Fyrir Alþingi liggur fyrir frumvarp um enn eitt jákvætt skrefið í ferlinu að aðskilnaði ríkis og kirkju. En samkvæmt því er skipulagning og kjörgengi á Kirkjuþing ekki í höndum Alþingismanna heldur Kirkjuþings sjálfs. Þannig eru innri ákvarðanir kirkjunnar færðar til hennar en eru ekki viðfangsefni Alþingismanna. Skv. frétt á mbl.is skiluðu fulltrúar Frjálslyndaflokksins inn séráliti vegna þessa frumvarps um að þeir teldu að Alþingismenn ættu ekki að fjalla um innri mál kirkjunnar. Og … ætli þeir hafi ekki skilið að um það snýst frumvarpið.
3 thoughts on “Frjálslyndi flokkurinn alltaf spes”
Comments are closed.
Tær snilld!
Tja, þetta eru lög sem fjalla um innri starfssemi kirkjunnar, lög sem lögð eru fyrir Alþingi. Samt segja sumir (les: biskup) að ríki og Þjóðkirkja séu aðskilin. Er það ekki einfaldlega málið. Frjálslyndir vilja alvöru aðskilnað, ekki hænuskref þar sem Alþingi hlutast til um innra starf Þjóðkirkjunnar og ekki er skorið á naflastrenginn? Annars hef ég ekki hugmynd um hvað frjálslyndir eru að spá 🙂
Þetta snýst um endurskoðun á gildandi lögum, með það að markmiði að minnka vægi þeirra. Ef Frjálslyndir koma með vitræn viðbrögð hefði verið nær að leggja til að lögin í heild yrðu felld úr gildi. Í stað þess að gagnrýna breytingar í þá átt.