Archive for May 2006

 
 

Á kirkjuþingi

Nú er kominn niðurstaða í kosningum til Kirkjuþings. Leikmannahlutinn í kosningum til Kirkjuþings fór eins vel og hægt var að búast við miðað við kjörlista.


More…

Tooth Fairy

Hér á vefnum hefur að venju verið rætt nokkuð um trú og trúarbrögð. En slík umræða á sér ekki bara stað í vefheimum. Þegar ég hugðist svæfa dóttur mína í gær, sýndi hún mér undir koddann sinn, þar var ekkert.


More…

Valkvætt hugmyndakerfi

Í færslu hér á undan notast ég við orðtakið valkvætt hugmyndakerfi. Ástæðan er sú að ég lýt ekki svo á að trúarbrögð séu markaðsvara á svipaðan hátt og t.d. þátttaka í Lions eða Kiwanis. Trú mín kallar mig til að eiga samfélag við Guð, sú köllun snýst ekki um hvort að mér líkar tónlistin í kirkjunni, hvort ég telji prestinn minn einstakan prédikara eður ei, hún er meira að segja óháð því hvort söfnuðurinn minn komi vel fram. Burtséð frá þessum þáttum á ég að leitast við að fylgja Kristi, eiga við hann samfélag og leitast við að gera sköpunarverkið að þeirri góðu sköpun sem Guð ætlaði því að vera.


More…

Æskulýðsfulltrúar

andygoodliff sem starfar sem æskulýðsfulltrúi staldrar við spurningu sem skiptir miklu máli fyrir framtíð kirkjunnar: Should churches employ youthworkers?
Svarið liggur e.t.v. ekki beint við og mikilvægt að vera meðvitaður um gallana sem geta fylgt.

Sjálfsmyndin og syndin

Finninn Patrik Hagman veltir upp sjálfsmyndinni, mikilvægi hennar og tengslum við syndaskilning kristinna manna á vefsvæðinu God in a Shrinking Universe.

Óheppinn

Dagur B. sá ágæti skólabróðir minn sagði í stuðningsmannaræðunni sinni í gær að hátt í 90% kjósenda hefðu valið stefnumál Samfylkingarinnar í kosningunum í Reykjavík. Vísaði hann til þess að hann flokkarnir hefðu tekið upp stefnumál Samfylkingarinnar í aðdraganda kosninga. Þetta þótti flokksfélögum hans fyndið og skemmtilegt.


More…

Ójöfnuður

Hægt er að sjá vandaða umfjöllun um stéttarskiptingu í skólakerfi á múrnum í dag. Umfjöllun Berglindar Rósar Magnúsdóttur, Eru einkagrunnskólar nauðsynlegir? er sérlega áhugaverð í því umhverfi sem ég upplifi hér í BNA.


More…

Innflytjendalög

Samkvæmt innflytjendalögum í Ísrael frá 2003 fá íbúar Gaza og Vesturbakkans ekki ríkisborgararétt í Ísrael þó þeir giftist ísraelskum ríkisborgara. Þessi lög eru reyndar talinn brjóta gegn stjórnarskrá Ísraels og verða tekinn upp fljótlega á ísrealska þinginu. Í grein um málið í Economist í síðustu viku er velt upp spurningunni hvort reynt verði að fara fram hjá stjórnarskránni með því að notast við dönsku aðferðina.
More…

Góðmennið ég

Ég skrapp áðan út í Kroger, eins og ég geri stundum á kvöldin. Þegar ég var búin að fylla körfuna með vatni á flöskum og barnamat í krukkum fór ég eins og lög gera ráð fyrir að kassanum í búðinni. Það voru bara tveir kassar opnir og fremur löng röð við þá báða svo ég byrjaði að bíða.


More…

Köllunarferli ELCA

Köllunarferli og menntun ELCA á einstaklingum til prestsþjónustu er um margt áhugavert. Hér á eftir fara nokkrir þættir sem skipta máli fyrir ferlið.


More…