{"id":6114,"date":"2015-06-14T14:31:00","date_gmt":"2015-06-14T18:31:00","guid":{"rendered":"https:\/\/igrundun.wordpress.com\/?p=6114"},"modified":"2019-02-18T23:06:06","modified_gmt":"2019-02-18T23:06:06","slug":"spennandi-verkefni-framundan","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/2015\/06\/14\/spennandi-verkefni-framundan\/","title":{"rendered":"A\u00f0 m\u00e6ta til starfa \u00ed Tremont"},"content":{"rendered":"<p>\u00cd \u00feessari\u00a0viku hef \u00e9g st\u00f6rf hj\u00e1 <a href=\"http:\/\/www.pilgrimalive.org\">Pilgrim Congregational UCC<\/a>\u00a0sem fr\u00e6\u00f0slufulltr\u00fai (e. Director of Christian Education). Atvinnuleitin hefur teki\u00f0 langan t\u00edma og ekki alltaf veri\u00f0 au\u00f0veld, en Pilgrim UCC er spennandi sta\u00f0ur \u00ed Tremont hverfinu \u00ed Cleveland.<!--more--><\/p>\n<p>\u00cd upphafi 20.\u00a0aldar var Tremont hverfi\u00f0 \u00ed mikilli uppsveiflu, fullt af innflytendum fr\u00e1 Austur-Evr\u00f3pu sem fengu vinnu \u00ed st\u00e1lvinnslum og \u00f6\u00f0rum verksmi\u00f0jum me\u00f0fram Cuyahoga \u00e1nni. \u00c1 \u00feeim t\u00edma \u00fe\u00f3tti \u00feetta g\u00f3\u00f0 vinna, st\u00e9ttarf\u00e9l\u00f6g verndu\u00f0u starfsmennina gegn misnotkun verksmi\u00f0jueigendanna. Cleveland var land t\u00e6kif\u00e6ranna. Verksmi\u00f0jur mengu\u00f0u\u00a0vissulega umhverfi\u00f0, en sk\u00f6pu\u00f0u ver\u00f0m\u00e6ti fyrir samf\u00e9lagi\u00f0 og \u00fej\u00f3nustui\u00f0na\u00f0urinn naut g\u00f3\u00f0s af.<\/p>\n<p>Pilgrim Congregational Church var hluti af \u00feessu samf\u00e9lagi. Kirkjan var stofnu\u00f0 1859 af einstaklingum fr\u00e1 mismunandi kirkjudeildum sem h\u00f6f\u00f0u metna\u00f0 fyrir kirkju sem l\u00e9ti sig var\u00f0a um samf\u00e9lagi\u00f0 sem h\u00fan \u00fej\u00f3na\u00f0i. \u00deegar s\u00f6fnu\u00f0urinn bygg\u00f0i n\u00fdja kirkjubyggingu \u00ed lok 19. aldar, leit lykilf\u00f3lk safna\u00f0arins svo \u00e1 a\u00f0 hlutverk kirkjunnar v\u00e6ri fyrst og fremst a\u00f0 \u00fej\u00f3na samf\u00e9laginu. Kirkjubyggingin var metna\u00f0arfullt verkefni me\u00f0 tugum kennslustofa, kapellu, st\u00f3rum matsal, eldh\u00fasi, boxhring, keilusal og gl\u00e6silegu kirkjuskipi sem enn \u00ed dag er eftirs\u00f3ttur t\u00f3nleikasalur. Boxhringurinn er \u00fe\u00f3 ekki nota\u00f0ur lengur og\u00a0keilubrautirnar hafa\u00a0veri\u00f0 fjarl\u00e6g\u00f0ar til a\u00f0 koma fyrir innanh\u00fask\u00f6rfuboltavelli.<\/p>\n<p>Tremont er\u00a0r\u00e9tt vi\u00f0 mi\u00f0borgina, stendur \u00e1 h\u00e6\u00f0 \u00e1 vesturbakka Cuyahoga \u00e1rinnar. Ni\u00f0ur\u00a0vi\u00f0 \u00e1na voru verksmi\u00f0jurnar og \u00e1 austurbakkanum eru h\u00e1h\u00fdsin, hafnaboltav\u00f6llurinn og k\u00f6rfuboltah\u00f6llin \u00fear sem Lebron James leikur s\u00e9r.<\/p>\n<p>Samf\u00e9lagi\u00f0 \u00ed Tremont t\u00f3k st\u00f3rst\u00edgum breytingum um mi\u00f0ja s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld. St\u00e6rsta breytingin fyrir samf\u00e9lagi\u00f0 var uppbygging \u00fej\u00f3\u00f0vegakerfisins (<em>e<\/em>. interstate) \u00ed Bandar\u00edkjunum. Me\u00f0an r\u00edkari samf\u00e9l\u00f6g eins og Shaker Heights beittu s\u00e9r gegn lagningu hra\u00f0brauta \u00ed gegnum samf\u00e9l\u00f6gin s\u00edn, stundum me\u00f0 g\u00f3\u00f0um \u00e1rangri, var \u00fea\u00f0 ekki raunin \u00ed Cleveland. Tremont hverfi\u00f0 var skori\u00f0 \u00ed fj\u00f3ra bita\u00a0r\u00e9tt eftir mi\u00f0ja s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld me\u00f0 I-71, I-90 og I-490\u00a0hra\u00f0brautunum. R\u00famlega 600 h\u00fas \u00ed hverfinu voru rifin ni\u00f0ur til a\u00f0 koma hra\u00f0brautunum fyrir\u00a0og \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0\u00a0f\u00e6kka\u00f0i \u00edb\u00faum \u00ed Tremont um meira en 75%.<\/p>\n<p>\u00c1 \u00feessum t\u00edma var fleira \u00ed gangi. Verksmi\u00f0jurnar eitru\u00f0u umhverfi\u00f0 sem aldrei fyrr og dr\u00e1pu allt l\u00edf \u00ed Cuyahoga \u00e1nni.\u00a0Fr\u00e1 1868 til 1969 kvikna\u00f0i \u00ed \u00e1nni sj\u00e1lfri a\u00f0 minnsta kosti 13 sinnum me\u00f0 tilheyrandi ey\u00f0ileggingu \u00e1 b\u00e1tum, br\u00fam og bryggjum. \u00cd kj\u00f6lfar brunans 1969 fjalla\u00f0i <em>Time Magazine<\/em> um mengunina, \u00fe\u00e1 m\u00f3tsagnakenndu sta\u00f0reynd a\u00f0 \u00e1 geti brunni\u00f0 og opna\u00f0i me\u00f0 \u00fev\u00ed umr\u00e6\u00f0u um mengun og umhverfisvernd \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. Umr\u00e6\u00f0u sem sta\u00f0arfj\u00f6lmi\u00f0lar h\u00f6f\u00f0u a\u00f0 mestu sni\u00f0gengi\u00f0 sem \u00f3umbreytanlegan veruleika.<\/p>\n<p>\u00c1 7. \u00e1ratugnum var Tremont hverfi\u00f0 \u00fev\u00ed sundurskori\u00f0, dregi\u00f0 haf\u00f0i \u00far vinnu \u00ed verksmi\u00f0junum og n\u00e1l\u00e6g\u00f0in vi\u00f0 mi\u00f0borgina var ekki lengur a\u00f0dr\u00e1ttarafl, heldur dragb\u00edtur. \u00dathverfav\u00e6\u00f0ingin sem fylgdi hra\u00f0brautaruppbyggingunni virtist \u00e6tla\u00a0a\u00f0 gera \u00fat af vi\u00f0 hverfi eins og Tremont. Framt\u00ed\u00f0 kjarnafj\u00f6lskyldunnar \u00ed Bandar\u00edkjunum var talin vera \u00ed st\u00f3rum h\u00fasum me\u00f0 miklum g\u00f6r\u00f0um \u00ed \u00fathverfunum.<\/p>\n<p>\u00cd lok 9. \u00e1ratugarins var Pilgrim UCC a\u00f0 ni\u00f0urlotum komin. S\u00f6fnu\u00f0urinn haf\u00f0i ekki haft prest \u00ed f\u00f6stu starfi \u00ed t\u00e6p 10 \u00e1r. \u00deegar n\u00fdr prestur var settur inn \u00ed emb\u00e6tti vi\u00f0 kirkjuna 3. j\u00fan\u00ed 1990, voru 32 vi\u00f0 ath\u00f6fnina, \u00fear af sex vinir n\u00fdja prestsins sem m\u00e6ttu til a\u00f0 f\u00e1 hana til a\u00f0 h\u00e6tta vi\u00f0. Margar af kirkjunum \u00ed Tremont voru \u00ed s\u00f6mu st\u00f6\u00f0u. \u00dea\u00f0 voru helst \u201e\u00fej\u00f3\u00f0kirkjurnar\u201c sem h\u00e9ldu reisn, gr\u00edska r\u00e9tttr\u00fana\u00f0arkirkjan, k\u00f3reska kirkjan, s\u00fdrlenski s\u00f6fnu\u00f0urinn og r\u00fassneski orthodox-s\u00f6fnu\u00f0urinn. Enda h\u00e9ldu margar fj\u00f6lskyldur enn\u00fe\u00e1 trygg\u00f0 vi\u00f0 \u201e\u00fej\u00f3\u00f0ina\u201c \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 vera fluttar \u00ed \u00fathverfin.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var einmitt upp \u00far 1990 sem bygg\u00f0a\u00fer\u00f3unin byrja\u00f0i a\u00f0 breytast. Vi\u00f0sn\u00faningurinn var h\u00e6gur \u00ed fyrstu, en fr\u00e1 s\u00ed\u00f0ustu aldam\u00f3tum hefur a\u00f0dr\u00e1ttarafl mi\u00f0b\u00e6jarl\u00edfsins kalla\u00f0 \u00e1 n\u00fdtt l\u00edf \u00ed nor\u00f0austurfj\u00f3r\u00f0ungi Tremont \u00fear sem Pilgrim UCC er. N\u00fdtt\u00a0f\u00f3lk hefur flutt inn. Veitingasta\u00f0ir hafa gengi\u00f0 \u00ed endurn\u00fdjun l\u00edfdaga. Fj\u00f6lbreytt listal\u00edf hefur fylgt \u00feessari \u00fer\u00f3un og Pilgrim UCC hefur teki\u00f0 virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed endurn\u00fdjun samf\u00e9lagsins.<\/p>\n<p>Pilgrim UCC hefur enda fr\u00e1 upphafi\u00a0liti\u00f0 \u00e1 sig sem \u00e1byrga stofnun \u00ed samf\u00e9lagsger\u00f0 Tremont hverfisins og tali\u00f0\u00a0\u00fea\u00f0 hlutverk sitt a\u00f0 berjast\u00a0fyrir samf\u00e9lagsumb\u00f3tum. S\u00fa sj\u00e1lfsmynd hefur haldist \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 kirkjus\u00f3kn hafi veri\u00f0 mj\u00f6g takm\u00f6rku\u00f0 \u00ed lok s\u00ed\u00f0ustu aldar. \u00cd dag er s\u00f6fnu\u00f0urinn virkur \u00ed bar\u00e1ttunni fyrir r\u00e9ttl\u00e6ti innan d\u00f3mskerfisins \u00ed Cuyahoga s\u00fdslu, hefur teki\u00f0 virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed gagnr\u00fdni \u00e1 l\u00f6gregluna \u00ed Cleveland og kemur a\u00f0\u00a0r\u00e9ttindabar\u00e1ttu samkynhneig\u00f0ra \u00ed Bandar\u00edkjunum. S\u00f6fnu\u00f0urinn hefur teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed Gay Pride \u00ed Cleveland \u00ed m\u00f6rg \u00e1r, rekur matarb\u00far fyrir \u00feau sem \u00fearfnast a\u00f0sto\u00f0ar, h\u00fdsir f\u00e9lagasamt\u00f6k sem hj\u00e1lpa heimilislausum fj\u00f6lskyldum og sty\u00f0ur me\u00f0 virkum h\u00e6tti vi\u00f0 listal\u00edf \u00ed Tremont. R\u00edflega 100 einstaklingar m\u00e6ta \u00ed gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustur \u00e1 sunnud\u00f6gum og skr\u00e1\u00f0ir me\u00f0limir eru r\u00e9tt t\u00e6plega\u00a0300.<\/p>\n<p>Presturinn sem kom til starfa 1990, \u00fej\u00f3na\u00f0i kirkjunni \u00ed 17 \u00e1r \u00e1\u00f0ur en h\u00fan sn\u00e9ri s\u00e9r a\u00f0 n\u00fdjum verkefnum. S\u00f6fnu\u00f0inum gekk \u00ed framhaldinu illa a\u00f0 finna r\u00e9tta manneskju til a\u00f0 lei\u00f0a s\u00f6fnu\u00f0inn inn \u00ed n\u00e6sta skei\u00f0, en fyrir r\u00famlega einu \u00e1ri s\u00ed\u00f0an, eftir r\u00famlega\u00a07 \u00e1ra \u00f3vissu var n\u00faverandi\u00a0prestur kalla\u00f0ur til starfa vi\u00f0 kirkjuna.<\/p>\n<p>Framt\u00ed\u00f0in er spennandi og framundan\u00a0er a\u00f0 \u00fer\u00f3a starf safna\u00f0arins \u00e1fram til a\u00f0 m\u00e6ta n\u00fdjum a\u00f0st\u00e6\u00f0um \u00ed Tremont og n\u00e1grenni. Me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 markmi\u00f0i a\u00f0 finna lei\u00f0ir til a\u00f0 sty\u00f0ja vi\u00f0 og styrkja tr\u00faarl\u00edf f\u00f3lksins \u00ed s\u00f6fnu\u00f0inum og \u00ed n\u00e1nasta umhverfi kirkjunnar. B\u00f3kakl\u00fabbar \u00ed \u00edsb\u00fa\u00f0um, helgihald \u00e1 mi\u00f0vikudagseftirmi\u00f0d\u00f6gum og gr\u00e6nmetisr\u00e6kt \u00e1 kirkjul\u00f3\u00f0inni eru me\u00f0al verkefna sem eru \u00ed bur\u00f0arli\u00f0num.<\/p>\n<p>Rekstur kirkjubyggingarinnar tekur til s\u00edn n\u00e6rri 40% af innkomu safna\u00f0arins, en \u00fea\u00f0 st\u00f6\u00f0var samt ekki s\u00f6fnu\u00f0inn fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 leggja til vi\u00f0b\u00f3tar \u00e1 milli 10-15% af tekjum s\u00ednum til samf\u00e9lagsverkefna utan safna\u00f0arins.<\/p>\n<p>\u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 \u00fer\u00f3un li\u00f0ina \u00e1ra \u00ed Tremont, s\u00e9r \u00ed lagi \u00ed fj\u00f3r\u00f0ungnum \u00fear sem kirkjan stendur hafi veri\u00f0 spennandi,\u00a0\u00fe\u00e1 er ekki allt or\u00f0i\u00f0 gott, \u00fev\u00ed fer fjarri. \u00dea\u00f0\u00a0er enn mikil f\u00e1t\u00e6kt \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. R\u00famlega 80%\u00a0barna \u00ed almenningsgrunnsk\u00f3lum \u00ed n\u00e1nasta n\u00e1grenni kirkjunnar hafa r\u00e9tt \u00e1 ni\u00f0urgreiddum e\u00f0a \u00f3keypis sk\u00f3lam\u00e1lt\u00ed\u00f0um.<\/p>\n<p>M\u00f6rg\u00a0\u00feeirra sem hafa flutt \u00ed hverfi\u00f0 \u00e1 li\u00f0num \u00e1rum \u00far betur st\u00e6\u00f0um\u00a0samf\u00e9lagsh\u00f3pum eru barnslaus. \u00dea\u00f0 \u00e1 vi\u00f0 um yngra f\u00f3lk sem er a\u00f0 feta s\u00edn fyrstu spor eftir h\u00e1sk\u00f3la, mi\u00f0aldra f\u00f3lk sem er a\u00f0 minnka vi\u00f0 sig og eins\u00a0samkynhneig\u00f0 p\u00f6r og einstaklinga. \u00dathverfal\u00edfi\u00f0 vir\u00f0ist enn helsti valkostur kjarnafj\u00f6lskyldunnar. \u00deannig b\u00fdr prestur Pilgrim UCC me\u00f0 manni og b\u00f6rnum \u00ed \u00fathverfunum, l\u00edkt og \u00e9g og m\u00edn fj\u00f6lskylda.<\/p>\n<p>\u00de\u00e1 \u00fearf \u00fev\u00ed mi\u00f0ur a\u00f0 nefna a\u00f0 hverfi\u00f0 var \u00ed fr\u00e9ttum\u00a0\u00e1 s\u00ed\u00f0astu \u00e1rum vegna\u00a0mannr\u00e1ns \u00e1 \u00feremur st\u00falkum sem voru pynta\u00f0ar, \u00feeim nau\u00f0ga\u00f0 og beittar ofbeldi \u00ed r\u00fam 10 \u00e1r. H\u00fasi\u00f0 \u00fear sem konunum var haldi\u00f0 nau\u00f0ugum var \u00ed su\u00f0vesturfj\u00f3r\u00f0ungi hverfisins sem hefur \u00fev\u00ed mi\u00f0ur ekki\u00a0noti\u00f0 velmeguninnar nor\u00f0austurhlutans.<\/p>\n<p>Sm\u00e1gl\u00e6pir eins og innbrot \u00ed b\u00edla eru algengir \u00ed Tremont. \u00d6ryggisv\u00f6r\u00f0ur er \u00e1 vakt \u00e1 sunnudagsmorgnum me\u00f0an \u00e1 gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustu stendur og \u00e1 \u00f6\u00f0rum t\u00edmum \u00fearf a\u00f0 nota dyras\u00edma til a\u00f0 komast inn \u00ed h\u00fasn\u00e6\u00f0i kirkjunnar.<\/p>\n<p><em>\u00deetta er \u00f6nnur\u00a0greiningin m\u00edn \u00e1 n\u00fdju starfsumhverfi og horfir til landfr\u00e6\u00f0ilegs umhverfis. S\u00fa fyrsta fjalla\u00f0i um bakgrunn kirkjudeildarinnar sem \u00e9g mun starfa fyrir. L\u00edkt og fyrri greiningin er \u00feessi um margt yfirbor\u00f0skennd, enda fyrst og fremst \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 breg\u00f0a \u00f6rlitlu lj\u00f3si \u00e1 a\u00f0st\u00e6\u00f0ur og hj\u00e1lpa m\u00e9r a\u00f0 m\u00e6ta til leiks me\u00f0 grunnskilning \u00e1 \u00fev\u00ed sem framundan er.<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00cd \u00feessari\u00a0viku hef \u00e9g st\u00f6rf hj\u00e1 Pilgrim Congregational UCC\u00a0sem fr\u00e6\u00f0slufulltr\u00fai (e. Director of Christian Education). Atvinnuleitin hefur teki\u00f0 langan t\u00edma og ekki alltaf veri\u00f0 au\u00f0veld, en Pilgrim UCC er spennandi sta\u00f0ur \u00ed Tremont hverfinu \u00ed Cleveland.<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":6357,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[29,34,70,76,89,90,97,99,118,147,168],"class_list":["post-6114","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-islenska","tag-church","tag-community","tag-gods-plan","tag-growth","tag-injustice","tag-interfaith","tag-leadership","tag-listening","tag-politics","tag-storytelling","tag-youthwork"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6114","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=6114"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/6114\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/media\/6357"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=6114"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=6114"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=6114"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}