Sérfræðingur

Ég sá á heimasíðu Healthy Congregations að starfstitill minn er sérfræðingur. Það lítur ekki illa út á ferilskránni að hafa verið Project Specialist hjá Healthy Congregations.

Rétt er að taka fram að ég ber ekki ábyrgð á hljóðinu sem heyrist á heimasíðunni. Ég hef reynt að nota áhrif mín hjá fyrirtækinu til að fjarlægja hljóðvídusana, en var borinn ofurliði af jákvæðum viðbrögðum viðskiptavina.


Tags:

 
 
 

Facebook Comments

No Responses to “Sérfræðingur”

  1. Gravatar of Pétur Björgvin Pétur Björgvin
    1. September 2007 at 08:04

    Rétt byrjaður og talar um hvað verður þegar þú ert búinn! Segðu okkur nú aðeins meira frá þessu starfi, svo við getum sagt frá því áfram!

  2. Gravatar of Halldór Elías Halldór Elías
    1. September 2007 at 12:20

    Starfið mitt felst í að leysa hvers kyns verkefni sem framkvæmdastjórinn felur mér. Þannig hef ég verið að útbúa matsblöð fyrir ráðstefnur, leita í gagnagrunnum og uppfæra upplýsingar um nýjar bækur og greinar á sviði Family Systems og kenninga Bowen um stjórnun. Þetta gefur mér kost á að lesa ýmislegt spennandi og taka þátt í áhugaverðum umræðum og árangur og aðferðir. Það verður hins vegar að segjast að titillinn einn og sér er flottari en verkefnin sem ég sinni.

  3. Gravatar of Pétur Björgvin Pétur Björgvin
    2. September 2007 at 03:33

    Tímabundið starf? Ég spyr því að gaman væri að skrifa smá pistil um starf þitt og nám á vefsíðu DÍ.

  4. Gravatar of Halldór E Halldór E
    2. September 2007 at 04:11

    Ég skal hafa það í huga.