youthwork

 
 

Sérfræðivæðing í barna- og æskulýðsstarfi

Coach Chris talar við liðsmenn Grænu drekanna

Fyrir mörgum árum var á stundum leikið leikrit í Vatnaskógi sem var kallað “Sérhæfingin” og fjallaði um Bandaríkjamann á rakarastofu sem útskýrði fyrir rakaranum hversu allt væri frábært í Ameríku því sérhæfingin væri svo mikil. Þannig væru til sumarbúðir sem sérhæfðu sig í knattspyrnu og engu öðru, aðrar sem biðu bara upp á rólur og þar inni sérhæft starfsfólk sem sinnti einungis þessum sérstöku verkefnum. Okkur foringjunum þótti leikritið skemmtilegt vegna þess að við litum á okkur sem fjölfræðinga sem kynnum allt, ég held hins vegar að strákunum hafi ekki þótt leikritið sérlega merkilegt. En hvað um það.
More…

The ability to articulate what you believe

At Faith and Theology: Rowan Williams: a letter to a six-year-old there is a story about an answer Rowan Williams sent to a 6 year old.

They discovered me when they looked round at the world and thought it was really beautiful or really mysterious and wondered where it came from. They discovered me when they were very very quiet on their own and felt a sort of peace and love they hadn’t expected. Then they invented ideas about me – some of them sensible and some of them not very sensible.

 

Að vera Kristur

Þar sem ég sit og les Yaconelli’s “Contemplative Youth Ministry: Practicing the Presence of Jesus (Youth Specialties)” sem er líklega besta bókin sem ég hef lesið um kristilegt starf með börnum og unglingum, þá snertir þetta samtal við mér.
More…

Risk Assessment with Children & Youth

I saw a link to this website on Facebook and decided to put it here.

Brotherhood Mutual – Church Insurance – Children & Youth.

Hver er trú mín?

Á tölvunni minni hefur núna í marga mánuði verið skjal sem ég rakst á einhvers staðar, en virðist verið upprunið í fermingarfræðslu lúthersks safnaðar í Humboldt, Iowa.
More…

Hefur þú tíma?

Þessir þankar voru skrifaðir fyrir KSS fund í desember 1998 og hafa verið lagfærðir með tilliti til málfars og aukins þroska og endurskrifaðir að hluta.

“Það sem mest er um vert í lífinu,” sagði maðurinn, “er að komast áfram, að verða eitthvað, að eiga eitthvað. Sá sem kemst vel áfram, sá sem verður eitthvað meira og eignast meira en aðrir fær allt annað eins og af sjálfu sér, vináttu, ást, heiður og svo framvegis. Þú álítur að þér þyki vænt um vini þína? Við skulum athuga það svolítið nánar.” Grámennið blés nokkrum núllum út í loftið. Mómó dró bera fótleggina inn undir pilsið sitt og reyndi af fremsta megni að skríða inn í stóra jakkann sinn.

More…

Frelsi fyrir aðra

Hugleiðing á æskulýðsdaginn 1999, flutt í Háteigskirkju. Lítillega lagfærð með tilliti til málfars og þroska.

Narcissus var eitt af goðum grísku goðafræðinnar og fallegasta vera sem nokkurn tímann hafði lifað. Goðið Echo varð ástfangið af Narcissusi og og gerði allt til að vinna ástir hans. Echo var hins vegar svo ólánsöm að á hana höfðu verið lögð álög. Það eina sem hún gat sagt var bergmál þess sem hún heyrði. Þegar Echo ætlaði að tjá Narcissusi ást sína, var það eina sem hún gat gert að endurtaka orð Narcissusar. Narcissus datt ekki í hug að eitthvað væri að hjá Echo, hélt að hún væri að gera att í sér með því að endurtaka allt sem hann sagði og gekk í burtu.
More…

Strákakristindómur

Ég tilheyri kvennastétt, ég er djákni. Vígðir djáknar í þjóðkirkjunni eru 40, þar af eru 5 karlmenn, ég, einn þeirra.

Fyrir nokkrum misserum fór ég eins og stundum áður á félagsfund Djáknafélags Íslands og hitti vinkonur mínar í félaginu. Ein þeirra vatt sér upp að mér og hóf að segja mér frá starfinu í Vatnaskógi.
More…

Risastór ljósblár bangsi með bleikt hjarta á maganum

Flutt á Sæludögum í Vatnaskógi og í námskeiði um prédikunarfræði við Háskóla Íslands einhvern tímann á síðustu öld. Lítillega lagfært með tilliti til málfars og þroska.

Fyrir nokkrum árum var ég að tala við fáeina unglinga og það kom til tals hvernig Guð væri.

„Ég held að Guð sé gamall karl með skegg,“ sagði einn.  „Guð er allt,“ sagði annar. „Guð er svona einhvers konar þoka,“ „Guð er þetta,“ „Guð er hitt“ og „Guð er fyrir mér,“ sagði ein stelpan, „Guð er fyrir mér risastór ljósblár bangsi með bleikt hjarta á maganum.“
More…

Thoughts about “Lives to Offer” by Baker and Mercer

It is clear according to Dori Grinenko Baker and Joyce Ann Mercer, youth should not be a time of waiting to become. Young people are not to be subjects of our solution based church ministry.
More…