{"id":1174,"date":"2008-01-09T19:14:17","date_gmt":"2008-01-09T19:14:17","guid":{"rendered":"http:\/\/elli.annall.is\/2008-01-09\/thad-hefur-alltaf-verid-svona\/"},"modified":"2008-01-09T19:14:17","modified_gmt":"2008-01-09T19:14:17","slug":"thad-hefur-alltaf-verid-svona","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/2008\/01\/09\/thad-hefur-alltaf-verid-svona\/","title":{"rendered":"\u00dea\u00f0 hefur alltaf veri\u00f0 svona!"},"content":{"rendered":"<p><em>Handrit pr\u00e9dikunar sem var flutt \u00ed gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustu \u00ed Grens\u00e1skirkju \u00feann 1. jan\u00faar 2008. <\/em><\/p>\n<p>\u00c1\u00f0ur en \u00e9g kom til starfa \u00ed Grens\u00e1skirkju haf\u00f0i \u00e9g starfa\u00f0 um margra \u00e1ra skei\u00f0 \u00ed sumarb\u00fa\u00f0unum \u00ed Vatnask\u00f3gi og geri svo sem enn viku og viku \u00e1 hverju sumri. Eitt af \u00fev\u00ed fyrsta sem \u00e9g l\u00e6r\u00f0i a\u00f0 segja sem starfsma\u00f0ur \u00ed Vatnask\u00f3gi var sj\u00e1lfvirkt svar vi\u00f0 hugmyndum um breytingar: En \u00feetta hefur alltaf veri\u00f0 svona!<!--more--><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var eiginlega sama hver breytingin var, \u00e9g og samstarfsmenn m\u00ednir minntum alltaf \u00e1 a\u00f0 \u00feetta hef\u00f0i alltaf veri\u00f0 gert \u00e1 einhvern \u00e1kve\u00f0in veg og \u00fev\u00ed enginn \u00fe\u00f6rf \u00e1 breytingum.<\/p>\n<p>Reyndar f\u00f3rum vi\u00f0 fremur \u00f3varlega me\u00f0 hugtaki\u00f0 \u201calltaf\u201d. \u00dev\u00ed f\u00e6st af \u00fev\u00ed sem haf\u00f0i \u201calltaf\u201d veri\u00f0 gert \u00e1 einhvern h\u00e1tt, \u00e1tti s\u00e9r langa s\u00f6gu, stundum var hef\u00f0in vikug\u00f6mul og stundum var h\u00e6gt a\u00f0 benda \u00e1 a\u00f0 \u201calltaf\u201d \u00e6tti vi\u00f0 \u00e1rsgamla hef\u00f0. En \u00fea\u00f0 breytti svo sem ekki vi\u00f0kv\u00e6\u00f0inu, \u00deetta haf\u00f0i alltaf veri\u00f0 gert svona, \u00fea\u00f0 \u00fearf engu a\u00f0 breyta.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 \u00ed kristilegu starfi h\u00f6fum tilhneigingu til a\u00f0 elska hef\u00f0ir, jafnvel tr\u00faa \u00e1 hef\u00f0ir, og ef hef\u00f0in er ekki til sta\u00f0ar erum vi\u00f0 flj\u00f3t a\u00f0 b\u00faa hana til. Vi\u00f0 h\u00f6fum tilhneigingu til a\u00f0 halda a\u00f0 heimurinn s\u00e9 \u00e1 einhvern einn \u00e1kve\u00f0inn h\u00e1tt, allt passi\/ver\u00f0i a\u00f0 passa inn \u00ed einhverja mynd sem vi\u00f0 gerum okkur a\u00f0 g\u00f3\u00f0um heimi. Hinn \u00feekkti mannvinur Albert Schweitzer tala\u00f0i um tilhneigingu okkar til a\u00f0 gera mynd af Jes\u00fas, bygg\u00f0a \u00e1 spegilmynd okkar sj\u00e1lfra. \u00deetta er reyndar sj\u00e1lfsagt ekki einungis sameiginlegt kristnum m\u00f6nnum, tilraunir til a\u00f0 b\u00faa um sk\u00f6punarverk Gu\u00f0s kerfi sem passar alltaf allsta\u00f0ar er \u00feekkt \u00ed hugmyndakerfi komm\u00fanismans og \u00e1 stundum eru m\u00f6ntrur kap\u00edtalista \u00e1 sama veg.<\/p>\n<p>Fyrsta deila kirkjunnar manna snerist um deilur um sl\u00edkt loka\u00f0 hugmyndakerfi. Hinir gy\u00f0ing-kristnu, sanntr\u00fair og g\u00f3\u00f0ir menn h\u00f6f\u00f0u \u00e1hyggjur af \u00fev\u00ed hverjir m\u00e6ttu og \u00e6ttu a\u00f0 vera me\u00f0. Hverjir eru r\u00e9tttr\u00faa\u00f0ir, uppfylla skilyr\u00f0in sem vi\u00f0 setjum fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 vera kristinn?<\/p>\n<p>\u00cd Postulas\u00f6gunni lesum vi\u00f0 um deilur sem sn\u00faast um hvort einungis umskornir drengir geti veri\u00f0 sannkristnir. Stu\u00f0ningsmenn umskurnar v\u00edsu\u00f0u til umskurnar Jes\u00fas sem er einn m\u00f6gulegra gu\u00f0spjallstexta \u00feessa dags og bygg\u00f0u \u00e1 \u00fev\u00ed kr\u00f6fu um a\u00f0 allir v\u00e6ru eins og \u00feeir sj\u00e1lfir. Deilurnar snerust l\u00edka um matarhef\u00f0ir, \u00feurfa allir kristnir a\u00f0 bor\u00f0a sama mat og hinir gy\u00f0ing-kristnu \u00f3lust upp vi\u00f0.<\/p>\n<p>Spurningin var um hva\u00f0a mannger\u00f0ar hef\u00f0ir skipta m\u00e1li \u00feegar kemur a\u00f0 tr\u00fa \u00e1 Jes\u00fam Krist. P\u00e9tur postuli hj\u00f3 \u00e1 hn\u00fatinn fyrir 1960 \u00e1rum, me\u00f0 svari sem \u00e6tti a\u00f0 vera okkur s\u00edfelld \u00e1minning \u201eEigi skalt \u00fe\u00fa kalla \u00fea\u00f0 vanheilagt sem Gu\u00f0 hefur l\u00fdst hreint!\u201c<\/p>\n<p>Ef Gu\u00f0 hefur endurleyst alla menn \u00fe\u00e1 er \u00fea\u00f0 ekki manna a\u00f0 fj\u00f6tra n\u00e1unga sinn \u00ed hlekki. En \u00fer\u00e1tt fyrir \u00feetta svar, er krafan um a\u00f0 gera hlutina eins og \u00feeir hafa alltaf veri\u00f0 ger\u00f0ir, alltaf jafn sterk.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 fyrstu s\u00fdn er skiljanlegt a\u00f0 vi\u00f0 viljum halda \u00f6llu \u00f3breyttu \u00ed lj\u00f3si \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 tr\u00faum \u00e1 Gu\u00f0 sem er. \u00dea\u00f0 var \u00e1 \u00feann h\u00e1tt sem Gu\u00f0 kynnti sig fyrir M\u00f3se. \u00c9g er s\u00e1 sem \u00e9g er. \u00c1 sama h\u00e1tt sj\u00e1um vi\u00f0 \u00ed J\u00f3hannesargu\u00f0spjalli a\u00f0 Jes\u00fas notar s\u00f6mu or\u00f0 \u00edtreka\u00f0.<\/p>\n<p>Jes\u00fas er &#8230;<br \/>\nlj\u00f3s heimsins,<br \/>\nvegurinn, sannleikurinn og l\u00edfi\u00f0,<br \/>\ng\u00f3\u00f0i hir\u00f0irinn.<\/p>\n<p>En textar dagsins minna okkur \u00e1 a\u00f0 \u00fe\u00f3 Gu\u00f0 s\u00e9 st\u00f6\u00f0ugur, fr\u00e1 eil\u00edf\u00f0 til eil\u00edf\u00f0ar, \u00fe\u00e1 er ma\u00f0urinn st\u00f6\u00f0ugt breytingum undirorpinn, vi\u00f0 komum og f\u00f6rum, berum \u00e1v\u00f6xt a\u00f0ra stundina en ekki hina, erum \u00e1 sama t\u00edma endurleyst b\u00f6rn Gu\u00f0s (sumir tala um frelsu\u00f0) og syndug. Vi\u00f0 erum \u00feannig \u00e1 fer\u00f0 \u00ed gegnum l\u00edfi\u00f0, st\u00f6\u00f0ugt a\u00f0 upplifa, sj\u00e1 og reyna eitthva\u00f0 n\u00fdtt, fer\u00f0 sem vi\u00f0 k\u00e6rum okkur ekki alltaf um. \u00c1kall okkar til hef\u00f0arinnar er tilraun til a\u00f0 st\u00f6\u00f0va r\u00e1s t\u00edmans, verjast breytileikanum og hafna \u00feeim veruleika sem Gu\u00f0 hefur b\u00fai\u00f0 okkur.<\/p>\n<p>\u00cd N\u00fdja testamentinu m\u00e6tum vi\u00f0 Jes\u00fas Kristi sem er gagnr\u00fdnin \u00e1 tr\u00faarstofnanir samt\u00edma s\u00edns vegna mannger\u00f0ra hef\u00f0a sem hafa leyst af h\u00f3lmi samf\u00e9lag Gu\u00f0s og manna. Gu\u00f0spjall dagsins \u00fearf a\u00f0 lesast \u00ed \u00feessu lj\u00f3si og \u00fev\u00ed a\u00f0 v\u00edsanir og d\u00e6mis\u00f6gur Jes\u00fas um f\u00edkjutr\u00e9 \u00ed samstofna gu\u00f0spj\u00f6llunum, Matteusi, Mark\u00fasi og L\u00fakasi eru \u00e1vallt sag\u00f0ar \u00ed tengslum vi\u00f0 \u00feessa gagnr\u00fdni Jes\u00fa \u00e1 tr\u00faarstofnanir. Vi\u00f0 getum au\u00f0vita\u00f0 t\u00falka\u00f0 gu\u00f0spjall dagsins sem \u00e1kall til m\u00edn og \u00fe\u00edn um a\u00f0 taka okkur \u00e1 og bera \u00e1v\u00f6xt hi\u00f0 snarasta. En \u00feegar gu\u00f0spjalli\u00f0 er lesi\u00f0 \u00ed samhengi 13. kafla L\u00fakasargu\u00f0spjalls er au\u00f0velt a\u00f0 sj\u00e1 a\u00f0 d\u00e6misagan er h\u00f6r\u00f0 \u00e1minning til tr\u00faarstofnanna og musterisins \u00ed Jer\u00fasalem um a\u00f0 taka sinnaskiptum og endursko\u00f0a manngert hef\u00f0akerfi samt\u00edma s\u00edns. Gu\u00f0spjalli\u00f0 er \u00fev\u00ed l\u00edka \u00e1kall til okkar og \u00feeirrar tr\u00faarstofnunar sem vi\u00f0 tilheyrum.<\/p>\n<p>S\u00e9r \u00ed lagi vi\u00f0 sem tilheyrum hinni v\u00edg\u00f0u st\u00e9tt g\u00f6ngum \u00e1 stundum hva\u00f0 lengst til a\u00f0 r\u00edghalda \u00ed hef\u00f0irnar og st\u00f6\u00f0una, l\u00edkt og fulltr\u00faar tr\u00faarstofnananna \u00e1 t\u00edma Krists. Gagnr\u00fdnendur okkar segja a\u00f0 vi\u00f0 hr\u00e6\u00f0umst minnkandi v\u00f6ld og \u00e1hrif og stundum m\u00e1 spyrja sig hvort \u00feeir hafi eitthva\u00f0 til s\u00edns m\u00e1ls.<\/p>\n<p>Til a\u00f0 halda meintum \u00e1hrifum okkar, reynum vi\u00f0 a\u00f0 vera s\u00fdnileg sem v\u00ed\u00f0ast l\u00e1tum skutla okkur upp \u00e1 j\u00f6kul \u00e1 v\u00e9lsle\u00f0a til a\u00f0 gefa saman hj\u00f3n, e\u00f0a flj\u00fagum af sta\u00f0 \u00ed brei\u00f0\u00feotum \u00ed sama tilgangi. \u00cd fullvissu \u00feess a\u00f0 vi\u00f0vera okkar \u00ed br\u00fa\u00f0kaupsgj\u00f6rningnum vi\u00f0haldi st\u00f6\u00f0u kirkjunnar, e\u00f0a a\u00f0 minnsta kosti st\u00f6\u00f0u okkar sj\u00e1lfra. En au\u00f0vita\u00f0 er okkur nau\u00f0synlegt a\u00f0 spyrja hvort s\u00fdnileiki kirkjunnar, k\u00e6rleikur Gu\u00f0s \u00e1 j\u00f6r\u00f0u sn\u00faist um karl e\u00f0a konu me\u00f0 \u201ckraga\u201d.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 for\u00f0um foreldrum fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 koma til kirkju me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sk\u00edra b\u00f6rn \u00ed heimah\u00fasum og r\u00e9ttl\u00e6tum \u00fea\u00f0 me\u00f0 v\u00edsun til heimatr\u00far\u00e6kni og\/e\u00f0a s\u00fdnileika okkar \u00e1 heimilunum. Vi\u00f0 komum s\u00ed\u00f0an vi\u00f0 \u00e1 leiksk\u00f3lum og grunnsk\u00f3lum til a\u00f0 n\u00e1 \u00ed skoti\u00f0 \u00e1 s\u00f6mu b\u00f6rnum og v\u00edsum \u00fe\u00e1 til \u00feess a\u00f0 heimatr\u00far\u00e6knin s\u00e9 ekki lengur til sta\u00f0ar, \u00fe.e. heimilin hafi hvorki t\u00edma n\u00e9 getu til a\u00f0 sinna tr\u00far\u00e6kni barnanna. \u00c1 \u00feennan h\u00e1tt h\u00f6ldum vi\u00f0 b\u00f6rnum og foreldrum fr\u00e1 kirkjunni sinni, me\u00f0 v\u00edsun til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0, v\u00edg\u00f0a f\u00f3lki\u00f0, getum s\u00e9\u00f0 um tr\u00far\u00e6kni\u00fe\u00e1ttinn fyrir \u00feau \u00fear sem \u00feau eru. H\u00e6ttan er auglj\u00f3s, vi\u00f0 r\u00e6num s\u00f6fnu\u00f0inn samf\u00e9lagi s\u00ednu vi\u00f0 Gu\u00f0 og hvort anna\u00f0 og ver\u00f0um flj\u00f3tt og \u00f6rugglega millig\u00f6ngumenn Gu\u00f0s og manns, t\u00f6kum a\u00f0 okkur hlutverk sem Jes\u00fas Kristi var einum \u00e6tla\u00f0.<\/p>\n<p>\u00c1 sama h\u00e1tt er \u00e1 stundum eins og umr\u00e6\u00f0ur um tr\u00fam\u00e1l og kirkjustarf s\u00e9u einkam\u00e1l atvinnutr\u00faf\u00f3lks, eins og m\u00edn, v\u00edg\u00f0ir h\u00e1sk\u00f3lamennta\u00f0ir s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingar tj\u00e1 sig um m\u00e1lefni vinnusta\u00f0arins. \u00c1 sama h\u00e1tt og fiskifr\u00e6\u00f0ingur hj\u00e1 Hafr\u00f3 sem einn teldi sig mega\/eiga a\u00f0 r\u00e6\u00f0a sj\u00f3s\u00f3kn \u00e1 mi\u00f0unum kringum landi\u00f0. Tr\u00fam\u00e1l eiga \u00e1 h\u00e6ttu a\u00f0 vera debat milli Kierkegaard-sinna og Grundvig a\u00f0d\u00e1enda, l\u00edkt og \u00e9g var\u00f0 einhverju sinni vitni a\u00f0 \u00ed d\u00f6nsku sj\u00f3nvarpi \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 sn\u00faast um a\u00f0 lifa \u00ed trausti til \u00feess sem skapar og hefur gefi\u00f0 okkur leyfi til a\u00f0 vera Gu\u00f0s b\u00f6rn.<\/p>\n<p>\u00cd \u00feessu \u00f6llu er au\u00f0velt a\u00f0 gleyma \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fatbrei\u00f0sla kristni \u00ed upphafi var ekki verk h\u00e1sk\u00f3lamennta\u00f0ra tr\u00faarbrag\u00f0as\u00e9rfr\u00e6\u00f0inga e\u00f0a gu\u00f0fr\u00e6\u00f0inga heldur tjaldger\u00f0arf\u00f3lks, fiskimanna, starfsf\u00f3lks \u00e1 skattstofum, verslunarmanna og h\u00fasm\u00e6\u00f0ra sem s\u00f6g\u00f0u g\u00f3\u00f0u fr\u00e9ttirnar um Jes\u00fas Krist, hverjum sem heyra vildi og opnu\u00f0u heimili s\u00edn \u00feurfandi og \u00fereyttum. Vi\u00f0 menntu\u00f0u gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ingarnir t\u00f6lum stundum um hvernig kraftur heilags anda gat nota\u00f0 meira a\u00f0 segja \u00feetta f\u00f3lk til a\u00f0 bo\u00f0a or\u00f0i\u00f0. En \u00e9g ver\u00f0 a\u00f0 vi\u00f0urkenna a\u00f0 stundum velti \u00e9g fyrir m\u00e9r, hvernig s\u00e9 fyrir andann a\u00f0 lei\u00f0a kirkjuna \u00ed dag, enda hafa ranns\u00f3knir undir stj\u00f3rn Christian Schwartz og hreyfingarinnar Natural Church Development leitt \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 \u00fev\u00ed meiru sem gu\u00f0fr\u00e6\u00f0imennta\u00f0ir menn r\u00e1\u00f0a \u00ed kirkjunni \u00fev\u00ed verr gengur. Meira segja heilagur andi \u00e1 \u00ed erfi\u00f0leikum me\u00f0 kirkjuna \u00feegar henni er st\u00fdrt af okkur \u00feessum \u00e1 stundum sj\u00e1lfumgl\u00f6\u00f0u gu\u00f0fr\u00e6\u00f0ingum.<\/p>\n<p>\u00cd \u00feessu lj\u00f3si er s\u00e9rstaklega gaman a\u00f0 koma \u00ed Grens\u00e1skirkju, s\u00e1 messuh\u00f3pastarf \u00ed \u00fer\u00f3un, ver\u00f0i vitni a\u00f0 fr\u00e1b\u00e6ru framlagi kvenf\u00e9lagsins um \u00e1ratugaskei\u00f0 og sj\u00e1 h\u00f3pastarf eins og 12 spora h\u00f3pinn leiddan af leikm\u00f6nnum.<\/p>\n<p>En aftur a\u00f0 sj\u00e1lfsgagnr\u00fdninni. Li\u00f0i\u00f0 \u00e1r bar \u00feess m\u00f6rg d\u00e6mi hvernig vi\u00f0 \u00feessi v\u00edg\u00f0u \u00ed kirkjunni notu\u00f0um \u00edtreka\u00f0 hef\u00f0arsv\u00f6r og b\u00e6n l\u00f6gvirtingsins og \u00fe\u00f6kku\u00f0um Gu\u00f0i fyrir a\u00f0 vera ekki eins og \u00feessi tollheimtuma\u00f0ur.<\/p>\n<p>Vi\u00f0 h\u00f6fum nefnilega ekki a\u00f0eins tilhneygingu til a\u00f0 halda \u00ed hef\u00f0ir og gera \u00fe\u00e6r a\u00f0 gu\u00f0um. Vi\u00f0 h\u00f6fum mikla \u00fe\u00f6rf fyrir a\u00f0 vita betur og meira en n\u00e1ungi okkar, sagan um Narcissos sem f\u00f6lna\u00f0i upp \u00e1 \u00e1rbakkanum \u00fear sem hann gladdist yfir spegilmynd sinni er nefnilega \u00e1 stundum l\u00edka sagan okkar. Okkur finnst a\u00f0 skilningur okkar, \u00fej\u00f3\u00f0in okkar, landi\u00f0 okkar, flokkurinn okkar, kirkjan okkar, hafi eitthvert anna\u00f0 og meira v\u00e6gi heldur en \u00fea\u00f0 sem hinir eiga e\u00f0a eru, hverjir sem hinir eru.<\/p>\n<p>\u00c9g g\u00e6ti fjalla\u00f0 \u00ed m\u00f6rgum or\u00f0um um heg\u00f0un okkar sem kirkju \u00ed umr\u00e6\u00f0um um Vinalei\u00f0ina. Fram til \u00feessa h\u00f6fum vi\u00f0 \u00ed kirkjunni leitast vi\u00f0 a\u00f0 fjalla um freka minnihlutah\u00f3pinn sem vill kristind\u00f3minn okkar burtu \u00far landinu okkar, en hugsanlega hef\u00f0um vi\u00f0 \u00feurft a\u00f0 horfa meira \u00e1 okkur sj\u00e1lf. \u00cd sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast \u00e1 hina, hef\u00f0um vi\u00f0 m\u00e1tt spyrja um hvatann a\u00f0 verkefninu, spyrja okkur sj\u00e1lf hvernig vi\u00f0 st\u00f3\u00f0um a\u00f0 samningu si\u00f0areglna, spyrja okkur hvers vegna kirkjunnar menn ur\u00f0u margsaga \u00ed m\u00e1linu og svo framvegis. En \u00fea\u00f0 er au\u00f0veldara a\u00f0 r\u00e1\u00f0ast a\u00f0 \u00f6\u00f0rum og v\u00edsa til hef\u00f0ar.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g h\u00f3f st\u00f6rf \u00ed sumarb\u00fa\u00f0unum \u00ed Vatnask\u00f3gi fyrir 16 \u00e1rum f\u00f3r \u00e9g \u00e1 n\u00e1mskei\u00f0 um sumarb\u00fa\u00f0ast\u00f6rf \u00fear sem kennarinn lag\u00f0i mikla \u00e1herslu \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 \u00f6llum leikjum \u00fear sem eitt barn er bleytt fyrir framan h\u00f3pinn \u00e1 kv\u00f6ldv\u00f6ku yr\u00f0i \u00fath\u00fdst. Einn Vatnask\u00f3garstarfsma\u00f0urinn, tv\u00edtugur t\u00f6ffari spur\u00f0i \u00ed kerskni, hvers vegna \u00feetta m\u00e6tti ekki. Au\u00f0vita\u00f0 v\u00e6ri r\u00e9tt a\u00f0 einn v\u00e6ri ni\u00f0url\u00e6g\u00f0ur en \u00e1 m\u00f3ti k\u00e6mi a\u00f0 91 skemmtu s\u00e9r konunglega. \u00c9g held a\u00f0 vi\u00f0 sj\u00e1um \u00f6ll f\u00e1r\u00e1nleikann \u00ed \u00feessari r\u00e9ttl\u00e6tingu, en samt sem \u00e1\u00f0ur t\u00f6lum vi\u00f0 um mikilv\u00e6gi \u00feess a\u00f0 prestar og dj\u00e1knar f\u00e1i a\u00f0 heims\u00e6kja leiksk\u00f3la me\u00f0 dagskr\u00e1 fyrir b\u00f6rnin og \u00feau sem ekki geta teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt af tr\u00faar\u00e1st\u00e6\u00f0um geti bara seti\u00f0 frammi og be\u00f0i\u00f0 (ekki samt \u00ed merkingunni a\u00f0 bi\u00f0ja). Vi\u00f0 \u00ed kirkjunni \u00feurfum a\u00f0 r\u00e6\u00f0a okkar m\u00e1l alvarlega, erum vi\u00f0 e.t.v. a\u00f0 ganga gegn or\u00f0um Krists \u00ed atferli okkar, eru \u00e1vextir gj\u00f6r\u00f0a okkar g\u00f3\u00f0ir.<\/p>\n<p>Ein r\u00e9ttl\u00e6ting sem miki\u00f0 hefur veri\u00f0 notu\u00f0 \u00e1 li\u00f0nu \u00e1ri, er a\u00f0 v\u00edsa til hef\u00f0ar. En \u00fea\u00f0 er gagnlegt a\u00f0 spyrja, hva\u00f0a hef\u00f0ar? Hefur \u00feetta alltaf veri\u00f0 svona.<\/p>\n<p>Vinalei\u00f0in \u00ed \u00feeirri mynd sem h\u00fan var \u00ed Gar\u00f0ab\u00e6 \u00e1tti s\u00e9r enga s\u00f6gu, h\u00fan var n\u00fdtt tilbo\u00f0. Vissulega leita\u00f0i h\u00fan fyrirmyndar \u00ed Mosfellsb\u00e6, en \u00fear var forsagan og forsendurnar allt a\u00f0rar.<\/p>\n<p>Fermingarfer\u00f0al\u00f6g \u00e1 sk\u00f3lat\u00edma eiga s\u00e9r einhverja s\u00f6gu sumsta\u00f0ar, en \u00e9g held a\u00f0 \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00f3h\u00e6tt a\u00f0 segja a\u00f0 almennt eigi \u00feau s\u00e9r 15 \u00e1ra s\u00f6gu, \u00feannig var ekki um neitt fermingarfer\u00f0alag a\u00f0 r\u00e6\u00f0a \u00feegar \u00e9g fermdist (sem er a\u00f0eins meira en 15 \u00e1r reyndar), og \u00fe\u00e6r kirkjur sem bu\u00f0u upp \u00e1 sl\u00edkt \u00e1\u00f0ur fyrr skipul\u00f6g\u00f0u a\u00f0 jafna\u00f0i helgarfer\u00f0ir.<\/p>\n<p>Kristilega si\u00f0g\u00e6\u00f0i\u00f0 kom \u00ed grunnsk\u00f3lal\u00f6gin 1974, vissulega langur t\u00edmi, en a\u00f0 tala um \u00f3breytanlega hef\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed samhengi er ekki mj\u00f6g n\u00e1kv\u00e6mt.<\/p>\n<p>Vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 okkar \u00ed kirkjunni vi\u00f0 \u00e1kalli um breytingar \u00e1 heg\u00f0un okkar er skiljanleg. \u00deegar kalla\u00f0 er eftir breytingum ver\u00f0um vi\u00f0 hr\u00e6dd, heilinn okkar virkar \u00feannig. Ef hr\u00e6\u00f0slan n\u00e6r t\u00f6kum \u00e1 okkur, \u00fe\u00e1 finnst okkur a\u00f0 vi\u00f0 ver\u00f0um a\u00f0 breg\u00f0ast vi\u00f0 breytingum af h\u00f6rku. Hr\u00e6\u00f0slan kallar eftir or\u00f0unum: \u201c\u00deetta hefur alltaf veri\u00f0 svona\u201d. S\u00e1 sem kallar eftir breytingunum ver\u00f0ur \u00f3vinurinn, s\u00e1 sem vill mei\u00f0a, \u00fea\u00f0 er hann sem veldur hr\u00e6\u00f0slunni. Ofsakennd vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 okkar \u00ed kirkjunni gegn \u201cf\u00e1menna freka minnihlutah\u00f3pnum\u201d eins og sumir hafa kalla\u00f0 gagnr\u00fdnendur r\u00edkjandi \u00e1stands, eru ekki vi\u00f0br\u00f6g\u00f0 \u00feess sem hefur me\u00f0teki\u00f0 or\u00f0 engilsins vi\u00f0 hir\u00f0anna \u00e1 Betlehamsv\u00f6llum. \u201cVeri\u00f0 \u00f3hr\u00e6dd\u201d \u2013 \u201cVeri\u00f0 \u00f3hr\u00e6dd\u201d.<\/p>\n<p>Kristni \u00e1 \u00cdslandi sn\u00fdst ekki um a\u00f0 verja r\u00edkjandi \u00e1stand, kristni \u00e1 \u00cdslandi sn\u00fdst ekki um or\u00f0 \u00ed grunnsk\u00f3lal\u00f6gum e\u00f0a stj\u00f3rnarskr\u00e1. Kristni \u00e1 \u00cdslandi stendur ekki og fellur me\u00f0 Vinalei\u00f0 e\u00f0a leiksk\u00f3laheims\u00f3knum presta, fjarri fer \u00fev\u00ed.<\/p>\n<p>Kristni \u00e1 \u00cdslandi felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 treysta \u00e1 Gu\u00f0 sem r\u00edkir fr\u00e1 eil\u00edf\u00f0 til eil\u00edf\u00f0ar, muna a\u00f0 vi\u00f0 erum \u00d6LL b\u00f6rn Gu\u00f0s hva\u00f0an svo sem vi\u00f0 komum, hvert sem vi\u00f0 f\u00f3rum og hver sem kynhneig\u00f0 okkar er. Kristni \u00e1 \u00cdslandi stendur og fellur me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 s\u00f6fnu\u00f0ur hans n\u00fdti hvert n\u00fdtt \u00e1r til uppbyggingar og leitist vi\u00f0 a\u00f0 bera g\u00f3\u00f0an \u00e1v\u00f6xt \u00ed starfi s\u00ednu. Kristni \u00e1 \u00cdslandi sn\u00fdst um a\u00f0 \u00f6ll b\u00f6rn Gu\u00f0s taki \u00fea\u00f0 alvarlega a\u00f0 tilheyra kirkju Krists og taki \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00fea\u00f0 bera \u00e1 og hl\u00fa a\u00f0 \u00fev\u00ed fagra g\u00f3\u00f0a og fullkomna, en skilji \u00fea\u00f0 ekki eftir \u00ed h\u00f6ndum mist\u00e6kra fagmennta\u00f0ra kirkjut\u00e6kna.<\/p>\n<p>Textar \u00feessa n\u00fdj\u00e1rsdags kalla okkur til a\u00f0ger\u00f0a \u00e1 n\u00fdju \u00e1ri. Teljum daga okkar, horfumst \u00ed augu vi\u00f0 okkur sj\u00e1lf, leitum til Gu\u00f0s svo vi\u00f0 \u00f6\u00f0lumst viturt hjarta. Og anna\u00f0 hitt, leggjum r\u00e6kt vi\u00f0 samf\u00e9lagi\u00f0 okkar \u00e1 milli, leitum lei\u00f0a til a\u00f0 bera g\u00f3\u00f0an \u00e1v\u00f6xt sem kirkja Krists.<\/p>\n<p>Me\u00f0taki\u00f0 postullega blessun.<br \/>\nN\u00e1\u00f0in Drottins vors Jes\u00fa Krists, k\u00e6rleiki Gu\u00f0s og sam f\u00e9lag heilags anda s\u00e9 me\u00f0 oss \u00f6llum. Amen.<br \/>\n&#8212;<\/p>\n<p><strong>Dav\u00ed\u00f0ss\u00e1lmur 90.1-4,12<\/strong><br \/>\nB\u00e6n gu\u00f0smannsins M\u00f3se.<br \/>\nDrottinn, \u00fe\u00fa hefur veri\u00f0 oss athvarf<br \/>\nfr\u00e1 kyni til kyns.<br \/>\n\u00c1\u00f0ur en fj\u00f6llin f\u00e6ddust<br \/>\nog j\u00f6r\u00f0in og heimurinn ur\u00f0u til,<br \/>\nfr\u00e1 eil\u00edf\u00f0 til eil\u00edf\u00f0ar ert \u00fe\u00fa, \u00f3 Gu\u00f0.<br \/>\n\u00de\u00fa l\u00e6tur manninn hverfa aftur til duftsins<br \/>\nog segir: \u201eHverfi\u00f0 aftur, \u00fe\u00e9r mannanna b\u00f6rn.\u201c<br \/>\n\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fasund \u00e1r eru \u00ed \u00fe\u00ednum augum<br \/>\nsem dagurinn \u00ed g\u00e6r, \u00feegar hann er li\u00f0inn,<br \/>\nj\u00e1, eins og n\u00e6turvaka.<br \/>\nKenn oss a\u00f0 telja daga vora,<br \/>\na\u00f0 v\u00e9r megum \u00f6\u00f0last viturt hjarta.<\/p>\n<p><strong> Galatabr\u00e9fi\u00f0 3.23-29<\/strong><br \/>\n\u00c1\u00f0ur en \u00feessi lei\u00f0 var f\u00e6r vorum vi\u00f0 inniloku\u00f0 \u00ed g\u00e6slu l\u00f6gm\u00e1lsins \u00feanga\u00f0 til tr\u00fain, sem \u00ed v\u00e6ndum var, opinbera\u00f0ist. \u00deannig hefur l\u00f6gm\u00e1li\u00f0 or\u00f0i\u00f0 tyftari okkar \u00feanga\u00f0 til Kristur kom til \u00feess a\u00f0 vi\u00f0 r\u00e9ttl\u00e6ttumst af tr\u00fa. En n\u00fa, eftir a\u00f0 tr\u00fain er komin, erum vi\u00f0 ekki lengur undir tyftara.<br \/>\nMe\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 tr\u00faa \u00e1 Krist Jes\u00fa eru\u00f0 \u00fei\u00f0 \u00f6ll Gu\u00f0s b\u00f6rn. \u00dei\u00f0 \u00f6ll, sem eru\u00f0 sk\u00edr\u00f0 til samf\u00e9lags vi\u00f0 Krist, hafi\u00f0 \u00edkl\u00e6\u00f0st Kristi. H\u00e9r er hvorki Gy\u00f0ingur n\u00e9 annarrar \u00fej\u00f3\u00f0ar ma\u00f0ur, \u00fer\u00e6ll n\u00e9 frj\u00e1ls ma\u00f0ur, karl n\u00e9 kona. \u00dei\u00f0 eru\u00f0 \u00f6ll eitt \u00ed Kristi Jes\u00fa. Ef \u00fei\u00f0 eru\u00f0 \u00ed samf\u00e9lagi vi\u00f0 Krist \u00fe\u00e1 eru\u00f0 \u00fei\u00f0 ni\u00f0jar Abrahams og erfi\u00f0 \u00fea\u00f0 sem honum var heiti\u00f0.<\/p>\n<p><strong> L\u00fakasargu\u00f0spjall 13.6-9<\/strong><br \/>\n\u00de\u00e1 sag\u00f0i Jes\u00fas \u00feeim \u00feessa d\u00e6mis\u00f6gu: \u201eMa\u00f0ur nokkur \u00e1tti f\u00edkjutr\u00e9 gr\u00f3\u00f0ursett \u00ed v\u00edngar\u00f0i s\u00ednum. Hann kom og leita\u00f0i \u00e1vaxtar \u00e1 \u00fev\u00ed og fann ekki. Hann sag\u00f0i \u00fe\u00e1 vi\u00f0 v\u00edngar\u00f0smanninn: \u00cd \u00ferj\u00fa \u00e1r hef \u00e9g n\u00fa komi\u00f0 og leita\u00f0 \u00e1vaxtar \u00e1 f\u00edkjutr\u00e9 \u00feessu og ekki fundi\u00f0. H\u00f6gg \u00fea\u00f0 upp. Hv\u00ed \u00e1 \u00fea\u00f0 a\u00f0 vera engum til gagns? En hann svara\u00f0i honum: Herra, l\u00e1t \u00fea\u00f0 standa enn \u00feetta \u00e1r \u00fear til \u00e9g hef grafi\u00f0 um \u00fea\u00f0 og bori\u00f0 a\u00f0 \u00e1bur\u00f0. M\u00e1 vera a\u00f0 \u00fea\u00f0 beri \u00e1v\u00f6xt s\u00ed\u00f0an. Annars skaltu h\u00f6ggva \u00fea\u00f0 upp.\u201c<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Handrit pr\u00e9dikunar sem var flutt \u00ed gu\u00f0s\u00fej\u00f3nustu \u00ed Grens\u00e1skirkju \u00feann 1. jan\u00faar 2008. \u00c1\u00f0ur en \u00e9g kom til starfa \u00ed Grens\u00e1skirkju haf\u00f0i \u00e9g starfa\u00f0 um margra \u00e1ra skei\u00f0 \u00ed sumarb\u00fa\u00f0unum \u00ed Vatnask\u00f3gi og geri svo sem enn viku og viku \u00e1 hverju sumri. Eitt af \u00fev\u00ed fyrsta sem \u00e9g l\u00e6r\u00f0i a\u00f0 segja sem starfsma\u00f0ur \u00ed &hellip; <a href=\"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/2008\/01\/09\/thad-hefur-alltaf-verid-svona\/\" class=\"more-link\">Continue reading <span class=\"screen-reader-text\">\u00dea\u00f0 hefur alltaf veri\u00f0 svona!<\/span><\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[2],"tags":[95,168],"class_list":["post-1174","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-islenska","tag-kfumk","tag-youthwork"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1174","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1174"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1174\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1174"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1174"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/ispeculate.net\/writings\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1174"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}