{"id":4336,"date":"2012-11-11T21:22:11","date_gmt":"2012-11-11T21:22:11","guid":{"rendered":"http:\/\/igrundun.wordpress.com\/?p=4336"},"modified":"2012-11-11T21:22:11","modified_gmt":"2012-11-11T21:22:11","slug":"ad-eiga-umhyggju-jesu-gagnvart-hinum-thurfandi","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/2012\/11\/11\/ad-eiga-umhyggju-jesu-gagnvart-hinum-thurfandi\/","title":{"rendered":"A\u00f0 eiga umhyggju Jes\u00fa gagnvart hinum \u00feurfandi"},"content":{"rendered":"<p><em>\u2013 R\u00e6\u00f0a \u00e1 samkomu KFUM og KFUK \u00ed Reykjav\u00edk sunnudaginn 11. n\u00f3vember 2012 kl. 20:00.<\/span><\/em><\/p>\n<blockquote><p>Jes\u00fas f\u00f3r n\u00fa um allar borgir og \u00feorp og kenndi \u00ed samkundum \u00feeirra. Hann flutti fagna\u00f0arerindi\u00f0 um r\u00edki\u00f0 og l\u00e6kna\u00f0i hvers kyns sj\u00fakd\u00f3m og veikindi. En er Jes\u00fas s\u00e1 mannfj\u00f6ldann kenndi hann \u00ed brj\u00f3sti um hann \u00fev\u00ed menn voru hrj\u00e1\u00f0ir og umkomulausir eins og sau\u00f0ir er engan hir\u00f0i hafa.\u00a0\u00de\u00e1 sag\u00f0i hann vi\u00f0 l\u00e6risveina s\u00edna: \u201eUppskeran er mikil en verkamenn f\u00e1ir.\u00a0Bi\u00f0ji\u00f0 \u00fev\u00ed Drottin uppskerunnar a\u00f0 senda verkamenn til uppskeru sinnar.\u201c (Mt 9.35-38)<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00dea\u00f0 kom s\u00edmtal \u00ed vinnuna m\u00edna \u00e1 f\u00f6studaginn. \u00dea\u00f0 koma reyndar m\u00f6rg s\u00edmt\u00f6l \u00ed vinnuna m\u00edna \u00e1 hverjum degi, en \u00feetta s\u00edmtal var svol\u00edti\u00f0 \u00e1hugavert. \u00cd s\u00edmanum var \u00f3\u00e1n\u00e6g\u00f0ur einstaklingur, fannst eins og KFUM og KFUK hef\u00f0i brug\u00f0ist og sinnti ekki hlutverki s\u00ednu n\u00e6gilega vel.<!--more--><\/p>\n<p>\u00c9g g\u00e6ti svo sem teki\u00f0 undir \u00fe\u00e1 fullyr\u00f0ingu \u00e1 margv\u00edslegum mismunandi forsendum og r\u00e6tt um \u00fea\u00f0 vel og lengi, enda er \u00e9g \u00e1 engan h\u00e1tt \u00f3n\u00e6mur fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00ed hverri viku er h\u00e6gt a\u00f0 breyta, b\u00e6ta og gera betur \u00ed starfinu okkar. \u00c1st\u00e6\u00f0ur \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 st\u00f6ndum okkur ekki betur eru l\u00edka \u00f3teljandi.<\/p>\n<p>Kannski lenti \u00e9g \u00e1 spjalli fram eftir n\u00f3ttu og var ekki n\u00e6gilega vel upplag\u00f0ur \u00feegar \u00e9g sat \u00e1 hugmyndafundi um framkv\u00e6md einstakra \u00fe\u00e1tta og framt\u00ed\u00f0ars\u00fdn \u00ed deildarstarfinu.<\/p>\n<p>Kannski \u00e1kva\u00f0 sj\u00e1lfbo\u00f0ali\u00f0i \u00ed deildarstarfinu a\u00f0 skr\u00f3pa \u00e1 fund og fara frekar me\u00f0 vinum s\u00ednum \u00ed b\u00ed\u00f3, n\u00fa a\u00f0 \u00feurfti einfaldlega a\u00f0 sinna veiku barni og \u00fev\u00ed vanta\u00f0i lei\u00f0toga \u00e1 fund einhvers sta\u00f0ar sem hef\u00f0i breytt \u00f6llu.<\/p>\n<p>Kannski voru lei\u00f0togarnir sem bu\u00f0u sig fram til starfa, ungir og \u00f3reyndir og ekki b\u00fanir a\u00f0 l\u00e6ra a\u00f0 breg\u00f0ast r\u00e9tt vi\u00f0 einhverjum a\u00f0st\u00e6\u00f0um. \u00c1st\u00e6\u00f0urnar eru \u00f3teljandi fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 KFUM og KFUK bregst \u00ed verkefnunum s\u00ednum.<\/p>\n<p>\u00c1st\u00e6\u00f0a s\u00edmtalsins var samt enginn af \u00feessum.<\/p>\n<p>Nei, \u00feannig var a\u00f0 vi\u00f0m\u00e6landinn haf\u00f0i sent maka sinn me\u00f0 nokkra j\u00f3lask\u00f3kassapakka inn \u00e1 Holtaveg. \u00c1 sv\u00e6\u00f0inu voru fyrir nokkur hundru\u00f0 leiksk\u00f3lab\u00f6rn og \u00ed \u00f6llum hamaganginum haf\u00f0i maki vi\u00f0m\u00e6landans fari\u00f0 me\u00f0 pakkana \u00e1 vitlausan sta\u00f0 \u00ed h\u00fasinu. \u00dear var enginn sem \u00feakka\u00f0i n\u00e6gilega vel fyrir alla \u00fe\u00e1 fyrirh\u00f6fn sem \u00feau hj\u00f3n h\u00f6f\u00f0u lagt \u00e1 sig vi\u00f0 a\u00f0 \u00fatb\u00faa nokkra j\u00f3lapakka.<\/p>\n<p>KFUM og KFUK gleymdi a\u00f0 \u00feakka f\u00f3lkinu sem haf\u00f0i lagt \u00e1 sig erfi\u00f0i og \u00f3\u00fe\u00e6gindi vi\u00f0 a\u00f0 gle\u00f0ja a\u00f0ra.<\/p>\n<p>Vissulega er \u00fea\u00f0 r\u00e9tt a\u00f0 \u00fea\u00f0 er mikilv\u00e6gt a\u00f0 \u00feakka. A\u00f0 sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0u er nau\u00f0synlegt a\u00f0 muna a\u00f0 segja takk. Au\u00f0vita\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 yndislegt a\u00f0 vi\u00f0komandi hef\u00f0i fengi\u00f0 mi\u00f0a me\u00f0 uppl\u00fdsingum um verkefni\u00f0 og or\u00f0i\u00f0 takk, skrifa\u00f0 \u00e1 \u00fakra\u00ednsku. \u00dea\u00f0 hef\u00f0i veri\u00f0 fr\u00e1b\u00e6rt ef a\u00f0 merkingar \u00e1 Holtaveginum hef\u00f0u veri\u00f0 a\u00f0eins betri, sj\u00e1lfbo\u00f0ali\u00f0arnir fleiri og makinn hef\u00f0i rata\u00f0 \u00e1 r\u00e9ttan sta\u00f0 og fengi\u00f0 betri m\u00f3tt\u00f6kur.<\/p>\n<p>L\u00edklega \u00feurfti \u00feetta f\u00f3lk \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 halda a\u00f0 einhver seg\u00f0i a\u00f0 \u00feau v\u00e6ru fr\u00e1b\u00e6r, en \u00fea\u00f0 var samt eitthva\u00f0 skr\u00edti\u00f0 vi\u00f0 \u00feetta s\u00edmtal.<\/p>\n<p style=\"text-align:center\">&#8212;<\/p>\n<p>\u00deau eru h\u00f6f\u00f0 eftir M\u00f3\u00f0ur Teresu, or\u00f0in:<\/p>\n<blockquote><p>Vi\u00f0 h\u00f6ldum a\u00f0 f\u00e1t\u00e6kt felist einv\u00f6r\u00f0ungu \u00ed hungri, nekt og heimilisleysi. S\u00fa f\u00e1t\u00e6kt a\u00f0 vera afskiptur, \u00e1n \u00e1star og \u00e1n umhyggju er mesta f\u00e1t\u00e6ktin. Vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 byrja heima til brj\u00f3tast \u00far \u00feeirri f\u00e1t\u00e6kt.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00c9g vitna oft \u00ed Gunnar Elstad \u00feegar \u00e9g kenni um k\u00f6llun og samskipti, en \u00ed einni b\u00f3k sinni talar hann \u00e1 svipu\u00f0um n\u00f3tum og m\u00f3\u00f0ir Teresa. \u00dear heldur Gunnar \u00fev\u00ed fram a\u00f0 vi\u00f0 s\u00e9um s\u00edfellt a\u00f0 leita svara vi\u00f0 \u00feremur spurningum bernskunnar.<\/p>\n<ul>\n<li>Elskar mig einhver?<\/li>\n<li>Vill einhver leika vi\u00f0 mig?<\/li>\n<li>Get \u00e9g gert gagn?<\/li>\n<\/ul>\n<p>Gunnar segir a\u00f0 ef vi\u00f0 h\u00f6fum fengi\u00f0 neikv\u00e6\u00f0 sv\u00f6r vi\u00f0 \u00feessum spurningum \u00ed bernsku, og \u00fea\u00f0 \u00e1 vi\u00f0 um flesta, \u00fe\u00e1 gl\u00edmum vi\u00f0 vi\u00f0 \u00fe\u00e6r allt l\u00edfi\u00f0. Gl\u00edman vi\u00f0 \u00feessar spurningar s\u00e9 nau\u00f0synleg til a\u00f0 vi\u00f0 getum n\u00e1\u00f0 auknum \u00feroska og tekist \u00e1 vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem m\u00f3tar l\u00edf okkar.<\/p>\n<p>\u00c1stin, umhyggjan, afskiptaleysi\u00f0, tilgangurinn me\u00f0 l\u00edfinu. Allt eru \u00feetta grundvallandi \u00fe\u00e6ttir sem m\u00f3ta og segja okkur hver vi\u00f0 erum. Fylgja okkur \u00feegar vi\u00f0 gl\u00edmum vi\u00f0 k\u00f6llun Jes\u00fa \u00ed or\u00f0unum, \u201eUppskeran er mikil, verkamennirnir f\u00e1ir.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd svari okkar vi\u00f0 kalli Krists eru e\u00f0a alla vega geta veri\u00f0 undirliggjandi vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 vi\u00f0 spurningunum sem Gunnar Elstad spyr. Grunn\u00fearfir okkar fyrir \u00e1st, umhyggju, afskipti og tilgang m\u00f3ta me\u00f0vita\u00f0 e\u00f0a \u00f3me\u00f0vita\u00f0 viljann til a\u00f0 fara og starfa. \u00deannig er mikilv\u00e6gt a\u00f0 staldra vi\u00f0 k\u00f6llun okkar me\u00f0 reglubundnum h\u00e6tti og spyrja hva\u00f0a \u00fearfir er \u00e9g a\u00f0 uppfylla, af hverju f\u00f3r \u00e9g af sta\u00f0. \u00dea\u00f0 er forsenda \u00feess a\u00f0 starfa fyrir Gu\u00f0sr\u00edki\u00f0 a\u00f0 \u00feora a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 hugmyndir og v\u00e6ntingar sj\u00e1lfra okkar.<\/p>\n<p>Hvort sem a\u00f0 hvatinn til starfa er leit a\u00f0 vi\u00f0urkenningu, \u00fe\u00f6rfin til a\u00f0 gera gagn, launin e\u00f0a \u00fe\u00f6rf fyrir a\u00f0 r\u00e1\u00f0a, er mikilv\u00e6gt a\u00f0 vi\u00f0 st\u00f6ldrum vi\u00f0 og spyrjum okkur, gerum okkur grein fyrir hvatanum og endursko\u00f0um hugmyndir okkar og k\u00f6llun reglulega.<\/p>\n<p>Reyndar er til \u00fea\u00f0 sem \u00e9g vel a\u00f0 kalla fj\u00f3r\u00f0a hvatann, \u00fea\u00f0 sem \u00e9g nefndi er \u00e9g tala\u00f0i um \u00fe\u00f6rfina fyrir a\u00f0 r\u00e1\u00f0a. S\u00e1 hvati er bein aflei\u00f0ing syndafallsins. Valdaf\u00edkn og \u00fe\u00f6rfin fyrir a\u00f0 r\u00e1\u00f0skast me\u00f0 a\u00f0ra getur kalla\u00f0 einstaklinga til starfa, s\u00e9rstaklega \u00fear samskiptareglur eru \u00f3sk\u00fdrar og allir vilja vera g\u00f3\u00f0ir (lesist kirkjan og tr\u00faarleg f\u00e9lagasamt\u00f6k). \u00deegar fj\u00f3r\u00f0i hvatinn liggur til grundvallar verkum okkar er h\u00e6tt vi\u00f0 skelfilegum aflei\u00f0ingum, fyrir alla.<\/p>\n<p>Ef \u00fe\u00f6rfin fyrir v\u00f6ld st\u00fdrir gj\u00f6r\u00f0um okkar, \u00fe\u00e1 vona \u00e9g a\u00f0 einhver hafi \u00feroska og kraft til a\u00f0 gr\u00edpa inn \u00ed a\u00f0st\u00e6\u00f0ur og st\u00f6\u00f0va ska\u00f0ann, en \u00fea\u00f0 er efni \u00ed a\u00f0ra r\u00e6\u00f0u og n\u00f3g um \u00fea\u00f0 h\u00e9r.<\/p>\n<p>Umhyggju Jes\u00fa er annars e\u00f0lis. Umhyggja Jes\u00fa sn\u00fdst ekki um uppfyllingu v\u00e6ntinga okkar. Skyndilega erum vi\u00f0 ekki a\u00f0 leitast vi\u00f0 a\u00f0 f\u00e1 vi\u00f0urkenningu \u00e1 gj\u00f6r\u00f0um okkar, vi\u00f0 erum ekki a\u00f0 leita a\u00f0 \u00e1st og umhyggju, vi\u00f0 erum ekki a\u00f0 bi\u00f0ja um \u00feakkir.<\/p>\n<p>Nei, \u00ed umhyggju Krists felst \u00feakkl\u00e6ti fyrir \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 h\u00f6fum n\u00fa \u00feegar. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 \u00fej\u00f3na til a\u00f0 f\u00e1 \u00feakkir, \u00fe\u00e1 \u00fej\u00f3num vi\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 erum n\u00fa \u00feegar \u00feakkl\u00e1t.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er nefnilega svo a\u00f0 Fagna\u00f0arerindi\u00f0 um dau\u00f0a og upprisu Jes\u00fa Krists felst ekki \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 skiptum m\u00e1li af \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 gerum yndislega hluti. Svo sannarlega ekki.<\/p>\n<p>Fagna\u00f0arerindi\u00f0 um Jes\u00fa Krist segir okkur a\u00f0 vi\u00f0 skiptum m\u00e1li, s\u00e9um \u00f3endanlega d\u00fdrm\u00e6t \u00ed augum skapara okkar, burts\u00e9\u00f0 fr\u00e1 gj\u00f6r\u00f0um okkar. Vi\u00f0 upplifum hins vegar hversu st\u00f3rkostlegt \u00fea\u00f0 er a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 gera yndislega hluti fyrir skaparann og sk\u00f6pun hans.<\/p>\n<p>Svo \u00e9g endurtaki mig. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 \u00fej\u00f3na til a\u00f0 f\u00e1 \u00feakkir, \u00fe\u00e1 \u00fej\u00f3num vi\u00f0 vegna \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 erum n\u00fa \u00feegar \u00feakkl\u00e1t.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er au\u00f0velt a\u00f0 gleyma \u00feessu, \u00dea\u00f0 getur veri\u00f0 b\u00e6\u00f0i drulluerfitt, lei\u00f0inlegt og pirrandi a\u00f0 vera st\u00f6\u00f0ugt \u00feakkl\u00e1tur, a\u00f0 gera g\u00f3\u00f0a hluti fyrir Gu\u00f0sr\u00edki\u00f0. Vi\u00f0 sj\u00e1um \u00fea\u00f0 t.d. \u00ed l\u00edfi og starfi Jerem\u00eda sp\u00e1manns, sem upplif\u00f0i st\u00f6\u00f0uglega pyntingar og dau\u00f0ah\u00f3tanir vegna tilrauna sinna til a\u00f0 gera \u00fea\u00f0 sem r\u00e9tt var \u00ed augum Gu\u00f0s. N\u00fa e\u00f0a \u00e9g g\u00e6ti bent \u00e1 l\u00edf Jes\u00fa Krists sj\u00e1lfs, sem var tekinn af l\u00edfi vegna sko\u00f0ana sinna, vegna \u00f3gnarinnar sem r\u00e1\u00f0amenn upplif\u00f0u vegna \u00e1kallsins um Gu\u00f0s r\u00edki h\u00e9r \u00e1 j\u00f6r\u00f0u.<\/p>\n<p>H\u00e9r langar mig a\u00f0 skj\u00f3ta inn. A\u00f0 starfa \u00ed \u00feakkl\u00e6ti, a\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00f6\u00f0rum \u00ed von um uppfyllingu Gu\u00f0sr\u00edkisins, kallar okkur ekki einv\u00f6r\u00f0ungu til a\u00f0 \u00fej\u00f3na einstaklingum, gefa \u00feeim a\u00f0 bor\u00f0a, hj\u00e1lpa \u00feeim me\u00f0 h\u00fasaskj\u00f3l, veita \u00e1st og umhyggju. Umhyggja \u00ed anda Jes\u00fa Krists er \u00f3hr\u00e6dd vi\u00f0 a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast gegn kerfisbundnu misr\u00e9tti, gagnr\u00fdna \u00fe\u00e1 sem eru jafnari en a\u00f0rir og hr\u00f3pa \u00e1 r\u00e9ttl\u00e6ti \u00f6llum til handa. \u00deetta m\u00e1 sj\u00e1 \u00ed m\u00e1li Jes\u00fa t.d. gagnvart tr\u00faarlegum yfirv\u00f6ldum, m.a. \u00ed musterinu (sbr. s\u00f6guna um f\u00e1t\u00e6ku ekkjuna).<\/p>\n<p>\u00deegar vi\u00f0 missum sj\u00f3nar \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 umhyggja \u00ed anda Jes\u00fa Krists felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 ganga fram og starfa \u00ed trausti til Gu\u00f0s og \u00ed \u00feakkl\u00e6ti fyrir n\u00e1\u00f0arverk Jes\u00fa Krists, \u00fe\u00e1 endum vi\u00f0 oft \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 anna\u00f0 tveggja, gr\u00edpa til glimmerpokans e\u00f0a fl\u00fdja af h\u00f3lmi.<\/p>\n<p>Glimmerpokinn getur hj\u00e1lpa\u00f0 um stund, ef vi\u00f0 missum sj\u00f3nar \u00e1 \u00fev\u00ed hver vi\u00f0 erum. Hann er reyndar nau\u00f0synlegur \u00feegar vi\u00f0 gleymum a\u00f0 vi\u00f0 erum k\u00f6llu\u00f0 til a\u00f0 starfa \u00ed \u00feakkl\u00e6ti en ekki til a\u00f0 f\u00e1 \u00feakkl\u00e6ti. Glimmerpokinn b\u00fdr nefnilega yfir undram\u00e6tti. Hann skapar \u00feakkir \u00ed okkar gar\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deegar vi\u00f0 missum sj\u00f3nar af \u00fev\u00ed hver vi\u00f0 erum, hvers vegna vi\u00f0 st\u00f6rfum, \u00fe\u00e1 er einfaldlega h\u00e6gt a\u00f0 stinga hendinni ni\u00f0ur \u00ed pokann, taka upp handfylli af glimmerflygsum og kasta upp \u00ed loft. Skyndilega glitra st\u00f6rfin okkar og f\u00f3lk flykkist a\u00f0 og \u00feakkar okkur fyrir a\u00f0 gera vel. N\u00e6st \u00feegar vi\u00f0 erum vi\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 gefast upp, \u00fe\u00e1 er hendinni stungi\u00f0 aftur \u00ed pokann og meira glimmer kasta\u00f0.<\/p>\n<p>Glimmerpokinn er \u00e1kall \u00e1 \u00feakkl\u00e6ti, andst\u00e6\u00f0a fullvissunnar um a\u00f0 Gu\u00f0 hafi gefi\u00f0 okkur allt. Andst\u00e6\u00f0a \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 megum lifa \u00ed trausti til g\u00f3\u00f0s Gu\u00f0s, andst\u00e6\u00f0a \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 megum lifa \u00ed \u00feakkl\u00e6ti til frelsarans sem lif\u00f0i, var krossfestur og reis upp fr\u00e1 dau\u00f0um.<\/p>\n<p>Glimmerpokinn er andst\u00e6\u00f0a umhyggju Jes\u00fa Krists sem starfar \u00ed \u00feakkl\u00e6ti, \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 starfa til a\u00f0 f\u00e1 \u00feakkir.<\/p>\n<p style=\"text-align:center\">&#8212;<\/p>\n<p>Aftur a\u00f0 s\u00edmtalinu sem \u00e9g sag\u00f0i fr\u00e1 \u00ed upphafi. Kannski var \u00fea\u00f0 sem var skr\u00edti\u00f0 vi\u00f0 s\u00edmtali\u00f0, a\u00f0 \u00e9g velti fyrir m\u00e9r hvort \u00fea\u00f0 g\u00e6ti veri\u00f0 \u00e9g sem var \u00e1 hinum endanum.<\/p>\n<p>Kannski var \u00e9g skelka\u00f0ur yfir a\u00f0 s\u00edmtali\u00f0 sem \u00e9g nefndi h\u00e9r \u00ed upphafi g\u00e6ti komi\u00f0 fr\u00e1 m\u00e9r sj\u00e1lfum, sitjandi \u00e1 g\u00f3lfinu \u00ed n\u00fdja flotta \u00e6skul\u00fd\u00f0ssalnum \u00ed KFUM og KFUK h\u00fasinu \u00e1 Holtavegi, me\u00f0 t\u00f3man glimmerpoka, glitrandi fliksur \u00e1 g\u00f3lfinu og enga unglinga \u00e1 \u00e6skul\u00fd\u00f0sfundi, hr\u00f3pandi \u00fat \u00ed t\u00f3mi\u00f0: \u00c9g er g\u00f3\u00f0ur, \u00e9g geri gagn, \u00e9g skipti m\u00e1li. Er \u00fea\u00f0 ekki?<\/p>\n<p><em>Bi\u00f0jum&#8230;<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u2013 R\u00e6\u00f0a \u00e1 samkomu KFUM og KFUK \u00ed Reykjav\u00edk sunnudaginn 11. n\u00f3vember 2012 kl. 20:00. Jes\u00fas f\u00f3r n\u00fa um allar borgir og \u00feorp og kenndi \u00ed samkundum \u00feeirra. Hann flutti fagna\u00f0arerindi\u00f0 um r\u00edki\u00f0 og l\u00e6kna\u00f0i hvers kyns sj\u00fakd\u00f3m og veikindi. En er Jes\u00fas s\u00e1 mannfj\u00f6ldann kenndi hann \u00ed brj\u00f3sti um hann \u00fev\u00ed menn voru hrj\u00e1\u00f0ir &hellip; <a href=\"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/2012\/11\/11\/ad-eiga-umhyggju-jesu-gagnvart-hinum-thurfandi\/\" class=\"more-link\">Continue reading <span class=\"screen-reader-text\">A\u00f0 eiga umhyggju Jes\u00fa gagnvart hinum \u00feurfandi<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[37,95,97,105,147,150,168],"class_list":["post-4336","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-islenska","tag-counseling","tag-kfumk","tag-leadership","tag-mission","tag-storytelling","tag-teaching","tag-youthwork"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4336","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=4336"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/4336\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=4336"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=4336"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=4336"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}