Bæn

Um þessar mundir er ég að endurskoða efni fyrir fermingarnámskeið í Vatnaskógi. Ein af stundunum sem ég horfi til er kennslustund í kapellunni um bænina. Spurningin sem ég stend frammi fyrir er hvernig fjalla á um bænina/samtal við Guð fyrir unglinga. Klassíska kennsluhugmyndin um bænina sem fyrirspurnaþjónustu er að sjálfsögðu alls ófullnægjandi.
Af þeim sökum datt mér í hug að klippa saman mismunandi texta sem ýmist eru skrifuð sem samtöl við Guð, eða hafa verið notaðir sem bænir. Ég fékk ýmsar spennandi ábendingar á Facebook um mögulega texta og nýtti þær að hluta.
Grófklippt fyrsta hugmynd er hér, ég þarf helst að stytta þetta úr 11 mínútum niður í 5-6 mínútur, en ef einhver hefur áhuga á að gera athugasemdir eða leggja til uppbyggjandi gagnrýni áður en lengra er haldið þá er það mjög vel þegið.

TEMP: Fyrsta grófklipping vegna fræðslustundar í kapellu (11 mín).

Efni sem ég gæti notast við brot af (og er notað í grófklippingunni) er:

  • Söngur af flugvellinum í Jacmel, Haiti aðfararnótt 13. janúar 2010 (nokkrum klst eftir jarðskjálftann).
  • Lift Me Up – Christina Aguilera
  • Bæn Faðir Roger frá Taize (á ensku)
  • Creep – Radiohead
  • Hjálpaðu mér upp – Ný Dönsk
  • O, Lord Hear my Prayer – Taize
  • Ástarfaðir himinhæða – Ellen
  • Where is the Love – Black Eyed Peas
  • Oh, Lord Forgive Them – Chuck Fenda
  • I Can Only Imagine – MercyMe
  • Bæn Faðir Roger frá Taize (á frönsku…)
  • Í bljúgri bæn – Birgitta
  • Bambalela – ELCA Global Mission
  • Magnificent – U2
  • Grace – Michael W. Smith
  • Ó, hvílíkt frelsi – Páll Óskar og Monika
  • Söngur af flugvellinum í Jacmel, Haiti aðfararnótt 13. janúar 2010 (nokkrum klst eftir jarðskjálftann).

3 thoughts on “Bæn”

  1. Ein leið er sú að taka eingöngu áhrifamestu bútana af þessum lögum og skeyta þeim saman í einhverskonar medley. Til þess notarðu forrit á borð við Audacity eða Garage Band.

    Ég skil reyndar ekki af hverju “Like a prayer” með Madonna er ekki á listanum þínum!

  2. Svo má alltaf fikta í pitch-inu og spila þetta um 45% hraðar. Að vísu fer þá notkunin í kirkju norður og niður vegna “chipmunk” áhrifanna.

Leave a Reply to Carlos Cancel reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.