{"id":3930,"date":"2012-04-16T22:44:02","date_gmt":"2012-04-16T22:44:02","guid":{"rendered":"https:\/\/ispeculate.wpmudev.host\/main\/?p=3930"},"modified":"2012-04-16T22:44:02","modified_gmt":"2012-04-16T22:44:02","slug":"truin-a-gud-unglingar-og-throski","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/2012\/04\/16\/truin-a-gud-unglingar-og-throski\/","title":{"rendered":"Tr\u00fain \u00e1 Gu\u00f0, unglingar og \u00feroski"},"content":{"rendered":"<p><em>Innlegg fyrir foreldra fermingarbarna \u00e1 fr\u00e6\u00f0slukv\u00f6ldi, l\u00edklega \u00ed Grens\u00e1skirkju, fyrir 10 \u00e1rum. L\u00edtillega laga\u00f0 me\u00f0 tilliti til auglj\u00f3sra villna. \u00deegar tala\u00f0 er um Gu\u00f0str\u00fa, tr\u00fa og tr\u00faarvissu, er a\u00f0 alltaf \u00e1tt vi\u00f0 kristna tr\u00fa eins og h\u00fan er bo\u00f0u\u00f0 \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0kirkjunni.<\/em><\/p>\n<p>\u201eHver er \u00e9g?\u201c og \u201eTil hvers er \u00e9g?\u201c eru grundvallarspurningar unglings\u00e1ranna. Sem unglingar uppg\u00f6tvum vi\u00f0 a\u00f0 foreldrar okkar eru ekki fullkomin. Heimurinn er ekki eins einfaldur og vi\u00f0 h\u00e9ldum sem b\u00f6rn.<!--more--><\/p>\n<p>Me\u00f0 skilningnum um \u00fea\u00f0 a\u00f0 foreldrar eru ekki alvaldir og fullkomnir koma inn efasemdirnar um Gu\u00f0, um alm\u00e6tti\u00f0, \u00fea\u00f0 sem sk\u00fdrir \u00fat \u00feennan heim. Hver er \u00feessi Gu\u00f0? Hver stj\u00f3rnar \u00feessu \u00f6llu saman?<\/p>\n<p>\u00c1 unglings\u00e1runum er byrja\u00f0 a\u00f0 kenna um Darwin og \u00fer\u00f3unarkenninguna sem lei\u00f0ir til \u00f3umfl\u00fdjanlegra \u00e1rekstra milli hlutbundins sk\u00f6punarskilnings barnsins og \u00fer\u00f3unarkenningarinnar. Fyrir h\u00e1degi er \u00fea\u00f0 Darwin \u00ed l\u00edffr\u00e6\u00f0i og eftir h\u00e1degi 1.M\u00f3seb\u00f3k og misvel \u00fatsk\u00fdr\u00f0 Sk\u00f6punarsagan \u00ed Fermingarfr\u00e6\u00f0slunni.<\/p>\n<p>Hvernig er h\u00e6gt a\u00f0 h\u00f6ndla \u00feetta? Unglingar eru a\u00f0 m\u00f3ta getuna til a\u00f0 hugsa hugl\u00e6gt, r\u00e6\u00f0a heimspekilega og skilja l\u00edkingar sem ekki sn\u00faast um hluti heldur hugt\u00f6k. Getan til a\u00f0 sj\u00e1 heiminn ekki bara me\u00f0 eigin augum heldur til a\u00f0 setja sig \u00ed spor annarra tekur st\u00f3rst\u00edgum framf\u00f6rum. Getan til a\u00f0 hugsa hugl\u00e6gt hj\u00e1lpar unglingum til a\u00f0 setja sig \u00ed spor annarra og \u00e1lykta hvernig \u00fea\u00f0 hugsar, hvernig \u00fev\u00ed l\u00ed\u00f0ur.<\/p>\n<p>Spurningarnar vakna: Hver er \u00e9g? Til hvers er \u00e9g? Hver er \u00feessi Gu\u00f0? E\u00f0a er hann e.t.v. ekki til?<\/p>\n<p><strong>\u00deekking &#8211; Skilningur &#8211; Upplifun<\/strong><\/p>\n<p>\u00c9g tel \u00fea\u00f0 gagnlegt \u00ed okkar samtali a\u00f0 skipta Gu\u00f0str\u00fa unglinga \u00ed \u00ferj\u00e1 \u00fe\u00e6tti, <em>\u00feekkingu<\/em>, <em>skilning<\/em> og <em>upplifun<\/em>.<\/p>\n<ul>\n<li><em>\u00deekking<\/em> er \u00feannig \u00e1kve\u00f0in kunn\u00e1tta sem vi\u00f0 tengjum tr\u00fanni \u00e1 Gu\u00f0. \u00dea\u00f0 a\u00f0 kunna Fa\u00f0ir Vori\u00f0, Tr\u00faarj\u00e1tninguna, \u00feekkja s\u00f6guna um t\u00fdnda soninn o.s.frv.<\/li>\n<li><em>Skilningur<\/em> er \u00fe\u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 skilja merkingu Fa\u00f0ir vorsins og Tr\u00faarj\u00e1tningarinnar \u00e1samt \u00fev\u00ed a\u00f0 skilja hva\u00f0 Jes\u00fas kennir okkur me\u00f0 s\u00f6gunni um t\u00fdnda soninn.<\/li>\n<li>\u00deri\u00f0ji \u00fe\u00e1tturinn, <em>upplifunin<\/em> er \u00fe\u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 fara me\u00f0 Fa\u00f0ir Vor og vita Gu\u00f0 sem hlustanda, j\u00e1ta tr\u00fa s\u00edna me\u00f0 or\u00f0um Tr\u00faarj\u00e1tningarinnar og treysta \u00feessum Gu\u00f0i e\u00f0a finna sig \u00ed hlutverki einhverrar pers\u00f3nu s\u00f6gunnar um t\u00fdnda soninn.<\/li>\n<\/ul>\n<p>Tveir s\u00ed\u00f0arnefndu \u00fe\u00e6ttirnir byggja \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 unglingurinn geti hugsa\u00f0 hugl\u00e6gt. Hann geti tileinka\u00f0 s\u00e9r hugt\u00f6k eins og fyrirgefning og k\u00e6rleikur \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00feurfa a\u00f0 tengja \u00feau vi\u00f0 \u00e1kve\u00f0na atbur\u00f0i. Einnig gerir upplifunin \u00fe\u00e1 kr\u00f6fu til einstaklingsins a\u00f0 hann geti sett sig \u00ed spor annarra, geti \u00e1likta\u00f0 um hvernig a\u00f0rir hugsa og l\u00ed\u00f0ur.<\/p>\n<p>\u00dear me\u00f0 er ekki sagt a\u00f0 b\u00f6rn sem ekki hafa \u00f6\u00f0last \u00feessa f\u00e6rni geti ekki tr\u00faa\u00f0. \u00de\u00f3 er lj\u00f3st er a\u00f0 tr\u00fa \u00feeirra sem yngri eru, barnatr\u00fain, hv\u00edlir \u00e1 annars konar grunni, grunni barnslegrar einl\u00e6gni og takmarkalausts tr\u00fana\u00f0artrausts til \u00feeirra sem liti\u00f0 er upp til. Or\u00f0 Jes\u00fa Krists s\u00e1 sem ekki komi \u00ed Gu\u00f0s r\u00edki sem barn muni ekki inn \u00ed \u00fea\u00f0 koma, v\u00edsar til \u00feessa tr\u00fana\u00f0artrausts.<\/p>\n<p>Til a\u00f0 tr\u00fa unglings \u00feroskist \u00fearf \u00fev\u00ed a\u00f0 hj\u00e1lpa honum til a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 efasemdarspurningar um Gu\u00f0, l\u00edfi\u00f0 og tilveruna og hj\u00e1lpa honum til a\u00f0 or\u00f0a hugsanir s\u00ednar og l\u00ed\u00f0an.<\/p>\n<p>Til a\u00f0 au\u00f0velda unglingi \u00feetta er mikilv\u00e6gt a\u00f0 hann hafi yfir a\u00f0 r\u00e1\u00f0a \u00feeim t\u00e6kjum sem nau\u00f0synleg eru til a\u00f0 fjalla um Gu\u00f0. En \u00feau eru helst, tr\u00faarlegt tungutak\/tr\u00faarlegur or\u00f0afor\u00f0i og b\u00e6nin.<\/p>\n<p>\u00c1n \u00feessara t\u00e6kja er mj\u00f6g erfitt fyrir ungling a\u00f0 or\u00f0a hugsanir s\u00ednar, e\u00f0a hvernig f\u00e6ri fyrir \u00ed\u00fer\u00f3ttafr\u00e9ttamanni sem l\u00fdsa \u00e6tti handboltaleik og hef\u00f0i ekki \u00e1 f\u00e6ri s\u00ednu or\u00f0 eins og bolti, leikma\u00f0ur og mark.<\/p>\n<p>Ef Gu\u00f0 \u00e1 a\u00f0 vera anna\u00f0 og meira en hugtak \u00ed kristnifr\u00e6\u00f0it\u00edma er b\u00e6nin grundvallandi \u00fe\u00e1ttur. \u00dea\u00f0 a\u00f0 geta kyrrt hugann og leita\u00f0 til Gu\u00f0s er nau\u00f0synlegt til a\u00f0 unglingurinn geti upplifa\u00f0. Unglingar sem hafa l\u00e6rt b\u00e6nir fr\u00e1 barn\u00e6sku hafa \u00feannig miki\u00f0 forskot \u00e1 \u00feau sem fyrst setjast ni\u00f0ur vi\u00f0 b\u00e6nagj\u00f6r\u00f0 \u00ed fermingarfr\u00e6\u00f0slunni. Ef b\u00e6n er ekki e\u00f0lilegur \u00fe\u00e1ttur \u00ed l\u00edfi unglinga er erfitt, jafnvel \u00f3m\u00f6gulegt fyrir nokkra t\u00edma \u00ed fermingarfr\u00e6\u00f0slu a\u00f0 breyta \u00fev\u00ed. \u00dev\u00ed er mikilv\u00e6gt a\u00f0 b\u00e6n s\u00e9 ekki feimnism\u00e1l e\u00f0a \u00f3e\u00f0lilegur hlutur \u00ed l\u00edfi fj\u00f6lskyldunnar.<\/p>\n<p><strong>A\u00f0 tilheyra<\/strong><\/p>\n<p>\u00c1 unglings\u00e1rum losnar um tengsl \u00feeirra vi\u00f0 fj\u00f6lskylduna og n\u00fd tengslanet ver\u00f0a til. \u00deannig tengjast unglingarnir \u00fdmsum h\u00f3pum og leitast vi\u00f0 a\u00f0 skilgreina sig \u00fat fr\u00e1 \u00feeim. \u00deannig eru unglingar \u00fdmist skopparar, gotharar e\u00f0a e-\u00f0 anna\u00f0 sem \u00e9g man ekki hva\u00f0 er. \u00deeir tilheyra hugsanlega \u00ed\u00fer\u00f3ttaf\u00e9lagi, jafnvel \u00fati \u00ed heimi. \u00deau b\u00faa \u00ed \u00e1kve\u00f0nu hverfi, s\u00e6kja \u00e1kve\u00f0in sk\u00f3la o.s.frv.<\/p>\n<p>\u00deannig var \u00e9g til d\u00e6mis sem unglingur KFUM-ari (g\u00f3\u00f0ur), Laugal\u00e6kingur, Laugarnesingur, Liverpool-ari, Skagama\u00f0ur (\u00fat af \u00fev\u00ed mamma var\/er \u00fea\u00f0), \u00c1rmenningur \u00ed handbolta, me\u00f0 lj\u00f3smyndadellu, Svarfd\u00e6lingur (pabbi), g\u00e1fumenni o.s.frv.<br \/>\n\u00deessir h\u00f3par hafa mismikil \u00e1hrif, t.d. skipti \u00fea\u00f0 litlu m\u00e1li fyrir mig a\u00f0 vera Svarfd\u00e6lingur, en \u00e9g var \u00fea\u00f0 v\u00edst samt. \u00dea\u00f0 a\u00f0 vera KFUM-ari haf\u00f0i hins vegar meiri \u00e1hrif, \u00fear var mj\u00f6g \u00e1kve\u00f0inn m\u00f3tun og \u00e9g skilgreindi mig sem hluta af velskilgreindum h\u00f3pi sem eyddi miklum t\u00edma saman.<\/p>\n<p>\u00deessir h\u00f3par hafa mikil \u00e1hrif \u00e1 m\u00f3tun unglingsins. \u00dea\u00f0 fylgir \u00fev\u00ed a\u00f0 vera skoppari a\u00f0 hlusta \u00e1 \u00e1kve\u00f0na t\u00f3nlist, kl\u00e6\u00f0a sig \u00ed \u00e1kve\u00f0inn f\u00f6t og jafnvel ganga \u00e1 \u00e1kve\u00f0inn h\u00e1tt. \u00d6ll fr\u00e1vik fr\u00e1 hef\u00f0um eru illa li\u00f0inn skapa \u00f3\u00f6ryggi \u00ed h\u00f3pnum, \u00fev\u00ed \u00ed raun eru allir sem tilheyra h\u00f3pnum \u00e1 sama h\u00e1tt a\u00f0 reyna a\u00f0 skilgreina sig, finna sig.<\/p>\n<p>\u00deessi \u00fe\u00f6rf fyrir a\u00f0 tilheyra og endurskilgreina hverju\/m er tilheyrt, ver\u00f0ur hluti upplifunarinnar, m\u00f3tar \u00fea\u00f0 hver vi\u00f0 erum.<\/p>\n<p><strong>Ni\u00f0urlag<\/strong><\/p>\n<p>Til a\u00f0 barni\u00f0 \u00feitt \u00feroskist \u00e1 e\u00f0lilegan h\u00e1tt \u00e1 \u00f6llum svi\u00f0um er mikilv\u00e6gt a\u00f0 gefa \u00fev\u00ed t\u00edma. Hlusta \u00e1 \u00fea\u00f0, hj\u00e1lpa \u00fev\u00ed a\u00f0 or\u00f0a hugsanir s\u00ednar og lei\u00f0a \u00fea\u00f0 \u00e1fram me\u00f0 k\u00e6rleiksr\u00edkum og raunverulegum \u00e1huga \u00e1 hugsunum \u00feess og tilfinningum. \u00dea\u00f0 \u00e1 ekki s\u00edst vi\u00f0 til a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00feroskist tr\u00faarlega. A\u00f0 vera \u00f3hr\u00e6dd vi\u00f0 a\u00f0 velta upp spurningum me\u00f0 barninu s\u00ednu \u00e1n \u00feess a\u00f0 \u00feekkja sj\u00e1lf sv\u00f6rin er barninu og \u00fe\u00e9r nau\u00f0synlegt til a\u00f0 l\u00e6ra meira og ver\u00f0a h\u00e6fari til a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 l\u00edfi\u00f0.<\/p>\n<p>Til a\u00f0 upplifa \u00fearf barni\u00f0\/unglingurinn a\u00f0 geta r\u00e6tt vi\u00f0 Gu\u00f0 \u00ed b\u00e6n. \u00dev\u00ed \u00fearf a\u00f0 finnast a\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 kyrra hugann frammi fyrir Gu\u00f0i s\u00e9 e\u00f0lilegur \u00fe\u00e1ttur \u00ed daglegu l\u00edfi.<\/p>\n<p>Loks \u00fearf unglingurinn, ef \u00e6tlunin er a\u00f0 \u00feroskast \u00ed samfylgd vi\u00f0 Gu\u00f0, a\u00f0 finna sig hluta af \u00feeim sem tr\u00faa \u00e1 Gu\u00f0. Ef fj\u00f6lskyldan telur Gu\u00f0 framandlegan, vinirnir telja Gu\u00f0 l\u00edtt spennandi og kennarinn fussar og sveiar yfir Sk\u00f6punars\u00f6gunni og talar um hina f\u00e1v\u00edsu kristnu \u00fe\u00e1 er ekki l\u00edklegt a\u00f0 tr\u00faarhugmyndir n\u00e1i a\u00f0 \u00feroskast og m\u00f3tast \u00ed samr\u00e6mi vi\u00f0 annan vitsmuna\u00feroska (<em>breyting \u00e1 texta eftir g\u00f3\u00f0a \u00e1bendingu Hjalta R\u00fanars h\u00e9r fyrir ne\u00f0an<\/em>) <del>a\u00f0 Gu\u00f0 n\u00e1i \u00ed gegn<\/del>.<\/p>\n<p><strong>A\u00f0 lokum<\/strong><\/p>\n<p>Fyrir mig sem \u201efagmann\u201c \u00e1 svi\u00f0i tr\u00fam\u00e1la sv\u00ed\u00f0ur m\u00e9r oft \u00feegar f\u00f3lk talar af van\u00feroska um tr\u00fam\u00e1l \u00ed fj\u00f6lmi\u00f0lum. Fullyr\u00f0ir hitt og \u00feetta um kirkju og Krists sem er \u00ed besta falli misskilningur og \u00ed versta falli rangt. Oft \u00e1 t\u00ed\u00f0um stafar \u00feetta af \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0komandi hefur mistekist a\u00f0 st\u00edga \u00fat \u00far hlutl\u00e6gum skilningi \u00e1 Gu\u00f0shugt\u00f6kum og yfir \u00ed hi\u00f0 hugl\u00e6ga. Tr\u00faar\u00feroskinn hefur ekki fylgt \u00f6\u00f0rum \u00feroska, barnatr\u00fanni e\u00f0a vonbrig\u00f0um me\u00f0 barnatr\u00fana er leyft a\u00f0 r\u00edkja gagnr\u00fdnislaust.\u00a0Gu\u00f0 gefi a\u00f0 b\u00f6rnin ykkar n\u00e1i a\u00f0 \u00feroska tr\u00faarskilning sinn, hver svo sem afsta\u00f0a \u00feeirra til Gu\u00f0s kunni a\u00f0 vera \u00ed framt\u00ed\u00f0inni.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Innlegg fyrir foreldra fermingarbarna \u00e1 fr\u00e6\u00f0slukv\u00f6ldi, l\u00edklega \u00ed Grens\u00e1skirkju, fyrir 10 \u00e1rum. L\u00edtillega laga\u00f0 me\u00f0 tilliti til auglj\u00f3sra villna. \u00deegar tala\u00f0 er um Gu\u00f0str\u00fa, tr\u00fa og tr\u00faarvissu, er a\u00f0 alltaf \u00e1tt vi\u00f0 kristna tr\u00fa eins og h\u00fan er bo\u00f0u\u00f0 \u00ed \u00fej\u00f3\u00f0kirkjunni. \u201eHver er \u00e9g?\u201c og \u201eTil hvers er \u00e9g?\u201c eru grundvallarspurningar unglings\u00e1ranna. Sem unglingar uppg\u00f6tvum &hellip; <a href=\"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/2012\/04\/16\/truin-a-gud-unglingar-og-throski\/\" class=\"more-link\">Continue reading <span class=\"screen-reader-text\">Tr\u00fain \u00e1 Gu\u00f0, unglingar og \u00feroski<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[53,63,68,76,95,99,112,147,150,168],"class_list":["post-3930","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-islenska","tag-emergent","tag-family","tag-gathering","tag-growth","tag-kfumk","tag-listening","tag-parents","tag-storytelling","tag-teaching","tag-youthwork"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3930","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3930"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3930\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3930"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3930"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3930"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}