Við hjónin ákváðum fyrir rétt um mánuði að segja upp ADSL-áskriftinni og nota það sem sparaðist þetta árið renna í eitthvað uppbyggilegt fyrir samband okkar. Það er gaman að segja frá því að þetta er fyrsta færslan sem ég færi í gegnum 56K módemið okkar. Netsamband mitt hefur ekki verið verra síðan haustið 2000, en samband mitt við konuna er um þessar mundir með besta móti.
Af þessum sökum er ekki að vænta mikillar netvirkni um kvöld og helgar það sem af lifir þessu ári.
LOL!!!!!!! Tær snilld!