Archive for February 2007

 
 

Fasta

Their abstinence includes also refraining from many kinds of self-punitive thoughts or behaviors or obsessive forms of control. For someone else, fasting from TV or computer games might similarly open up raw, empty time before God as compulsively driven forms of behavior are gradually withdrawn. (Lisa Dahill, Truly Present, p. 59)

Þar sem föstuatferli er stór hluti af trúarlífi mannkyns, í flestum trúarbrögðum, tilraun til að takast á við og ná stjórn á lífi sínu hef ég ákveðið að taka mér hlé frá blogg-skrifum hér á annál og blog.is fram yfir kyrruviku. Þá hyggst ég ekki lesa vefsíður og bloggsvæði sem ég skanna að öðru jöfnu daglega á þessum tíma. Þar sem ég hyggst jafnframt draga úr fréttalestri frá Íslandi, mun ég heldur ekki svara fyrirspurnum á tölvupósti um afstöðu til hinna ýmsu málaflokka á þessu tímabili. Rétt er þó að taka fram að fréttir af fjölskyldunni, munu birtast sem fyrr á hrafnar.net þegar og ef það á við.

Fyrir áhugasama um föstu og aðferðir til að takast á við hana, bendi ég á bókina Truly Present eftir Lisa Dahill, en 5. kafli bókar hennar gæti verið gagnlegur.

Orðinn Neo-Orthodox

Jón Ómar var að taka “What is your Theological Worldview?” prófið sem ég tók í apríl í fyrra. Síðan þá hef ég hafið guðfræðinám á ný og fannst því spennandi að taka prófið aftur, enda alltaf spennandi að vita hvernig maður breytist.
More…

Vonskuveður

Ég fékk bréf frá kennaranum mínum í Ministry of Worship í gær, þar sem hún lofaði þeim nemendum sem kæmu í tímann í dag kökum. Í morgun kom síðan annað bréf um að skólinn yrði læstur, enda á enginn að vera á ferli og norðan við okkur má handtaka hvern þann sem keyrir á opinberum vegum meðan að veðrið gengur yfir.

Þetta virðist fremur öfgafullar aðgerðir, en eins og bent var á í sjónvarpsfréttum í morgun er ástandið mjög alvarlegt. Víða á vegum sjást ekki einu sinni akgreinalínur. Annars er búið að vera heiðskýrt frá því ég vaknaði og létt snjókoma á köflum, eiginlega veður eins og sést í fallegum jólamyndum. Ég hef reyndar ekki farið út, en dóttir mín 8 ára hentist ekki úti nema í 20 mínútur með vini sínum frá Alaska, þrátt fyrir heiðríkjuna enda gífurlega kalt.

En að upplifa þetta í fyrsta sinn hér er samt pínu kómískt. Í svona veðri heima á Íslandi í febrúar væri skólasund það eina sem yrði aflýst.

Mikilvægur flötur

Matthías Ásgeirsson skrifar í dag hreint ágæta grein í Fréttablaðið. En hann veltir fyrir sér fjöldarökunum fyrir starfi kirkjunnar í grunn- og leikskólum.
More…

Að sigla undir fölsku flaggi

Það er ekki á hverjum degi gefið í skin að ég sigli undir fölsku flaggi, eða sé óheiðarlegur á einhvern hátt en það gerðist í ummælum í dag. En þar er ég sakaður um að gefa ekki upp tengsl við lykilmenn í Vinaleiðarmálinu, í þeim umræðum sem ég hef átt um leiðina. Hér er líkast til átt við hér og hér. Ég veit reyndar ekki um hvaða tengsl er verið að ræða, né hvernig þau eiga að skipta máli, en ég skal reyna.
More…

Sögulegi Jesús

Ein af áherslunum í lok 19. aldar og fram á þá 20. voru tengdar tilraunum guðfræðinga til að finna hinn sögulega Jesú. Til þess eru notaðar ákveðnar leiðir m.a. er litið til fjölbreytni heimilda, orð sem eru neikvæð hafa meira vægi en jákvæð.
More…

Vandamál guðfræðískunnar

Í Ministry of Educating myndaðist umræða áðan um fagmál í kirkjunni. Mikilvægt umræðuefni fyrir margra hluta sakir og ekki síður í íslensku samhengi. Hvernig getur kirkjan talað á “relevant” hátt í umhverfi sínu.
More…

The Saints-video

Það er alltaf gaman að setja sig inn í nýja hluti. Þetta gerði ég fyrir hópinn sem var með mér í New Orleans meðan ég var að dunda mér við að læra á iMovie. Ástæðan fyrir því að ég hendi þessu inn hér, er að Árni var að kenna mér á WP-kerfið og hvernig má setja inn myndskeið.

[video google="604442803027220907"]

Þarf að segja meira

Sitt eigið

Ég hef undanfarna mánuði notað lítillega sértækan rss-lesara sem ég setti upp á “eigin server” og þannig fylgst með uppfærslum hjá fjölda miðla og bloggara á internetinu. En í stíl við yfirfærslu annála af hinu hreint ágæta kerfi Örvars yfir á WordPress MU, ákvað ég að leggja eigin kerfi, sameina enska bloggið mitt (sem var fremur smátt í sniðum) við annálinn minn og taka upp Google Reader til að vakta náungann.