Archive for November 2006

 
 

Fyrirheitna borgin

Ég rakst á áhugaverða grein um fyrirheitnu borgina Colorado Springs, en þangað flykkjast evangelistar í BNA, til að hlýða á stóru nöfnin hjá kristnu hægriprédikurunum.

Ath. 14/7/2010 – Vísun á greinina er nú hér (aðeins í áskrift).

Vonum á West Ham!

Ég sé að 365 sýningunni er að ljúka. Er það rétt skilið hjá mér að Avion aka HF Eimskipafélagið, standi ekki vel? Er Decode ævintýrið endanlega að “feida út”? Gengu Sterling hugmyndir FL-Group ekki upp? Hvað þýðir þetta fyrir stöðu íslensku bankanna? Er e.t.v. eina vonin fólgin í West Ham?

Upphaflega birt á halldorelias.blog.is

Veruleikinn og furðufréttir

Orange-Lime gosið frá Jones Soda bragðaðist reyndar ágætlega út á Panera Bread upp á Broad Street áðan. En ég tók hins vegar ekki eftir því hvort laxadrykkurinn eða “fiski-taco” bragðið var á boðstólnum í dag. Það er alltaf kómískt að lesa grein frá skrítnu útlöndunum sem er hluti af daglegum veruleika manns.

Út er komin bók

Þeir eru fjölmargir sem hafa dvalið hjá mér í sumarbúðum í gegnum árin. Fyrst kemur mér að sjálfsögðu í hug læknaneminn sem tók á móti Tómasi Inga. Nú, ekki má gleyma stjórnarmanninum í Vantrú.is, eða stjórnarmanninum í Heimdalli sem leikur í auglýsingum fyrir Glitni (nema hann sé hættur í Heimdalli).
More…

Ég vildi að ég hefði haft rangt fyrir mér

Ég hef nokkrum sinnum skrifað færslur hér á vefnum, sem ég hef séð eftir en líklega er óhætt að segja að fáar hafi verið jafn erfiðar og sú sem innihélt þessar línur.

Þessu heldur hann á lofti á sama tíma og embættið hans er í kæruferli fyrir brot á jafnréttislögum, þar sem karl var tekin fram yfir konu, þrátt fyrir meiri menntun og reynslu konunnar.

Í dag féll dómurinn í Hæstarétti. Ég vildi óska þess að ég hefði haft rangt fyrir mér og þessi færsla væri formleg afsökunarbeiðni, en því miður reyndust orðin í upphaflegu færslunni rétt.

Fjöldi í þjóðkirkjunni

Á trú.is er spurt um fjölda í þjóðkirkjunni nýlega. Ég verð að viðurkenna að mér brá þó nokkuð að hlutfallstalan sé komin undir 85%. Þar sem ég hef gaman af tölum og mér þykir þetta merkilega hröð (en eðlileg þróun). Þá ákvað ég að líta á aðra þætti varðandi trúfélagafjölda.

More…

Hænur eru hermikrákur

Rithöfundurinn Bruce McMillan heimsótti Cassingham Elementary School í dag. Skólastjórinn hringdi í mig í morgun og skyldi eftir skilaboð hvort mig langaði ekki að vera viðstaddur og spjalla við manninn. Svo ég mætti.

More…

Eigintíðni

Ég er reyndar bara fávís guðfræðinemi, en er ekki yfirleitt talað um eigintíðni? Eitthvað segir mér að “meðsveiflun” sé fremur undarlegt hugtak.

Upphaflega birt á halldorelias.blog.is sem viðbrögð við frétt á mbl.is.

Sigur í LutherBowl

Nú um helgina fór fram hið árlega flag-football mót guðfræðiskóla á austurströnd Bandaríkjanna, Luther Bowl, en mótið er haldið árlega í Gettysburg, Pennsylvania. Að þessu sinni mættu átta skólar til leiks, fjórir lútherskir, tveir með tengsl við ensku biskupakirkjuna, einn kalvínskur auk Wesley Theological Seminary (WTS). Er óhætt að segja að mótið hafi þannig endurspeglað framtíð “mainline” kirkjudeilda í BNA, eða alla vega leiðtoga þeirra. Hvert lið spilaði þrjá leiki eftir ákveðnu kerfi, sem leiddi til þess að eina liðið sem sigraði alla sína leiki stóð uppi sem sigurvegari.


More…

What would Jesus Drive?

Hann David bendir á þetta myndband á síðunni sinni.