{"id":5299,"date":"2013-11-08T10:44:46","date_gmt":"2013-11-08T14:44:46","guid":{"rendered":"http:\/\/igrundun.wordpress.com\/?p=5299"},"modified":"2013-11-08T10:44:46","modified_gmt":"2013-11-08T14:44:46","slug":"get-sed-um-ad-taka-a-moti-boltanum-og-senda-hann-afram","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/2013\/11\/08\/get-sed-um-ad-taka-a-moti-boltanum-og-senda-hann-afram\/","title":{"rendered":"\u201eGet s\u00e9\u00f0 um a\u00f0 taka \u00e1 m\u00f3ti boltanum og senda hann \u00e1fram\u201c"},"content":{"rendered":"<div>\n<p><em>\u00deegar \u00e9g kom til starfa hj\u00e1 KFUM og KFUK \u00e1 \u00cdslandi fyrir r\u00famum tveimur \u00e1rum t\u00f3k Ragnar Gunnarsson vi\u00f0tal vi\u00f0 mig fyrir <\/em><a title=\"Bjarmi - T\u00edmarit um kristna tr\u00fa\" href=\"http:\/\/bjarmi.is\">Bjarma &#8211; t\u00edmarit um kristna tr\u00fa<\/a><em>. \u00c9g rakst \u00e1 vi\u00f0tali\u00f0 vi\u00f0 tiltekt \u00ed skj\u00f6lunum m\u00ednum \u00ed t\u00f6lvunni og datt \u00ed hug a\u00f0 birta \u00fea\u00f0 h\u00e9r. \u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 \u00e9g hafi staldra\u00f0 styttra vi\u00f0 hj\u00e1 KFUM og KFUK en plani\u00f0 var \u00ed upphafi, \u00fe\u00e1 er innihald vi\u00f0talsins jafn mikilv\u00e6gt og fyrr.<!--more--><\/em><\/p>\n<p style=\"text-align:center\">&#8212;<\/p>\n<p><strong>Halld\u00f3r El\u00edas Gu\u00f0mundsson e\u00f0a Elli kom til starfa \u00e1 \u00e6skul\u00fd\u00f0ssvi\u00f0i KFUM og KFUK n\u00fa \u00e1 haustm\u00e1nu\u00f0um eftir a\u00f0 hafa dvali\u00f0 vi\u00f0 n\u00e1m \u00ed Bandar\u00edkjunum s\u00ed\u00f0astli\u00f0in fimm \u00e1r. Fulltr\u00fai Bjarma \u00e1kva\u00f0 a\u00f0 koma a\u00f0 m\u00e1li vi\u00f0 hann og forvitnast um manninn, n\u00e1mi\u00f0 \u00ed Bandar\u00edkjunum og hvernig Elli s\u00e9r framt\u00ed\u00f0 kristilegs \u00e6skul\u00fd\u00f0sstarfs \u00e1 \u00cdslandi og \u00fe\u00e1 s\u00e9r \u00ed lagi hj\u00e1 KFUM og KFUK.<\/strong><\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p>\u00cd dag er \u00e9g giftur, tveggja barna fa\u00f0ir og \u00ed \u00feeirri undarlegu st\u00f6\u00f0u a\u00f0 eiga heimili \u00ed tveimur heims\u00e1lfum, annars vegar \u00ed Laugardalnum \u00ed Reykjav\u00edk og hins vegar \u00ed Chapel Hill \u00ed Nor\u00f0urkar\u00f3l\u00ednufylki \u00ed Bandar\u00edkjunum, \u00fear sem konan m\u00edn vinnur vi\u00f0 ranns\u00f3knir fyrir\u00a0Duke\u00a0h\u00e1sk\u00f3la n\u00e6stu tv\u00f6 \u00e1rin.<\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p><em>En hvernig kynntist \u00fe\u00fa tr\u00fanni?<\/em><\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p>\u00c9g er uppalinn \u00ed Laugarneshverfinu me\u00f0 tveimur eldri br\u00e6\u00f0rum og yngri systur. \u00deegar \u00e9g var \u00ed kringum n\u00edu \u00e1ra aldurinn f\u00f3r \u00e9g a\u00f0 elta br\u00e6\u00f0ur m\u00edna \u00e1 yngri deildarfundi hj\u00e1 KFUM \u00e1 Kirkjuteignum, en \u00feeir voru \u00fe\u00e1 or\u00f0nir a\u00f0sto\u00f0arsveitarstj\u00f3rar. \u00c9g man a\u00f0 fundirnir voru \u00e1 laugardagsmorgnum kl. 11. Eitt \u00e1ri\u00f0 voru handbolta\u00e6fingar hj\u00e1 \u00c1rmanni l\u00edklega um kl. 10:00 og eftir \u00e6fingu stormu\u00f0um vi\u00f0 \u00far Sigt\u00faninu og ni\u00f0ur eftir Kirkjuteignum, reyndar i\u00f0ulega of seinir, en \u00fea\u00f0 var\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 stimpil \u00ed sk\u00edrteini\u00f0. \u00cd minningunni eru \u00fea\u00f0 sveitarstj\u00f3rarnir sem skiptu \u00f6llu m\u00e1li. \u00deegar \u00e9g s\u00e1 Stef\u00e1n Sandholt og Sigurbj\u00f6rn \u00deorkelsson spjalla saman \u00e1 hla\u00f0inu \u00ed Vatnask\u00f3gi \u00e1 S\u00e6lud\u00f6gum \u00ed sumar, fann\u00a0\u00e9g\u00a0hversu miki\u00f0 m\u00e9r finnst \u00e9g eiga \u00feeim a\u00f0 \u00feakka.<\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p>\u00c9g haf\u00f0i l\u00edka veri\u00f0 \u00ed sunnudagask\u00f3lanum \u00ed Laugarneskirkju sem barn og f\u00f3r \u00ed sumarb\u00fa\u00f0ir, b\u00e6\u00f0i \u00ed drengjaflokka \u00ed \u00d6lveri og \u00ed Vatnask\u00f3gi. L\u00edkt og me\u00f0 sveitarstj\u00f3rana \u00fe\u00e1 s\u00e9 \u00e9g enn foringjana m\u00edna \u00far sk\u00f3ginum \u00ed vissum d\u00fdr\u00f0arlj\u00f3ma. \u00dea\u00f0 er kannski frekar \u00ed gamni en alv\u00f6ru a\u00f0 \u00e9g segi a\u00f0 helsti hvatinn til \u00feess a\u00f0 l\u00e6ra \u00fe\u00f3 stundum heima \u00ed st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0i \u00ed fj\u00f3r\u00f0a bekk \u00ed MR, var a\u00f0 valda ekki kennaranum, Bjarna Gunnarssyni, vonbrig\u00f0um en hann haf\u00f0i veri\u00f0 foringinn minn \u00ed Vatnask\u00f3gi nokkrum \u00e1rum \u00e1\u00f0ur.<\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p><em>\u00c1 unglings\u00e1runum flutti Elli n\u00e1nast inn \u00e1 Holtaveg, helstu f\u00e9lagsmi\u00f0st\u00f6\u00f0 KFUM og KFUK. \u00dea\u00f0 var \u00e1\u00f0ur en byggt var vi\u00f0 gamla h\u00fasi\u00f0.<\/em><\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p>\u00dea\u00f0 var ekkert unglingastarf \u00e1 Kirkjuteignum \u00feegar \u00e9g komst \u00e1 fermingaraldur, en \u00de\u00f3runn\u00a0El\u00edd\u00f3ttir, H\u00f6r\u00f0ur Kjartansson, Au\u00f0ur P\u00e1lsd\u00f3ttir og fleira gott f\u00f3lk voru hins vegar me\u00f0 unglingadeild \u00ed KFUM og KFUK h\u00fasinu vi\u00f0 Holtaveg. \u00dea\u00f0 m\u00e1 e.t.v. segja a\u00f0 fr\u00e1 haustinu 1986 og til dagsins \u00ed dag hafi \u00e9g meira og minna veri\u00f0 \u00e1 Holtaveginum, nema \u00fe\u00e1 helst \u00e1 sumrin \u00feegar \u00e9g\u00a0f\u00f3r\u00a0\u00ed Vatnask\u00f3g. S\u00fa tr\u00faarlega m\u00f3tun sem \u00e1tti s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed starfinu\u00a0hj\u00e1\u00a0T\u00f3tu og\u00a0H\u00f6dda, haf\u00f0i mikil \u00e1hrif \u00e1 mig og um Verslunarmannahelgina 1987 \u00e1kva\u00f0 \u00e9g a\u00f0 spila me\u00f0 \u00ed li\u00f0i Gu\u00f0s. \u00cd dag\u00a0s\u00e9\u00a0\u00e9g hlutverk mitt sem\u00a0sem\u00a0framliggjandi mi\u00f0juma\u00f0ur. \u00c9g reyndar hleyp ekkert\u00a0s\u00e9rlega\u00a0miki\u00f0, en get\u00a0s\u00e9\u00f0\u00a0um a\u00f0 taka \u00e1 m\u00f3ti boltanum og senda hann \u00e1fram. Auk \u00feess sem \u00e9g hef \u00e1g\u00e6tan leikskilning. Reyndar hef \u00e9g ekki alltaf veri\u00f0 samm\u00e1la Skaparanum um li\u00f0suppstillinguna og hef svo sem rifist vi\u00f0 Gu\u00f0 um \u00fea\u00f0, en \u00e9g er sm\u00e1tt og sm\u00e1tt a\u00f0\u00a0l\u00e6ra\u00a0a\u00f0 \u00fea\u00f0 er ekki mitt a\u00f0 d\u00e6ma.<\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p><em>Vi\u00f0m\u00e6landi Bjarma kynntist fyrst Ella a\u00f0 einhverju r\u00e1\u00f0i \u00feegar \u00feeir unnu saman undir sama \u00feaki, hann fyrir Kristnibo\u00f0ssambandi\u00f0 og Elli fyrir Kristilegu sk\u00f3lahreyfinguna, KSH. \u00cd minningunni var Elli mj\u00f6g duglegur vi\u00f0 a\u00f0 koma m\u00e1lum \u00e1fram, hann s\u00e1 til \u00feess a\u00f0\u00a0hlutirnir ger\u00f0ust og\u00a0boltinn f\u00e6ri \u00e1fram.\u00a0\u00dear sem vi\u00f0 Elli spilum saman f\u00f3tbolta einu sinni \u00ed viku m\u00e1 \u00fea\u00f0 einnig fylgja me\u00f0 a\u00f0 \u00fear er Elli ekki s\u00ed\u00f0ur duglegur vi\u00f0 a\u00f0 senda boltann \u00e1fram.<\/em><\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p>A\u00f0 loknu st\u00fadentspr\u00f3fi vann \u00e9g einn vetur sem \u00e1rsma\u00f0ur hj\u00e1 KSH\u00a0me\u00f0an \u00e9g \u00e1tta\u00f0i mig \u00e1 framt\u00ed\u00f0inni. \u00c9g var um margt spenntur fyrir a\u00f0 fara \u00ed kennaran\u00e1m, en fannst l\u00edka a\u00f0 \u00e9g \u00feyrfti a\u00f0 n\u00fdta meinta h\u00e6fileika m\u00edna \u00ed st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0i. \u00cd mi\u00f0jum \u00feessum p\u00e6lingum enda\u00f0i \u00e9g \u00ed b\u00edl me\u00f0 dr. Einari Sigurbj\u00f6rnssyni sem \u00e9g \u00feekkti fremur l\u00edti\u00f0, en hann var a\u00f0 skutla m\u00e9r og einhverjum fleirum eitthvert sem \u00e9g man ekki hvert var. \u00cd \u00feessari stuttu b\u00edlfer\u00f0 sag\u00f0i dr. Einar m\u00e9r fr\u00e1 n\u00fdju n\u00e1mi vi\u00f0 gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ideildina, dj\u00e1knan\u00e1mi, og svo f\u00f3r a\u00f0 \u00e9g fann sterkt a\u00f0 deildin hef\u00f0i hafi\u00f0 \u00feetta n\u00e1m s\u00e9rstaklega fyrir mig. Svo a\u00f0 eftir tvo m\u00e1nu\u00f0i \u00ed st\u00e6r\u00f0fr\u00e6\u00f0i vi\u00f0 H\u00cd, flutti \u00e9g mig yfir Su\u00f0urg\u00f6tuna og h\u00f3f n\u00e1m vi\u00f0 gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ideildina. S\u00ed\u00f0an \u00fe\u00e1 hef \u00e9g gert f\u00e1tt nema mennta\u00f0 mig meira og meira, milli \u00feess sem \u00e9g vinn hj\u00e1 kirkjunni og\/e\u00f0a KFUM og KFUK.<\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p><em>\u00de\u00fa talar um n\u00e1m. Hva\u00f0 varstu a\u00f0 l\u00e6ra \u00ed Bandar\u00edkjunum?<\/em><\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p>\u00deegar spurt er um n\u00e1mi\u00f0 mitt \u00ed Bandar\u00edkjunum s\u00ed\u00f0ustu fimm \u00e1rin er ekki au\u00f0velt a\u00f0 svara. \u00c9g var ekki a\u00f0 l\u00e6ra til a\u00f0 f\u00e1 titil heldur skilning, \u00fe\u00f3 n\u00e1mi\u00f0 hafi reyndar skila\u00f0 tveimur meistaragr\u00e1\u00f0um. \u00deegar spurt er hvort \u00feekking m\u00edn fr\u00e1 BNA hafi erindi til \u00cdslands, hvort kirkjan \u00fear s\u00e9 ekki \u00f6\u00f0ruv\u00edsi en h\u00e9r og \u00f6nnur l\u00f6gm\u00e1l \u00ed gildi, \u00fe\u00e1 er svari\u00f0 b\u00e6\u00f0i j\u00e1 og nei.<\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p>Me\u00f0an \u00e9g var \u00ed n\u00e1minu \u00fati \u00fe\u00e1 s\u00e1 \u00e9g b\u00e6\u00f0i kirkjur \u00ed bestu hugsanlegu a\u00f0st\u00e6\u00f0um heg\u00f0a s\u00e9r \u00e1 versta hugsanlega h\u00e1tt, \u00ed sj\u00e1lfsupphafningu og sj\u00e1lfumgle\u00f0i. En \u00e9g s\u00e1 l\u00edka kirkju Krists a\u00f0 starfi \u00ed a\u00f0st\u00e6\u00f0um sem erfitt er a\u00f0 \u00edmynda s\u00e9r a\u00f0 nokkur manneskja e\u00f0a h\u00f3par s\u00e9u \u00ed, \u00fear sem kirkjan gaf sig a\u00f0 fullu fyrir a\u00f0ra, f\u00f3rna\u00f0i s\u00e9r \u00ed \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 n\u00e1ungann. \u00deessi s\u00fdn \u00e1 mismunandi heg\u00f0un kirkjunnar, mismunandi l\u00edfs\u00fdn f\u00f3lks sem kalla\u00f0i sig kristi\u00f0, hj\u00e1lpar m\u00e9r a\u00f0 spegla sj\u00e1lfan mig og heg\u00f0un m\u00edna og au\u00f0veldar m\u00e9r e.t.v. a\u00f0 greina kjarnann fr\u00e1 hisminu \u00feegar kemur a\u00f0 starfi h\u00e9r \u00e1 \u00cdslandi.<\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p>Sterkt kirkjul\u00edf \u00ed BNA byggir ekki fyrst og fremst \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00edb\u00faar \u00fear hafi sterkari tr\u00faarlegri \u00fe\u00f6rf en \u00edb\u00faar \u00ed Evr\u00f3pu svo d\u00e6mi s\u00e9 teki\u00f0. Kirkjul\u00edfi\u00f0 \u00ed BNA m\u00f3tast fremur af \u00fev\u00ed a\u00f0 fjarl\u00e6g\u00f0ir eru miklar og hugmyndin um st\u00f3rfj\u00f6lskylduna er mj\u00f6g veik. \u00deannig st\u00edgur kirkjan inn \u00ed hlutverk sem afi og amma, fr\u00e6ndur og fr\u00e6nkur hafa \u00e1 \u00cdslandi. \u00deegar vi\u00f0 fj\u00f6lskyldan \u00feurftum a\u00f0 leita eftir barnap\u00edu \u00ed BNA, fjarri \u00f6llum vinum og \u00e6ttingjum, \u00fe\u00e1 h\u00f6f\u00f0um vi\u00f0 samband vi\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 \u00ed kirkjunni okkar. \u00deegar erfi\u00f0leikar kn\u00fdja dyra, \u00fe\u00e1 eru \u00fea\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 \u00ed kirkjubekkjunum sem st\u00edgur fram og eldar mat og vitjar \u00e1 sj\u00fakrabe\u00f0inu. Verkefni sem s\u00f6gulega eru \u00e1 hendi st\u00f3rfj\u00f6lskyldunnar h\u00e9r \u00e1 \u00cdslandi. \u00deetta s\u00e9st au\u00f0vita\u00f0 l\u00edka \u00e1 styrk \u00edslensku safna\u00f0anna \u00e1 Nor\u00f0url\u00f6ndunum, sem margir \u00cdslendingar sem hafa fari\u00f0 til n\u00e1ms \u00fear \u00feekkja svo vel. Kirkjusamf\u00e9lagi\u00f0 tekur a\u00f0 s\u00e9r a\u00f0 hlutverk fj\u00f6lskyldunnar sem er svo fjarri.<\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p><em>Vi\u00f0 a\u00f0rar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur, hva\u00f0 getum vi\u00f0 l\u00e6rt\u00a0h\u00e9r heima?<\/em><\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p>\u00deessi skilningur \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagslegu hlutverki kirkjunnar hefur veitt m\u00e9r aukinn skilning \u00e1 \u00fev\u00ed hvers vi\u00f0 getum v\u00e6nst af kirkjustarfi \u00e1 \u00cdslandi og hva\u00f0 er \u00f3raunh\u00e6ft. For\u00f0a\u00f0 m\u00e9r fr\u00e1 a\u00f0 falla \u00ed \u00fe\u00e1 gryfju a\u00f0 halda a\u00f0 h\u00e6gt s\u00e9 a\u00f0 f\u00e6ra gagnr\u00fdnislaust vinnubr\u00f6g\u00f0 \u00ed BNA yfir hafi\u00f0 og halda a\u00f0 sl\u00edkt skili sama \u00e1rangri h\u00e9r og \u00fear. Kirkjan er hins vegar meira en samf\u00e9lagslegt fyrirb\u00e6ri og skilningur minn \u00e1 kirkjunni sem m\u00f3tssta\u00f0ar Gu\u00f0s og manneskja m\u00f3ta\u00f0ist g\u00edfurlega me\u00f0an \u00e9g dvaldist erlendis. \u00deannig vona \u00e9g a\u00f0 gl\u00edma m\u00edn \u00ed n\u00e1minu, \u00fear sem \u00e9g reyndi a\u00f0 skilja hvernig Gu\u00f0 m\u00e6tir manneskjum \u00ed samf\u00e9lagi heilagra komi a\u00f0 einhverjum notum \u00feegar kirkjan og kristni \u00e1 \u00cdslandi horfist \u00ed augu vi\u00f0 framt\u00ed\u00f0 s\u00edna.<\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p><em>Og n\u00fa ertu kominn til starfa \u00e1 vettvangi KFUM og KFUK, aftur kominn heim?<\/em><\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p>J\u00e1, \u00fear er \u00e9g n\u00fa. \u00cd g\u00f3\u00f0u samstarfi vi\u00f0 fr\u00e1b\u00e6rt f\u00f3lki \u00e1 \u00e6skul\u00fd\u00f0ssvi\u00f0i KFUM og KFUK \u00e1 \u00cdslandi, \u00feau Hj\u00f6rd\u00edsi R\u00f3s J\u00f3nsd\u00f3ttur, sr. J\u00f3n \u00d3mar Gunnarsson \u00e6skul\u00fd\u00f0sprest og J\u00f3hann \u00deorsteinsson, leitumst vi\u00f0 a\u00f0 sty\u00f0ja vi\u00f0 \u00f3s\u00e9rhl\u00edfna og \u00f6fluga sj\u00e1lfbo\u00f0ali\u00f0a \u00ed framvar\u00f0arsveit kristni \u00e1 \u00cdslandi. Vi\u00f0 spilum \u00e1 mi\u00f0junni og reynum eftir megni a\u00f0 senda boltann \u00e1fram \u00e1 s\u00f3knarleikmennina sem starfa me\u00f0 b\u00f6rnum og unglingum. H\u00e6fileikar\u00edkt f\u00f3lk sem leitast vi\u00f0 a\u00f0 skapa me\u00f0 Gu\u00f0s hj\u00e1lp, m\u00f3tssta\u00f0 Gu\u00f0s og manneskja \u00ed yfir 40 deildum um landi\u00f0 allt \u00ed hverri viku.<\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p><em>Hver er framt\u00ed\u00f0 \u00e6skul\u00fd\u00f0sstarfsins hj\u00e1 KFUM og KFUK?<\/em><\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p>\u00deegar spurt er um framt\u00ed\u00f0 kristilegs \u00e6skul\u00fd\u00f0sstarfs er \u00ed raun veri\u00f0 a\u00f0 spyrja um framt\u00ed\u00f0 kirkjunnar. Breytingar eru a\u00f0 eiga s\u00e9r sta\u00f0 og umr\u00e6\u00f0ur um sam\u00feykkt Borgarstj\u00f3rnar um samskipti tr\u00faf\u00e9laga og sk\u00f3la hafa l\u00edklegast ekki fari\u00f0 fram hj\u00e1 m\u00f6rgum lesendum Bjarma. Ein og s\u00e9r hefur sam\u00feykktin l\u00edklegast ekki mikil \u00e1hrif, nema a\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u \u00e1 \u00fathlutun G\u00eddeonf\u00e9lagsins. Hins vegar m\u00e1 vera lj\u00f3st a\u00f0 \u00feessi sam\u00feykkt endurspeglar breytingar \u00e1 \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0f\u00e9lagi, \u00fear sem kennsla b\u00e6na og tr\u00faarlegt uppeldi er ekki lengur \u00e1litin sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0 og e\u00f0lileg. \u00c9g er ekki viss um a\u00f0 \u00feessi breyting s\u00e9 nau\u00f0synlega sl\u00e6m fyrir kristni \u00e1 \u00cdslandi.<\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p><em>Hvernig \u00fe\u00e1?<\/em><\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p>\u00dea\u00f0 hefur lengi r\u00edkt sinnuleysi \u00ed tr\u00fam\u00e1lum \u00e1 \u00cdslandi, enda hefur kirkjan leitast vi\u00f0 a\u00f0 stu\u00f0a ekki, vera einhvers konar regnhl\u00edfarsamt\u00f6k afst\u00f6\u00f0uleysis og eftir m\u00e6tti reynt a\u00f0 a\u00f0lagast sinnulausum meirihlutanum. Kirkjan hefur \u00ed sta\u00f0inn haft a\u00f0gengi fyrir afst\u00f6\u00f0uleysi sitt \u00ed samf\u00e9laginu \u00ed heild. Vi\u00f0 sj\u00e1um aflei\u00f0ingu \u00feessa sinnuleysis \u00ed fullyr\u00f0ingum sumra \u00feeirra sem halda uppi \u201ev\u00f6rnum\u201c fyrir kirkjuna um a\u00f0 kristin bo\u00f0un \u00ed sk\u00f3lum s\u00e9 ska\u00f0laus og saklaus hef\u00f0 sem \u00f3\u00fearfi s\u00e9 a\u00f0 hr\u00f3fla vi\u00f0 og jafnvel a\u00f0 textar N\u00fdja testamentisins s\u00e9u n\u00fa ekki h\u00e6ttulegir neinum. Sta\u00f0reyndin er hins vegar s\u00fa a\u00f0 or\u00f0 Gu\u00f0s hefur \u00e1hrif, \u00fea\u00f0 er beitt og \u00f6flugt, \u00fea\u00f0 breytir l\u00edfi \u00feeirra sem m\u00e6ta n\u00e1\u00f0arkrafti Gu\u00f0s. \u00c9g er ekki viss um a\u00f0 margir samt\u00edmamenn Jes\u00fa hafi l\u00fdst honum sem bo\u00f0bera saklausra og ska\u00f0lausra hef\u00f0a. F\u00f3lk l\u00e6tur l\u00edfi\u00f0 vegna tr\u00faar sinnar \u00e1 bo\u00f0skap N\u00fdja testamentisins, framt\u00ed\u00f0 f\u00f3lks breytist vi\u00f0 snertingu Gu\u00f0s.<\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p><em>Hver s\u00e9r\u00f0u fyrir \u00fe\u00e9r a\u00f0 s\u00e9u vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 okkar?<\/em><\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p>N\u00fa er lag a\u00f0 breyta \u00feessari \u00fatv\u00f6tnu\u00f0u bo\u00f0un. Ef okkur sem kennum okkur vi\u00f0 Krist tekst\u00a0a\u00f0\u00a0r\u00edfa okkur \u00fat \u00far eymd sinnuleysisins, n\u00e1um a\u00f0 lyfta merki Krists \u00e1 loft og bo\u00f0a fagna\u00f0arerindi\u00f0 sem l\u00edfsbreytandi bo\u00f0skap \u00fe\u00e1 eru t\u00e6kif\u00e6rin endalaus. N\u00fa \u00feegar vi\u00f0 megum \u00f6ll vita a\u00f0 b\u00e6nir eru ekki kenndar \u00ed grunnsk\u00f3lum, fagna\u00f0arerindi\u00f0 er ekki bo\u00f0a\u00f0 b\u00f6rnum \u00ed sk\u00f3lunum, \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 okkar a\u00f0 st\u00edga fram.<\/p>\n<\/div>\n<div>\n<p>\u00c9g var a\u00f0 vinna \u00ed Vatnask\u00f3gi \u00ed sumar sem oft \u00e1\u00f0ur og \u00fea\u00f0 var magna\u00f0 a\u00f0 heyra drengina syngja af krafti s\u00e1lma\u00a0sr. Fri\u00f0riks og Bjarna Eyj\u00f3lfssonar \u00ed r\u00fatunni \u00e1 lei\u00f0inni heim \u00far sk\u00f3ginum. \u00c9g upplif\u00f0i \u00fear sterkt a\u00f0 framt\u00ed\u00f0 \u00e6skul\u00fd\u00f0sstarfsins felst ekki \u00ed leikjat\u00f6lvum og flottum gr\u00e6jum. Framt\u00ed\u00f0in felst \u00ed v\u00f6ndu\u00f0u starfi, \u00fear sem bo\u00f0i\u00f0 er upp \u00e1 kjarng\u00f3\u00f0a fr\u00e6\u00f0slu, skemmtilega samveru og n\u00e1nd vi\u00f0\u00a0fr\u00e1b\u00e6ra\u00a0lei\u00f0toga. Framt\u00ed\u00f0 \u00e6skul\u00fd\u00f0sstarfsins byggist \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 Stebbar, Sillar, Sibbar, T\u00f3tur, H\u00f6ddar, K\u00edur og Au\u00f0ar \u00e1 \u00f6llum aldri heyri kall Gu\u00f0s til \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 b\u00f6rn og unglinga, kenni \u00feeim b\u00e6nir og segi \u00feeim fr\u00e1 fagna\u00f0arerindinu um\u00a0n\u00e1\u00f0\u00a0Gu\u00f0s og k\u00e6rleika.<\/p>\n<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00deegar \u00e9g kom til starfa hj\u00e1 KFUM og KFUK \u00e1 \u00cdslandi fyrir r\u00famum tveimur \u00e1rum t\u00f3k Ragnar Gunnarsson vi\u00f0tal vi\u00f0 mig fyrir Bjarma &#8211; t\u00edmarit um kristna tr\u00fa. \u00c9g rakst \u00e1 vi\u00f0tali\u00f0 vi\u00f0 tiltekt \u00ed skj\u00f6lunum m\u00ednum \u00ed t\u00f6lvunni og datt \u00ed hug a\u00f0 birta \u00fea\u00f0 h\u00e9r. \u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 \u00e9g hafi staldra\u00f0 styttra vi\u00f0 &hellip; <a href=\"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/2013\/11\/08\/get-sed-um-ad-taka-a-moti-boltanum-og-senda-hann-afram\/\" class=\"more-link\">Continue reading <span class=\"screen-reader-text\">\u201eGet s\u00e9\u00f0 um a\u00f0 taka \u00e1 m\u00f3ti boltanum og senda hann \u00e1fram\u201c<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[63,87,95,97,105,127,145,168],"class_list":["post-5299","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-islenska","tag-family","tag-iceland","tag-kfumk","tag-leadership","tag-mission","tag-religion","tag-state-church","tag-youthwork"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5299","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=5299"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/5299\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=5299"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=5299"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=5299"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}