{"id":55,"date":"2004-06-24T11:50:44","date_gmt":"2004-06-24T18:50:44","guid":{"rendered":"http:\/\/elli.annall.is\/2004-06-24\/11.50.44"},"modified":"2004-06-24T11:50:44","modified_gmt":"2004-06-24T18:50:44","slug":"115044","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/2004\/06\/24\/115044\/","title":{"rendered":"Gu\u00f0 skapa\u00f0i illgresi\u00f0!"},"content":{"rendered":"<p>\u00deessi huglei\u00f0ing var flutt \u00e1 KSS fundi 22. j\u00fan\u00ed 2004. <!--more--> <\/p>\n<blockquote><p><em>Drottinn Gu\u00f0 kalla\u00f0i \u00e1 manninn og sag\u00f0i vi\u00f0 hann: Hvar ertu? Hann svara\u00f0i: \u00c9g heyr\u00f0i til \u00fe\u00edn \u00ed aldingar\u00f0inum og var\u00f0 hr\u00e6ddur, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g er nakinn, og \u00e9g faldi mig. En Gu\u00f0 m\u00e6lti: Hver hefir sagt \u00fe\u00e9r, a\u00f0 \u00fe\u00fa v\u00e6rir nakinn? Hefir \u00fe\u00fa eti\u00f0 af tr\u00e9nu, sem \u00e9g banna\u00f0i \u00fe\u00e9r a\u00f0 eta af? \u00de\u00e1 svara\u00f0i ma\u00f0urinn: Konan, sem \u00fe\u00fa gafst m\u00e9r til samb\u00fa\u00f0ar, h\u00fan gaf m\u00e9r af tr\u00e9nu, og \u00e9g \u00e1t. \u00de\u00e1 sag\u00f0i Drottinn Gu\u00f0 vi\u00f0 konuna: Hva\u00f0 hefir \u00fe\u00fa gj\u00f6rt? Og konan svara\u00f0i: H\u00f6ggormurinn t\u00e6ldi mig, svo a\u00f0 \u00e9g \u00e1t.<\/em><\/p><\/blockquote>\n<p>Sk\u00f6punarsaga Bibl\u00edunnar e\u00f0a \u00f6llu heldur sk\u00f6punars\u00f6gur Bibl\u00edunnar segja okkur margv\u00edslegan sannleik. Annars vegar segja \u00fe\u00e6r okkur fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Gu\u00f0 skapa\u00f0i allt, og allt var gott. Hins vegar lesum vi\u00f0 \u00fear um fall mannsins. Komu hins illa inn \u00ed heiminn. \u00cd sk\u00f6punars\u00f6gunni m\u00e1 l\u00edka finna fyrsta fyrirheiti\u00f0 um komu Jes\u00fa Krists. En st\u00f6ldrum vi\u00f0 fyrri tvo \u00fe\u00e6ttina, sk\u00f6punina og komu hins illa inn \u00ed heiminn.<\/p>\n<p>Bibl\u00edan segir \u00fea\u00f0 kl\u00e1rt og sk\u00fdrt. Sk\u00f6punin er \u00d6LL Gu\u00f0s, \u00fea\u00f0 er engin annar sem skapar. Ver\u00f6ldin er fr\u00e1 Gu\u00f0i kominn. \u00deetta er grundvallars\u00fdn kristinna manna. \u00deannig a\u00f0 svari\u00f0 vi\u00f0 spurningunni \u00ed upphafi er einfalt. J\u00e1, Gu\u00f0 skapa\u00f0i illgresi\u00f0. <\/p>\n<p>\u00c1st\u00e6\u00f0an fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 fer \u00ed taugarnar \u00e1 okkur, eru einfaldlega \u00fe\u00e6r a\u00f0 vi\u00f0 [mennirnir] teljum a\u00f0 \u00feessar jurtategundir eigi ekki heima \u00ed umhverfinu sem vi\u00f0 viljum vera \u00ed. <\/p>\n<p>Spuringunni er \u00fear me\u00f0 svara\u00f0 og r\u00e9tt a\u00f0 lj\u00faka m\u00e1linu h\u00e9r.<\/p>\n<p>En \u00fea\u00f0 er kannski ekki \u00feetta svar, sem \u00e1tti a\u00f0 koma. L\u00edklega er \u00fea\u00f0 vangaveltan um hi\u00f0 illa sem lesa m\u00e1 milli l\u00ednanna \u00ed spurningunni, sem \u00e1 a\u00f0 vera umr\u00e6\u00f0uefni\u00f0 h\u00e9r \u00ed kv\u00f6ld. <\/p>\n<p>Sk\u00f6punarsagan segir nefnilega fr\u00e1 komu hins illa \u00ed heiminn. \u00dea\u00f0 er \u00f3h\u00e6tt a\u00f0 segja a\u00f0 \u00ferj\u00e1r stefnur s\u00e9u r\u00edkjandi \u00ed heiminum \u00feegar r\u00e6tt er um illskuna. <\/p>\n<p>S\u00fa fyrsta er hugmynd &#8220;p\u00f3st\u00edv\u00edsmans\u0094, t\u00e6knihyggjan. Ekkert illt er til. Illska heimsins byggir \u00e1 skorti \u00e1 \u00feekkingu. Me\u00f0 aukinni \u00feekkingu og t\u00e6kni minnkar illskan. \u00deessi hugmynd var mj\u00f6g r\u00e1\u00f0andi \u00ed lok 19. aldar og fram \u00e1 \u00fe\u00e1 tuttugustu. H\u00fan l\u00fdsti s\u00e9r m.a. \u00ed tilraunum manna til a\u00f0 b\u00faa til alheimstungum\u00e1li\u00f0 til a\u00f0 au\u00f0velda samskipti. Hugmyndin bei\u00f0 sitt fyrsta skipbrot me\u00f0 fyrri heimstyrj\u00f6ldinni. S\u00ed\u00f0an \u00fe\u00e1 hefur h\u00fan skoti\u00f0 upp kollinum, m.a. \u00ed komm\u00fanismanum og \u00ed h\u00famanistahreyfingum, \u00fear sem \u00e1herslan er \u00e1 a\u00f0 allir s\u00e9u \u00ed raun g\u00f3\u00f0ir og vilji gera \u00fea\u00f0 sem gott er. Freistarinn hi\u00f0 illa, s\u00e9 \u00ed raun ekki til. <\/p>\n<p>\u00d6nnur hugmyndin er betur \u00feekkt. Hugmyndin um a\u00f0 hi\u00f0 illa s\u00e9 raunverulegt afl sem berst vi\u00f0 hi\u00f0 g\u00f3\u00f0a, Gu\u00f0, um yfirr\u00e1\u00f0in \u00ed heiminum. \u00deessi hugmynd er oft ranglega tengd vi\u00f0 kristna tr\u00fa og v\u00edsa\u00f0 m.a. til P\u00e1ls postula og Opinberunarb\u00f3karinnar.<\/p>\n<p>\u00deessi hugmynd er sterk \u00ed bo\u00f0un \u00fdmsa safna\u00f0a sem telja sig kristna og koma fram t.d. \u00e1 Omega. Gospelpoppraparinn Carman hefur lagt upp me\u00f0 \u00feessa \u00e1herslu t.d. \u00ed s\u00f6ngvum \u00fear sem bar\u00e1ttu g\u00f3\u00f0s og ills er l\u00fdst sem boxkeppni. Tr\u00faf\u00e9lagi\u00f0 Frelsi\u00f0 sem starfa\u00f0i h\u00e9r \u00e1 \u00cdslandi fyrir nokkrum \u00e1rum setti upp \u00ed \u00feessum d\u00far leik\u00fe\u00e1tt sem enda\u00f0i me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 Jes\u00fa t\u00f3k upp byssu og skaut dj\u00f6fulinn.<\/p>\n<p>Segja m\u00e1 a\u00f0 \u00feessar hugmyndir um bar\u00e1ttu g\u00f3\u00f0s og ills s\u00e9u mest \u00e1berandi og sterkastar \u00ed Bandar\u00edkjunum og \u00fear eru \u00fe\u00e6r nota\u00f0ar m.a. \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1labar\u00e1ttunni. \u00dear sem Saddam Hussein var \u00fatm\u00e1la\u00f0ur sem starfsf\u00e9lagi Satans. \u00deessu fylgir i\u00f0ulega a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem aflaga fer \u00ed ver\u00f6ldinni s\u00e9 verk dj\u00f6fulsins. Hann s\u00e9 \u00e1byrgur og gegn honum \u00feurfi a\u00f0 berjast.<\/p>\n<p>\u00deessi hugmynd \u00e1 uppruna sinn \u00ed austurl\u00f6ndum fj\u00e6r, tengt yin\/yan kenningum K\u00ednverja og koma inn \u00ed kristnina \u00ed gegnum gr\u00edsk \u00e1hrif m.a. fr\u00e1 Plat\u00f3. Me\u00f0 kenningum um tv\u00f6 gu\u00f0leg \u00f6fl \u00ed bar\u00e1ttu um s\u00e1lirnar og \u00f3vissu um endalokin erum vi\u00f0 nefnilega a\u00f0 taka \u00e1byrg\u00f0ina fr\u00e1 okkur sj\u00e1lfum. Aflei\u00f0ing \u00feessarar kenningar getur veri\u00f0 s\u00fa a\u00f0 vi\u00f0 f\u00f6llum \u00ed \u00fe\u00e1 gryfju a\u00f0 hugsa fyrst og fremst um frelsun okkar sj\u00e1lfra, t\u00f6kum st\u00f6\u00f0u Evu og segjum \u00feegar eitthva\u00f0 misferst &#8220;\u00dea\u00f0 var ekki \u00e9g, \u00fea\u00f0 var h\u00f6ggormurinn.\u0094 <\/p>\n<p>\u00deri\u00f0ja hugmyndin sem \u00e9g hyggst nefna h\u00e9r til s\u00f6gunnar er s\u00fa sem vi\u00f0 lesum um \u00ed Bibl\u00edunni. Gu\u00f0 er einn Gu\u00f0 og ekkert afl er til sem stenst hann. A\u00f0eins eitt gu\u00f0legt afl er til.<\/p>\n<p>En \u00fer\u00e1tt fyrir a\u00f0 illskan s\u00e9 ekki gu\u00f0leg er h\u00fan raunveruleg. Illskan er aflei\u00f0ing \u00feess a\u00f0 ma\u00f0urinn vill sj\u00e1lfur gerast Gu\u00f0. Fr\u00e1sagan sem \u00e9g las \u00e1\u00f0an segir fr\u00e1 \u00fev\u00ed. Um lei\u00f0 og ma\u00f0urinn vill ver\u00f0a Gu\u00f0 er hann ekki tilb\u00fain til a\u00f0 bera \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 gj\u00f6r\u00f0um s\u00ednum. <br \/>Illskan birtist \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 ma\u00f0urinn leitast vi\u00f0 a\u00f0 hugsa fyrst og fremst um sj\u00e1lfan sig, lokar \u00e1 umhverfi sitt. Bibl\u00edan \u00fatsk\u00fdrir hins vegar ekki hvers vegna \u00fej\u00e1ningin \u00e1 s\u00e9r sta\u00f0 \u00e1 einum sta\u00f0 en ekki \u00f6\u00f0rum. \u00deegar h\u00fan hefur \u00fatsk\u00fdrt tilur\u00f0 illskunar sn\u00fdr h\u00fan s\u00e9r a\u00f0 hugguninni. <\/p>\n<p>Hvernig t\u00f6kumst vi\u00f0 \u00e1 vi\u00f0 illskuna? Adam Smith f\u00f3r \u00fe\u00e1 lei\u00f0 a\u00f0 l\u00edta \u00e1 eigingirnina sem forsendu framfara, hann tala\u00f0i um a\u00f0 ef vi\u00f0 gefum okkur sj\u00e1lfumhverfunni \u00e1 vald myndi \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi\u00f0 nj\u00f3ta mestra hagsmuna. \u00deessar kenningar eru kalla\u00f0ar kap\u00edtalismi og m\u00f3ta flest vestr\u00e6n samf\u00e9l\u00f6g \u00ed dag. Gefumst upp fyrir syndinni, n\u00fdtum hana \u00ed okkar \u00fe\u00e1gu. \u00deeir sem \u00feannig gera n\u00e1 mestum \u00e1rangri. \u00deessar hugmyndir Adam hafa reyndar sanna\u00f0 sig a\u00f0 hluta til rangar m.a. me\u00f0 leikjakenningum \u00ed st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0i \u00e1 seinni hluta 20. aldar, en lifa samt g\u00f3\u00f0u l\u00edfi \u00ed dag. <\/p>\n<p>Kristur f\u00f3r annan veg, b\u00e6\u00f0i mj\u00f3rri og \u00f3grei\u00f0farnari. Hann gaf sj\u00e1lfan sig fullkomlega fyrir a\u00f0ra. Hann \u00fej\u00f3na\u00f0i \u00fej\u00f3num s\u00ednum, \u00ed au\u00f0m\u00fdkt. Hann r\u00e9\u00f0st \u00e1 synd sj\u00e1lfhverfunnar og gaf sj\u00e1lfan sig. <\/p>\n<p>Gu\u00f0 gefi a\u00f0 vi\u00f0 f\u00f6rum veg Krists, berjumst gegn illskunni og komum fram \u00ed au\u00f0m\u00fdkt og \u00fej\u00f3nustu hvort vi\u00f0 anna\u00f0.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deessi huglei\u00f0ing var flutt \u00e1 KSS fundi 22. j\u00fan\u00ed 2004.<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[127],"class_list":["post-55","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-islenska","tag-religion"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/55","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=55"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/55\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=55"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=55"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=55"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}