Markmið félagsins er að styðja við starfsemi systur Victo sem hefur opnað faðm sinn fyrir heimilislausum börnum í Togo. Hún rekur barnaheimili í bænum Aneho í Togo, auk þess sem hún styður skólagöngu skjólstæðinga sinna og liðsinnir þeim sem eldri eru við að koma undir sig fótunum með því að styrkja menntun þeirra og styðja þau út í atvinnulífið.
sjá nánar Sóley og félagar.