjóðina. Textinn byggir á endurtekningum, með tilbrigðum.
- Drottinn sendir Móse með orð til Faraó.
- Drottinn veldur plágunni.
- Sagt er frá viðbrögðum spáprestanna.
- Drottinn herðir hjarta faraó og hann neitar að hlusta á Móse og/eða Aron.
Meðan á 2. plágu (8. kafli) og í 7. plágu gefur faraó eftir. Eftir sjöundu plágu kemur jafnvel fram að faraó iðrist. Móse hefur reyndar ekki mikla trú á einlægni faraó í það sinn og segir:
Samt veit ég að enn óttast þú og þjónar þínir ekki Drottin Guð.
Enda kemur í ljós að faraó stendur ekki við orð sín, þegar plágunni líkur.
Það er einnig vert að nefna að í þessum kafla færir Móse, faraó þau skilaboð frá Guði að ástæða þess að Guð afgreiði einfaldlega ekki málið og útrými Egyptum sé neðangreint:
[É]g hef látið þig halda lífi aðeins til þess að þú sæir mátt minn og nafn mitt verði boðað um alla jörðina.