{"id":1183,"date":"2008-02-05T20:57:53","date_gmt":"2008-02-05T20:57:53","guid":{"rendered":"http:\/\/elli.annall.is\/2008-02-05\/gestapistill-fra-torfa-stefanssyni\/"},"modified":"2008-02-05T20:57:53","modified_gmt":"2008-02-05T20:57:53","slug":"gestapistill-fra-torfa-stefanssyni","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/2008\/02\/05\/gestapistill-fra-torfa-stefanssyni\/","title":{"rendered":"Elska til Gu\u00f0s"},"content":{"rendered":"<p><em>Gestapistill fr\u00e1 Torfa Stef\u00e1nssyni.<\/em><\/p>\n<p><em>A\u00f0 \u00f6llu j\u00f6fnu ey\u00f0i \u00e9g umm\u00e6lum sem snerta ekki vi\u00f0komandi f\u00e6rslu. \u00deessi skrif Torfa Stef\u00e1nssonar um a\u00f0 greina \u00e1 milli elsku Gu\u00f0s og elsku til Gu\u00f0s er hins vegar a\u00f0 m\u00ednu viti gagnleg og mikilv\u00e6g og eru \u00fev\u00ed birt h\u00e9r. <\/em><\/p>\n<p>\u00c9g vil benda ykkur ann\u00e1lslesendum \u00e1 grein sem Steind\u00f3r J. Erlingsson skrifa\u00f0i \u00ed Fr\u00e9ttabla\u00f0i\u00f0 \u00ed dag, 5. febr\u00faar 2008. \u00dear gagnr\u00fdnir hann me\u00f0 r\u00e9ttu sr. Mar\u00edu \u00c1g\u00fastsd\u00f3ttur fyrir fullyr\u00f0ingu hennar \u00ed predikun sem birtist \u00e1 tru.is, reyndar fyrir nokkur s\u00ed\u00f0an e\u00f0a \u00ed okt\u00f3ber \u00e1 s\u00ed\u00f0asta \u00e1ri.<!--more--><\/p>\n<p>\u00dear segir sr. Mar\u00eda: \u201cA\u00f0 elskan til Gu\u00f0s er undanfari, forsenda, elskunnar til n\u00e1ungans er hins vegar lj\u00f3st af b\u00e6\u00f0i textanum \u00far 5. M\u00f3seb\u00f3k og gu\u00f0spjallinu, Mk 10.17-27. Vi\u00f0 \u00feekkjum \u00f6ll tv\u00f6falda k\u00e6rleiksbo\u00f0or\u00f0i\u00f0, sem einmitt er byggt upp \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt. Jes\u00fas var reyndar ekki upphafsma\u00f0ur \u00feessarar hugsunar. B\u00e1\u00f0ir li\u00f0ir k\u00e6rleiksbo\u00f0or\u00f0sins eru s\u00f3ttir til Gamla testamentisins (sj\u00e1 5M 6.5 og 3M 19.18), en Jes\u00fas leggur \u00feetta svona upp fyrir okkur samkv\u00e6mt \u00feeirri hef\u00f0 sem r\u00edkti \u00e1 hans t\u00edma. M\u00e1li\u00f0 er ekki \u201cbara\u201d a\u00f0 elska Gu\u00f0 e\u00f0a \u201cbara\u201d n\u00e1ungann, heldur er hvort um sig h\u00e1\u00f0 hinu. \u00c1n elskunnar til Gu\u00f0s er erfitt a\u00f0 koma fram vi\u00f0 f\u00f3lk af k\u00e6rleika. Og ef vi\u00f0 elskum ekki mennina er \u00e1stinni til Gu\u00f0s auglj\u00f3slega \u00e1b\u00f3tavant.\u201d<\/p>\n<p>Steind\u00f3r gagnr\u00fdnir \u00feessa fullyr\u00f0ingu \u00e1 \u00feeirri forsendu a\u00f0 sr. Mar\u00eda s\u00e9 me\u00f0 \u00feessu a\u00f0 gefa \u201d\u00ed skyn a\u00f0 tr\u00faleysingjar s\u00e9u illa f\u00e6rir um a\u00f0 elska\u201d s\u00edna n\u00e1nustu.<\/p>\n<p>\u00c9g er samm\u00e1la Steind\u00f3ri \u00ed gagnr\u00fdni hans. \u00c1st\u00e6\u00f0a m\u00edn er \u00ed fyrsta lagi s\u00fa, a\u00f0 fyrri textinn sem sr. Mar\u00eda fjallar um, 5. M\u00f3s. 10.12-14, fjallar alls ekki um n\u00e1ungak\u00e6rleikann heldur a\u00f0eins um elskuna til Gu\u00f0s. Hinn textinn sem h\u00fan v\u00edsar til, Mk 10.17-27, fjallar ekki heldur um n\u00e1ungak\u00e6rleikann heldur einungis um erfi\u00f0leikana vi\u00f0 a\u00f0 \u201d\u00f6\u00f0last eil\u00edft l\u00edf\u201d.<\/p>\n<p>Sr. Mar\u00eda les \u00feannig allt anna\u00f0 \u00fat \u00far bibl\u00edutextanum en \u00fea\u00f0 sem \u00fear stendur.<\/p>\n<p>En h\u00fan gerir fleiri bommertur, \u00fe.e. nota bene sem evangel\u00edsk-l\u00fatherskur prestur. Fullyr\u00f0ing hennar um a\u00f0 elskan til Gu\u00f0s s\u00e9 forsenda elskunnar til n\u00e1ungans gengur \u00fevert \u00e1 kenningar Marteins L\u00fathers. \u00de\u00f3 vitnar h\u00fan \u00ed t\u00falkun \u00feekkts innlends fr\u00e6\u00f0imanns \u00e1 L\u00father &#8211; til a\u00f0 sty\u00f0ja r\u00f6ksemdaf\u00e6rslun s\u00edna um mikilv\u00e6gi fyrsta bo\u00f0or\u00f0sins hva\u00f0 var\u00f0ar alla breytni manna.<\/p>\n<p>L\u00father f\u00f3r sj\u00e1lfur allt a\u00f0rar lei\u00f0ir til a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00feessi m\u00e1l. Hann vildi helst ekki tala um elsku til Gu\u00f0s \u00fear sem hann taldi\u00f0 \u00fea\u00f0 vera d\u00e6mi um ka\u00fe\u00f3lsku. Hann tala\u00f0i \u00ed sta\u00f0inn um tr\u00fa, tr\u00fa \u00e1 Gu\u00f0. Fyrir honum var k\u00e6rleikurinn einungis tv\u00ed\u00fe\u00e6ttur. K\u00e6rleikur Gu\u00f0s til manna, algj\u00f6rlega \u00f3h\u00e1\u00f0 tr\u00fa \u00feeirra, og s\u00ed\u00f0an k\u00e6rleika \u00feess tr\u00faa\u00f0a til n\u00e1ungans. R\u00f6r- e\u00f0a \u201dkanal\u201d-hugun L\u00fathers er \u00feekkt \u00ed \u00feessu sambandi: K\u00e6rleikur Gu\u00f0s streymir ni\u00f0ur til sk\u00f6punar hans, \u00fe.e. mannanna, sem flytja hana svo \u00e1fram \u00fat \u00ed samf\u00e9lagi\u00f0 &#8211; helst \u00f3a\u00f0vitandi og alls ekki til a\u00f0 hreykja s\u00e9r af \u00fev\u00ed. Svissneski gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ingurinn Karl Barth tekur s\u00ed\u00f0an \u00feessa hugsun upp og heldur \u00e1 lofti \u00e1 n\u00fdli\u00f0inni \u00f6ld.<\/p>\n<p>\u00deegar L\u00father tala\u00f0i um si\u00f0fer\u00f0ileg m\u00e1l, svo sem um n\u00e1ungak\u00e6rleikann, ger\u00f0i hann \u00fea\u00f0 yfirleitt \u00fat fr\u00e1 l\u00f6gm\u00e1lskenningu sinni en ekki \u00fat fr\u00e1 fyrsta bo\u00f0or\u00f0inu. \u00cd kenningu hans um fyrstu notkun l\u00f6gm\u00e1lsins, eins og hann kalla\u00f0i \u00fea\u00f0, \u00fe\u00e1 er n\u00e1ungak\u00e6rleikurinn sag\u00f0ur innbygg\u00f0ur \u00ed samvisku allra manna. \u00deannig eru allir menn, \u00f3h\u00e1\u00f0 tr\u00fa, \u00fatb\u00fanir (af Skaparanum) me\u00f0 \u00feessa h\u00e6fileika, \u00fe.e. a\u00f0 elska n\u00e1ungann eins og sj\u00e1lfan sig.<\/p>\n<p>\u00deetta er \u00fea\u00f0 sem \u00ed si\u00f0fr\u00e6\u00f0inni hefur fengi\u00f0 nafni\u00f0 \u201dalmenn si\u00f0fr\u00e6\u00f0i\u201d og hefur veri\u00f0 kennt \u00ed gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ideild H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands s\u00ed\u00f0an \u00e1 \u00e1ttunda \u00e1ratugnum \u00ed \u00fea\u00f0 minnsta.<br \/>\nSr. Mar\u00eda \u00e6tti \u00fev\u00ed a\u00f0 vera fullkunnugt um \u00feessa kenningu \u2013 sem \u00e9g leyfi m\u00e9r a\u00f0 fullyr\u00f0a a\u00f0 s\u00e9 hin opinbera kenninga hinnar evangel\u00edsk-l\u00fathersku \u00fej\u00f3\u00f0kirkju h\u00e9r \u00e1 landi.<\/p>\n<p>En sr. Mar\u00eda er ekki s\u00fa eina sem gerir \u00feessi mist\u00f6k eins og Steind\u00f3r bendir \u00e1. Mist\u00f6kin n\u00e1 alla lei\u00f0 upp \u00ed \u00e6\u00f0stu emb\u00e6tti \u00edslensku \u00fej\u00f3\u00f0kirkjunnar og gerir alla umr\u00e6\u00f0u um \u00fe\u00e1tt kristinnar tr\u00faar \u00ed menntun \u00edslenskra ungmenna og a\u00f0komu kirkunnar a\u00f0 grunnsk\u00f3lum landsins miklu erfi\u00f0ari en \u00feyrfti.<\/p>\n<p>\u00dev\u00ed mi\u00f0ur st\u00f6ndum vi\u00f0 langt a\u00f0 baki n\u00e1granna\u00fej\u00f3\u00f0um okkar svo sem D\u00f6num og Sv\u00edum \u00ed \u00feessum m\u00e1lum \u00fear sem hinn kristni arfur og hinn h\u00faman\u00edski hafa haldist \u00ed hendur \u00ed sk\u00f3lakerfinu n\u00e6r alla s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld. Vi\u00f0 erum enn a\u00f0 apa eftir Nor\u00f0m\u00f6nnum, reyndar a\u00f0eins fr\u00e1 1974, sem hafa sett hinn kristna arf fremstan. \u00deeir eru n\u00fa a\u00f0 s\u00fapa sei\u00f0i\u00f0 af \u00fev\u00ed \u2013 og vi\u00f0 einnig.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Gestapistill fr\u00e1 Torfa Stef\u00e1nssyni. A\u00f0 \u00f6llu j\u00f6fnu ey\u00f0i \u00e9g umm\u00e6lum sem snerta ekki vi\u00f0komandi f\u00e6rslu. \u00deessi skrif Torfa Stef\u00e1nssonar um a\u00f0 greina \u00e1 milli elsku Gu\u00f0s og elsku til Gu\u00f0s er hins vegar a\u00f0 m\u00ednu viti gagnleg og mikilv\u00e6g og eru \u00fev\u00ed birt h\u00e9r. \u00c9g vil benda ykkur ann\u00e1lslesendum \u00e1 grein sem Steind\u00f3r J. Erlingsson &hellip; <a href=\"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/2008\/02\/05\/gestapistill-fra-torfa-stefanssyni\/\" class=\"more-link\">Continue reading <span class=\"screen-reader-text\">Elska til Gu\u00f0s<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[27],"class_list":["post-1183","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-islenska","tag-christ"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1183","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1183"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1183\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1183"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1183"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1183"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}