{"id":3661,"date":"2011-06-09T10:50:40","date_gmt":"2011-06-09T14:50:40","guid":{"rendered":"https:\/\/ispeculate.wpmudev.host\/main\/?p=3661"},"modified":"2011-06-09T10:50:40","modified_gmt":"2011-06-09T14:50:40","slug":"enn-og-aftur-nokkur-ord-um-tillogur-mannrettindarads","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/2011\/06\/09\/enn-og-aftur-nokkur-ord-um-tillogur-mannrettindarads\/","title":{"rendered":"Enn og aftur nokkur or\u00f0 um till\u00f6gur mannr\u00e9ttindar\u00e1\u00f0s"},"content":{"rendered":"<p>N\u00fa hefur Mannr\u00e9ttindar\u00e1\u00f0 Reykjav\u00edkur skrifa\u00f0 \u00ed \u00feri\u00f0ja sinn till\u00f6gur s\u00ednar um a\u00f0gengi tr\u00fa- og l\u00edfsko\u00f0unarf\u00e9laga a\u00f0 sk\u00f3lastarfi. \u00c9g fjalla\u00f0i um fyrstu till\u00f6gurnar <a title=\"Stuttir \u00feankar um till\u00f6gur mannr\u00e9ttindar\u00e1\u00f0s\" href=\"https:\/\/ispeculate.wpmudev.host\/main\/2010\/10\/stuttir-%c3%beankar-um-tillogur-mannrettindara%c3%b0s\/\">h\u00e9r<\/a> og till\u00f6gu tv\u00f6 <a title=\"Meira af till\u00f6gum Mannr\u00e9ttindar\u00e1\u00f0s\" href=\"https:\/\/ispeculate.wpmudev.host\/main\/2010\/11\/meira-af-tillogum-mannrettindara%c3%b0s\/\">h\u00e9r<\/a>. L\u00edkt og \u00e1\u00f0ur eru till\u00f6gur r\u00e1\u00f0sins ekki mj\u00f6g a\u00f0gengilegar \u00feannig a\u00f0 miki\u00f0 af umr\u00e6\u00f0unni er byggt \u00e1 fullyr\u00f0ingum um innihaldi\u00f0 sem ekki eru alltaf sannleikanum samkv\u00e6mar en haldi\u00f0 \u00e1 lofti til a\u00f0 skapa andst\u00f6\u00f0u og sundrung. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur a\u00f0 vi\u00f0urkennast a\u00f0 m\u00e9r l\u00edkar mj\u00f6g illa vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1 annars g\u00f3\u00f0a einstaklinga sem \u00e9g \u00feekki vel nota sl\u00edkar a\u00f0fer\u00f0ir. Sl\u00edk vinnubr\u00f6g\u00f0 eru ekki s\u00e6mandi f\u00f3lki sem segist starfa \u00ed nafni Jes\u00fa Krists.<!--more--><\/p>\n<p>\u00de\u00e1 a\u00f0 till\u00f6gunum. M\u00e9r t\u00f3kst a\u00f0 n\u00e1lgast textann eftir a\u00f0 hafa augl\u00fdst eftir honum \u00e1 Facebook og hef \u00e1kve\u00f0i\u00f0 a\u00f0 birta hann h\u00e9r me\u00f0 athugasemdum m\u00ednum. R\u00e9tt er a\u00f0 taka fram a\u00f0 \u00e9g er \u00fea\u00f0 sem \u00ed kristilega geiranum er kalla\u00f0 lifandi tr\u00faa\u00f0ur ma\u00f0ur. \u00c9g var v\u00edg\u00f0ur dj\u00e1kni til \u00fej\u00f3nustu \u00fej\u00f3\u00f0kirkjunnar \u00ed lok s\u00ed\u00f0ustu aldar og \u00ed v\u00edgslubr\u00e9fi m\u00ednu kemur fram efnislega a\u00f0 \u00e9g beri tr\u00faarlega \u00e1byrg\u00f0 \u00f6llum ungmennum \u00e1 starfsv\u00e6\u00f0i Reykjav\u00edkurpr\u00f3fastsd\u00e6ma. Hafandi sagt \u00fea\u00f0, minni \u00e9g \u00e1 fyrirvarann\/disclaimer h\u00e9r til hli\u00f0ar.<\/p>\n<p>&#8212;<\/p>\n<blockquote><p><strong>Sk\u00f3lastarf \u00ed Reykjav\u00edk og tr\u00faar- og l\u00edfssko\u00f0unarm\u00e1l<\/strong><br \/>\nMannr\u00e9ttindastefna Reykjav\u00edkurborgar var sam\u00feykkt \u00e1ri\u00f0 2006. H\u00fan kve\u00f0ur \u00e1 um a\u00f0 \u00edb\u00faum\u00a0ver\u00f0i ekki mismuna\u00f0 \u00e1 forsendum kyns, efnahagsst\u00f6\u00f0u, uppruna, f\u00f6tlunar, aldurs e\u00f0a stj\u00f3rnm\u00e1lasko\u00f0ana. Undanfarin \u00e1r hefur markvisst veri\u00f0 unni\u00f0 a\u00f0 framf\u00f6rum \u00e1 svi\u00f0i mannr\u00e9ttinda hj\u00e1 borginni og hefur verulegur \u00e1rangur n\u00e1\u00f0st \u00ed auknu kynjajafnr\u00e9tti, \u00ed r\u00e9ttindum samkynhneig\u00f0ra og m\u00e1lefnum innflytjenda. Mannr\u00e9ttindastefnan kve\u00f0ur einnig \u00e1 um a\u00f0\u00a0borgarb\u00faum skuli ekki mismuna\u00f0 eftir l\u00edfs- og tr\u00faarsko\u00f0unum.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00dea\u00f0 er f\u00e1tt a\u00f0 segja um upphafi\u00f0. \u00deetta eru allt mikilv\u00e6g markmi\u00f0 og \u00e9g held a\u00f0 \u00f6ll getum vi\u00f0 teki\u00f0 undir \u00feetta.<\/p>\n<blockquote><p>\u00c1ri\u00f0 2007 kom \u00fat sk\u00fdrsla Leiksk\u00f3la- og Menntasvi\u00f0s Reykjav\u00edkur um samstarf kirkju og\u00a0sk\u00f3la. \u00cd h\u00f3pi sk\u00fdrsluh\u00f6funda voru fulltr\u00faar fr\u00e1 \u00f6llum hluta\u00f0eigandi a\u00f0ilum; sk\u00f3lastofnunum\u00a0borgarinnar, Biskupsstofu og Al\u00fej\u00f3\u00f0ah\u00fasi. Ein af megin ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um h\u00f3psins var s\u00fa a\u00f0 m\u00f3ta\u00a0\u00feyrfti sk\u00fdrar starfsreglur um samskipti tr\u00faar- og l\u00edfssko\u00f0unarh\u00f3pa og sk\u00f3la\u00a0Reykjav\u00edkurborgar.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00deetta er l\u00edka mj\u00f6g mikilv\u00e6gt. \u00dea\u00f0 er \u00f3h\u00e6ft a\u00f0 vi\u00f0horf einstakra sk\u00f3la til mannr\u00e9ttindam\u00e1la byggi \u00e1 pers\u00f3nulegri tilfinningu sk\u00f3lastj\u00f3rans. \u00deannig hefur kerfi\u00f0 \u00fev\u00ed mi\u00f0ur virka\u00f0. \u00deessu hef \u00e9g kynnst pers\u00f3nulega \u00ed st\u00f6rfum m\u00ednum \u00e1 \u00fdmsum t\u00edmum fyrir kirkjuna og kristilegar hreyfingar. R\u00e9ttur barna til \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed tr\u00faarlegu starfi e\u00f0a r\u00e9ttur barna til a\u00f0 vera laus undan tr\u00faarlegum \u00e1r\u00f3\u00f0ri \u00e1 ekki a\u00f0 vera mismunandi eftir \u00fev\u00ed hvort barn b\u00fdr \u00ed Brei\u00f0holti e\u00f0a \u00ed Hl\u00ed\u00f0unum.<\/p>\n<blockquote><p>Mannr\u00e9ttindar\u00e1\u00f0 Reykjav\u00edkur leggur \u00fev\u00ed til a\u00f0 eftirfarandi reglur gildi um samskipti leik- og grunnsk\u00f3la og fr\u00edstundaheimila borgarinnar vi\u00f0 tr\u00faar- og l\u00edfssko\u00f0unarf\u00e9l\u00f6g:<\/p>\n<p>a) Hlutverk sk\u00f3la borgarinnar er a\u00f0 fr\u00e6\u00f0a nemendur um \u00f3l\u00edk tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 og l\u00edfssko\u00f0anir\u00a0samkv\u00e6mt gildandi a\u00f0aln\u00e1mskr\u00e1 og n\u00e1msefni.<\/p><\/blockquote>\n<p>Um \u00feetta \u00fearf ekki a\u00f0 hafa m\u00f6rg or\u00f0. \u00deetta er einfaldlega r\u00e9tt.<\/p>\n<blockquote><p>b) Tr\u00faar- og l\u00edfssko\u00f0unarf\u00e9l\u00f6g skulu ekki stunda starfsemi s\u00edna innan veggja leik- og\u00a0grunnsk\u00f3la borgarinnar \u00e1 sk\u00f3lat\u00edma n\u00e9 heldur \u00e1 starfst\u00edma fr\u00edstundaheimila. \u00deetta \u00e1 vi\u00f0 allar\u00a0heims\u00f3knir \u00ed tr\u00faarlegum tilgangi, skemmtidagskr\u00e1r e\u00f0a a\u00f0rar kynningar tengdar starfi \u00feeirra,\u00a0sem og dreifingu \u00e1 bo\u00f0andi efni. Me\u00f0 bo\u00f0andi efni er \u00e1tt vi\u00f0 hluti sem gefnir eru e\u00f0a nota\u00f0ir\u00a0sem hluti af tr\u00fabo\u00f0i, \u00fea\u00f0 er t\u00e1kngripir, fj\u00f6lf\u00f6ldu\u00f0 tr\u00faar- og l\u00edfssko\u00f0unarrit, b\u00e6kur, augl\u00fdsingar,\u00a0hlj\u00f3\u00f0rit, prentmyndir og kvikmyndir.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00deessi grein h\u00e9r er a\u00f0 m\u00ednu viti helsti \u00e1steytingarsteinn tillagna mannr\u00e9ttindar\u00e1\u00f0sins. Segja m\u00e1 a\u00f0 h\u00e9r s\u00e9u a.m.k. \u00fer\u00edr \u00fe\u00e6ttir sem vert er a\u00f0 staldra vi\u00f0.<\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 fyrsta er samspil fr\u00edstundaheimila og tr\u00faarlegs barnastarfs. Till\u00f6gurnar koma ekki \u00ed veg fyrir a\u00f0 tr\u00faar- og l\u00edfsko\u00f0unarf\u00e9l\u00f6g s\u00e9u me\u00f0 starfsemi \u00e1 t\u00edma fr\u00edstundaheimilanna, svo lengi sem \u00fea\u00f0 fer ekki fram \u00ed r\u00fdmi leik- e\u00f0a grunnsk\u00f3lans. \u00dea\u00f0 fyrirkomulag a\u00f0 b\u00f6rn fari af fr\u00edstundaheimilinu til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed s\u00e9rt\u00e6kum verkefnum hefur v\u00ed\u00f0a veri\u00f0 \u00ed gangi. \u00deannig fara b\u00f6rn \u00e1 fr\u00edstundaheimilinu \u00ed \u00c1lftam\u00fdrarsk\u00f3la yfir \u00ed Framheimili\u00f0 til a\u00f0 m\u00e6ta \u00e1 \u00ed\u00fer\u00f3tta\u00e6fingar e\u00f0a yfir \u00ed Grens\u00e1skirkju til a\u00f0 m\u00e6ta \u00ed 6-9 \u00e1ra starfi\u00f0 \u00fear. \u00deessar till\u00f6gur koma ekki \u00ed veg fyrir sl\u00edkt. Hins vegar er lj\u00f3st a\u00f0 \u00feessar hugmyndir hafa \u00e1hrif \u00e1 starf kirkjunnar \u00fear sem lei\u00f0togar kirkjunnar bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 fr\u00edstundastarf \u00ed sk\u00f3lah\u00fasn\u00e6\u00f0i. \u00der\u00e1tt fyrir a\u00f0 vel hafi tekist til v\u00ed\u00f0a \u00ed a\u00f0 greina \u00e1 milli starfs kirkjunnar og fr\u00edstundaheimilisins \u00feegar bo\u00f0i\u00f0 er upp \u00e1 tr\u00faarlegt starf \u00ed sk\u00f3lah\u00fasn\u00e6\u00f0i \u00e1 t\u00edma fr\u00edstundaheimilisins, hefur \u00fea\u00f0 ekki alltaf tekist. \u00c9g vildi a\u00f0 h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 finna betri lausn \u00e1 \u00feessu m\u00e1li. \u00cd nokkrum v\u00ed\u00f0fermum s\u00f3knum s\u00e9r \u00ed lagi \u00ed austurhluta Reykjav\u00edkur er erfi\u00f0leikum bundi\u00f0 a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 starf \u00fear sem b\u00f6rnunum f\u00e6ru \u00far fr\u00edstundaheimilinu\/sk\u00f3lanum \u00ed kirkjuna\/f\u00e9lagsheimili\u00f0 til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed starfinu.<\/p>\n<p>Hins vegar er \u00e1 sama h\u00e1tt \u00f3f\u00e6rt a\u00f0 kirkjustarf taki yfir starfsemi fr\u00edstundaheimilisins vikulega eins og raunin hefur veri\u00f0 sums sta\u00f0ar. \u00dea\u00f0 er m\u00edn tilfinning a\u00f0 h\u00e9r hafi mannr\u00e9ttindar\u00e1\u00f0 vali\u00f0 tilt\u00f6lulega einfalda og sk\u00fdra lausn \u00e1 vandanum sem \u00feau st\u00f3\u00f0u frammi fyrir. \u00c9g held a\u00f0 betri lausn \u00e1 \u00feessu s\u00e9 til sta\u00f0ar. Ni\u00f0ursta\u00f0a mannr\u00e9ttindar\u00e1\u00f0s lei\u00f0ir hins vegar til \u00feess a\u00f0 kirkjan \u00fearf a\u00f0 finna n\u00fdjar lei\u00f0ir til a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a upp \u00e1 starf \u00ed st\u00e6rstu s\u00f6fnu\u00f0unum. \u00c9g hef nokkrar hugmyndir um hva\u00f0a lei\u00f0ir kirkjan getur fari\u00f0, ef einhver hefur \u00e1huga.<\/p>\n<p>N\u00e6sta m\u00e1l \u00ed \u00feessari grein sn\u00fdr a\u00f0 kynningu \u00e1 starfinu. \u00c9g tel a\u00f0 s\u00f6mu reglur eigi a\u00f0 gilda um kynningu \u00e1 \u00f6llu starfi fyrir b\u00f6rn og unglinga. Anna\u00f0 hvort leyfum vi\u00f0 kynningar e\u00f0a ekki. H\u00e9r er hins vegar um anna\u00f0 og meira m\u00e1l a\u00f0 r\u00e6\u00f0a (the issue is never the issue). Undirliggjandi spurningunni um kynningar til barna \u00ed grunnsk\u00f3lum liggur nefnilega spurningin um st\u00f6\u00f0u foreldrar\u00e9ttar. \u00c9g held a\u00f0 kirkjan st\u00e6\u00f0i sterkari f\u00f3tum ef h\u00fan myndi taka \u00fe\u00e1 \u00e1byrgu afst\u00f6\u00f0u a\u00f0 allt formlegt kynningarefni um barna- og \u00e6skul\u00fd\u00f0sstarf yr\u00f0i beint a\u00f0 foreldrum en ekki b\u00f6rnum. Kostna\u00f0urinn er meiri. \u00c1rangurinn yr\u00f0i hugsanlega minni, en \u00fea\u00f0 v\u00e6ri r\u00e9tt lei\u00f0.<\/p>\n<p>\u00deri\u00f0ja m\u00e1li\u00f0 sn\u00fdr a\u00f0 G\u00eddeonf\u00e9laginu. Margir af helstu \u00e1hrifav\u00f6ldum \u00ed l\u00edfi m\u00ednu eru virkir \u00ed Gideonf\u00e9laginu. \u00c9g skil vel a\u00f0 \u00feeim \u00feyki a\u00f0 s\u00e9r vegi\u00f0. \u00c1 sama h\u00e1tt hafa \u00fea\u00f0 veri\u00f0 forr\u00e9ttindi sem eru alls ekki sj\u00e1lfs\u00f6g\u00f0 a\u00f0 hafa fengi\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 afhenda m\u00f6rg hundru\u00f0 \u00fe\u00fasund NT til sk\u00f3labarna s\u00ed\u00f0ustu 60-70 \u00e1r. \u00dea\u00f0 er l\u00edklegast komin t\u00edmi til a\u00f0 finna n\u00fdjar a\u00f0fer\u00f0ir, \u00fer\u00f3a n\u00fdjar lei\u00f0ir til a\u00f0 koma or\u00f0i Gu\u00f0s \u00e1 framf\u00e6ri. \u00c9g bendi h\u00e9r a\u00f0 ofan \u00e1 mikilv\u00e6gi foreldrar\u00e9ttarins, kannski er h\u00e6gt a\u00f0 byggja \u00e1 \u00fev\u00ed.<\/p>\n<blockquote><p>c) Sk\u00f3lastj\u00f3rnendur grunnsk\u00f3la geta bo\u00f0i\u00f0 fulltr\u00faum\u00a0tr\u00faar- e\u00f0a l\u00edfssko\u00f0unarh\u00f3pa a\u00f0 heims\u00e6kja kennslustundir \u00ed tr\u00faarbrag\u00f0afr\u00e6\u00f0i\/l\u00edfsleikni sem li\u00f0\u00a0\u00ed fr\u00e6\u00f0slu um tr\u00fa og l\u00edfssko\u00f0anir samkv\u00e6mt gildandi a\u00f0aln\u00e1msskr\u00e1 og n\u00e1msefni, og skal\u00a0heims\u00f3knin \u00fe\u00e1 fara fram undir handlei\u00f0slu kennara og vera innan ramma n\u00e1msefnisins.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00deetta er breyting fr\u00e1 fyrri till\u00f6gum og ekkert nema j\u00e1kv\u00e6tt um hana a\u00f0 segja.<\/p>\n<blockquote><p>d) Heims\u00f3knir \u00e1 helgi- og samkomusta\u00f0i tr\u00faar- og l\u00edfssko\u00f0unarf\u00e9laga \u00e1 sk\u00f3lat\u00edma grunnsk\u00f3la\u00a0skulu eiga s\u00e9r sta\u00f0 undir handlei\u00f0slu kennara sem li\u00f0ur \u00ed fr\u00e6\u00f0slu um tr\u00fa og l\u00edfssko\u00f0anir,\u00a0samkv\u00e6mt gildandi l\u00f6gum og a\u00f0aln\u00e1mskr\u00e1. \u00dear sem ekki er s\u00e9rstaklega geti\u00f0 um\u00a0vettvangsheims\u00f3knir leiksk\u00f3labarna \u00e1 helgi- og samkomusta\u00f0i tr\u00faar- og l\u00edfssko\u00f0unarf\u00e9laga\u00a0sem li\u00f0 \u00ed fr\u00e6\u00f0slu um tr\u00fa og l\u00edfssko\u00f0anir \u00ed a\u00f0aln\u00e1mskr\u00e1 leiksk\u00f3la er e\u00f0lilegt a\u00f0 mi\u00f0a fj\u00f6lda\u00a0sl\u00edkra heims\u00f3kna vi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem fram kemur \u00ed a\u00f0aln\u00e1mskr\u00e1 grunnsk\u00f3la til a\u00f0 g\u00e6ta samr\u00e6mis\u00a0milli sk\u00f3lastiga.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00deetta er l\u00edka breyting fr\u00e1 fyrri till\u00f6gum og er j\u00e1kv\u00e6\u00f0 breyting. \u00c9g reyndar skil ekki alveg seinni hlutann um e\u00f0lilegan fj\u00f6lda heims\u00f3kna og skil ekki a\u00f0 \u00feetta geti veri\u00f0 umdeilanlegt.<\/p>\n<blockquote><p>e) \u00deess ver\u00f0i g\u00e6tt vi\u00f0 allar heims\u00f3knir til og fr\u00e1 grunnsk\u00f3la vegna fr\u00e6\u00f0slu um tr\u00fa og\u00a0l\u00edfssko\u00f0anir a\u00f0 nemendur fylgist me\u00f0 en s\u00e9u ekki \u00fe\u00e1tttakendur \u00ed helgisi\u00f0um og ath\u00f6fnum, og\u00a0a\u00f0 \u00fe\u00e6r s\u00e9u ekki vettvangur fyrir innr\u00e6tingu e\u00f0a dreifingu \u00e1 bo\u00f0andi efni.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00c9g hef \u00e1\u00f0ur gert athugasemd h\u00e9r \u00e1 vefnum um a\u00f0 meina nemendum um \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed helgisi\u00f0um og ath\u00f6fnum sem \u00feau eru vitni a\u00f0. M\u00e9r finnst \u00e1kv\u00e6\u00f0i\u00f0 h\u00e1lf k\u00f3m\u00edskt og s\u00e9 fyrir m\u00e9r kennara reyna a\u00f0 st\u00f6\u00f0va barn sem fer \u00ed hlj\u00f3\u00f0i me\u00f0 Fa\u00f0ir vori\u00f0, \u00feegar nemendurnir fylgjast me\u00f0 kristnu helgihaldi e\u00f0a st\u00f6\u00f0va m\u00faslima fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 hugsa &#8220;Allah Akbar&#8221; \u00ed upphafi b\u00e6nahalds \u00ed mosku, \u00feegar h\u00f3purinn fer \u00feanga\u00f0 \u00ed heims\u00f3kn.<\/p>\n<p>\u00c9g held a\u00f0 fr\u00e1 sj\u00f3narmi\u00f0i kennslu og gagnkv\u00e6ms skilnings \u00e1 e\u00f0li og hlutverki tr\u00faar \u00ed samf\u00e9laginu, s\u00e9 \u00fevert \u00e1 m\u00f3ti mikilv\u00e6gt a\u00f0 \u00feau b\u00f6rn sem tilheyra \u00feeim tr\u00faarh\u00f3pi sem heims\u00f3ttur er, geti teki\u00f0 virkan \u00fe\u00e1tt \u00ed helgihaldi og ath\u00f6fnum sem eru \u00feeirra eigin. Me\u00f0 \u00fev\u00ed m\u00f3ti n\u00e6st tenging vi\u00f0 n\u00e1msefni\u00f0 sem gerir \u00fea\u00f0 meira &#8220;relevant&#8221; fyrir h\u00f3pinn \u00ed heild.<\/p>\n<p>Reyndar get \u00e9g l\u00edka teki\u00f0 undir a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 mikilv\u00e6gt fyrir b\u00f6rn og unglinga a\u00f0 horfa \u00e1 s\u00ednar eigin tr\u00faarhef\u00f0ir a\u00f0 utan. En \u00e9g held a\u00f0 anna\u00f0 \u00feurfi ekki a\u00f0 \u00fatiloka hitt.<\/p>\n<blockquote><p>f) Sam\u00fe\u00e6tting h\u00fasn\u00e6\u00f0is og starfsemi stofnana sem vinna me\u00f0 b\u00f6rn \u00e1 vegum\u00a0Reykjav\u00edkurborgar vi\u00f0 starfsemi tr\u00faar- og l\u00edfssko\u00f0unarf\u00e9laga eigi s\u00e9r ekki sta\u00f0 \u00e1 sk\u00f3lat\u00edma.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00deetta vir\u00f0ist vi\u00f0 fyrsta lestur vera breyting \u00e1 fyrri stefnu um a\u00f0 allt starf \u00e1 vettvangi fr\u00edt\u00edmans eigi s\u00e9r sta\u00f0 \u00e1 t\u00edma fr\u00edstundaheimilanna, en \u00fea\u00f0 er alls ekki svo. H\u00e9r er einfaldlega veri\u00f0 a\u00f0 tala um sk\u00f3lat\u00edma.<\/p>\n<p>\u00c9g tek \u00fev\u00ed heilshugar undir \u00feetta og hef s\u00e9rstaklega barist fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 fermingarfr\u00e6\u00f0sla s\u00e9 ekki sam\u00fe\u00e6tt vi\u00f0 stundat\u00f6flu sk\u00f3lans. Sl\u00edk sam\u00fe\u00e6tting, \u00fe.e. fermingarfr\u00e6\u00f0sla inn \u00ed sk\u00f3lastofu \u00e1 sk\u00f3lat\u00edma dregur einfaldlega \u00far st\u00f6\u00f0u fermingarinnar og l\u00e1gmarkar \u00e1byrg\u00f0 barnsins \u00e1 \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed fermingarfr\u00e6\u00f0slunni. Vi\u00f0 sem segjumst kirkjunnar f\u00f3lk \u00e6ttum a\u00f0 gera allt sem \u00ed okkar valdi stendur til a\u00f0 koma fermingarundirb\u00faningnum \u00far \u00feeim farvegi sem hann er \u00ed, og kalla \u00fe\u00e1tttakendur til a\u00f0 taka sj\u00e1lf \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 eigin fermingu. \u00de\u00e1ttur \u00ed \u00fev\u00ed er a\u00f0 greina \u00e1 milli fermingarstarfsins og sk\u00f3lastarfs.<\/p>\n<blockquote><p>g) Sk\u00f3layfirv\u00f6ld beini \u00fev\u00ed til tr\u00faar- og l\u00edfssko\u00f0unarf\u00e9laga a\u00f0 \u00feau skipuleggi fermingarfr\u00e6\u00f0slu\u00a0og barnastarf me\u00f0 \u00fea\u00f0 a\u00f0 lei\u00f0arlj\u00f3si a\u00f0 \u00fea\u00f0 hvorki trufli l\u00f6gbundi\u00f0\u00a0sk\u00f3lastarf um skemmri e\u00f0a lengri t\u00edma n\u00e9 lei\u00f0i til mismununar nemenda utan tiltekinna tr\u00faar\u00a0og l\u00edfssko\u00f0unarf\u00e9laga.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00deetta er mun betra or\u00f0alag en \u00ed fyrri till\u00f6gum. \u00c9g velti fyrir m\u00e9r or\u00f0inu mismunun \u00ed \u00feessu samhengi h\u00e9r. \u00c9g skil hva\u00f0 \u00e1tt er vi\u00f0, en um lei\u00f0 held \u00e9g a\u00f0 p\u00f3l\u00edt\u00edsk r\u00e9tthugsun \u00e1 \u00cdslandi s\u00e9 of\u00fej\u00f6ku\u00f0 af hr\u00e6\u00f0slunni vi\u00f0 a\u00f0 skera sig \u00far. Um lei\u00f0 og \u00e9g segi \u00fea\u00f0 er \u00e9g me\u00f0vita\u00f0ur um a\u00f0 \u00e9g tilheyri flestum forr\u00e9ttindah\u00f3pum sem til eru og l\u00edklegast ekki h\u00e6fur til a\u00f0 tala um mismunun.<\/p>\n<blockquote><p>h) \u00de\u00e6r stofnanir borgarinnar sem hafa starfandi \u00e1fallar\u00e1\u00f0 tryggi a\u00f0 samr\u00e1\u00f0 ver\u00f0i haft vi\u00f0\u00a0foreldra\/forr\u00e1\u00f0amenn \u00feeirra sem \u00e1falli\u00f0 snertir \u00e1\u00f0ur en faga\u00f0ilar eru fengnir til stu\u00f0nings. \u00cd\u00a0n\u00e6rsamf\u00e9lagi leik-og grunnsk\u00f3la getur veri\u00f0 um a\u00f0 r\u00e6\u00f0a s\u00e9rfr\u00e6\u00f0inga, fulltr\u00faa tr\u00faar- e\u00f0a\u00a0l\u00edfssko\u00f0unarf\u00e9laga e\u00f0a a\u00f0ra faga\u00f0ila. Helgistundir sem tengjast vi\u00f0br\u00f6g\u00f0um vi\u00f0 \u00e1falli skulu\u00a0fara fram utan sk\u00f3lat\u00edma.<\/p><\/blockquote>\n<p>Miklu betra en \u00e1\u00f0ur og engin \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 gera athugasemdir vi\u00f0 \u00feennan texta.<\/p>\n<blockquote><p>i) S\u00edgildir s\u00f6ngvar, dansar, leikir og hand\u00ed\u00f0ir sem teljast hluti af gamalgr\u00f3num h\u00e1t\u00ed\u00f0um og\u00a0fr\u00edd\u00f6gum \u00fej\u00f3\u00f0arinnar halda sessi s\u00ednum \u00ed \u00e1rst\u00ed\u00f0abundnum skemmtunum og starfi\u00a0fr\u00edstundaheimila, leik- og grunnsk\u00f3la. J\u00f3las\u00e1lmar og helgileikir tengdir j\u00f3lum falla h\u00e9r undir.<\/p><\/blockquote>\n<p>\u00deetta er trag\u00edk\u00f3m\u00edska greinin. \u00dea\u00f0 er reyndar eiginlega sorglegt a\u00f0 n\u00e1lgun \u00feeirra sem standa gegn st\u00f6rfum mannr\u00e9ttindar\u00e1\u00f0s hafi haldi\u00f0 \u00e1 lofti \u00fea\u00f0 villandi m\u00e1lflutningi a\u00f0 \u00feessi grein \u00feurfi a\u00f0 koma fyrir \u00ed till\u00f6gunum.<\/p>\n<blockquote><p>Til grundvallar \u00feessum reglum liggur s\u00e1 vilji Mannr\u00e9ttindar\u00e1\u00f0s a\u00f0 tryggja r\u00e9tt barna til\u00a0\u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed sk\u00f3lastarfi \u00f3h\u00e1\u00f0 \u00feeirri tr\u00faar- og l\u00edfssko\u00f0un sem \u00feau alast upp vi\u00f0. Uppl\u00fdst fr\u00e6\u00f0sla\u00a0um kristna tr\u00fa, tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0 heimsins, l\u00edfssko\u00f0anir, si\u00f0fr\u00e6\u00f0i, heimspeki og \u00edslenska menningu,\u00a0er mikilv\u00e6g \u00ed \u00f6llu starfi sk\u00f3la borgarinnar. Tr\u00faarleg innr\u00e6ting og bo\u00f0un tiltekinna l\u00edfssko\u00f0ana\u00a0\u00e1 \u00fear ekki heima. \u00dea\u00f0 er \u00e1 hendi foreldra a\u00f0 ala b\u00f6rn s\u00edn upp \u00ed \u00feeirri tr\u00faar- og l\u00edfssko\u00f0un sem\u00a0\u00feeir kj\u00f3sa. Um \u00fea\u00f0 munu starfsmenn Reykjav\u00edkur standa v\u00f6r\u00f0 samkv\u00e6mt mannr\u00e9ttindastefnu\u00a0borgarinnar og \u00feeim mannr\u00e9ttindas\u00e1ttm\u00e1lum sem \u00cdsland hefur undirgengist.<\/p><\/blockquote>\n<p>Undir \u00feetta getum vi\u00f0 \u00f6ll teki\u00f0, nema hva\u00f0 a\u00f0 m\u00e9r er illa vi\u00f0 or\u00f0i\u00f0 innr\u00e6ting, m\u00e9r finnst \u00fea\u00f0 gildishla\u00f0i\u00f0. H\u00e9r f\u00e6ri betur \u00e1 a\u00f0 nota or\u00f0i\u00f0 uppeldi, enda er notast vi\u00f0 or\u00f0i\u00f0 ala s\u00ed\u00f0ar \u00ed textanum.<\/p>\n<p>&#8212;<\/p>\n<p>A\u00f0 lokum. \u00deessar till\u00f6gur eru komnar til a\u00f0 vera, ef ekki n\u00fana \u00fe\u00e1 eftir 3 \u00e1r e\u00f0a 5 \u00e1r e\u00f0a 10 \u00e1r. Kirkjan getur a\u00f0laga\u00f0 starfi\u00f0 sitt a\u00f0 breyttu umhverfi e\u00f0a reynt a\u00f0 berjast \u00e1 m\u00f3ti. Vi\u00f0 getum nota\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri\u00f0 til a\u00f0 horfa \u00e1 sj\u00e1lf okkur, endurmeta og endursko\u00f0a starfsh\u00e6tti okkar e\u00f0a vi\u00f0 getum lifa\u00f0 \u00ed xenopobhiskri blekkingu um a\u00f0 vandinn komi utanfr\u00e1.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>N\u00fa hefur Mannr\u00e9ttindar\u00e1\u00f0 Reykjav\u00edkur skrifa\u00f0 \u00ed \u00feri\u00f0ja sinn till\u00f6gur s\u00ednar um a\u00f0gengi tr\u00fa- og l\u00edfsko\u00f0unarf\u00e9laga a\u00f0 sk\u00f3lastarfi. \u00c9g fjalla\u00f0i um fyrstu till\u00f6gurnar h\u00e9r og till\u00f6gu tv\u00f6 h\u00e9r. L\u00edkt og \u00e1\u00f0ur eru till\u00f6gur r\u00e1\u00f0sins ekki mj\u00f6g a\u00f0gengilegar \u00feannig a\u00f0 miki\u00f0 af umr\u00e6\u00f0unni er byggt \u00e1 fullyr\u00f0ingum um innihaldi\u00f0 sem ekki eru alltaf sannleikanum samkv\u00e6mar en haldi\u00f0 &hellip; <a href=\"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/2011\/06\/09\/enn-og-aftur-nokkur-ord-um-tillogur-mannrettindarads\/\" class=\"more-link\">Continue reading <span class=\"screen-reader-text\">Enn og aftur nokkur or\u00f0 um till\u00f6gur mannr\u00e9ttindar\u00e1\u00f0s<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[31,34,89,90,97,145,150,168],"class_list":["post-3661","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-islenska","tag-clergy","tag-community","tag-injustice","tag-interfaith","tag-leadership","tag-state-church","tag-teaching","tag-youthwork"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3661","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=3661"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/3661\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=3661"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=3661"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=3661"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}