Akasar konungur í Júda óttast innrás, en vill ekki ögra Guði og leita náðar hans. Jesaja lofar tákni um framtíð…
Þess vegna mun Drottinn sjálfur gefa yður tákn. Sjá, yngismær verður þunguð og fæðir son og lætur hann heita Immanúel.
Þrátt fyrir að framtíð þjóðarinnar felist í komu barnsins Immanúel, þá mun hrunið koma samt sem áður.
Hér er mikilvægt að skilja að Jesaja virðist vera að vísa til sonar Akasar konungs sem framtíðarbarns þjóðarinnar. Uppeldi hans, það hvort Immanúel lærir að þekkja á milli góðs og ills, er forsenda framtíðarinnar.
Sonars Akasar? Þú hlýtur að eiga við “son Maríu”! 😉
Það er ekkert sem segir að við getum ekki talið textann eiga betur við son Maríu, þó Jesaja hafi ekki vitað betur. 🙂
Ef samhengið og ætlun höfundar skipta ekki máli, þá er ansi lítið eftir til þess að banna þér að skilja textann eins og þú vilt.