Archive for April 2006

 
 

Methagnaður KB-banka

Hagnaður KB-banka á fyrsta ársfjórðungi er sá hæsti í sögu félagsins á einum fjórðungi. Hagnaður eftir skatta 18,8 milljarðar króna eða 69% meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra. Sérstaka athygli vekur að gengishagnaður var 99% meiri en á sama tíma í fyrra eða 13,5 milljarðar króna og útskýrir algjörlega þennan methagnað bankans. Þessi aukni gengishagnaður á fyrsta ársfjórðungi stafar að langmestu leiti af stöðutöku bankans gegn íslensku krónunni. Það er eðlilegt að bankar leiti allra leiða til að auka hagnað sinn, líkt og Olíusjóðir, en af hverju spyr enginn spurninga?

ÍBV umfram Columbus Crew

Það verða að teljast tíðindi þegar leikmaður á borð við Andy Mwesigwa ákveður að velja Vestmannaeyjar fremur en Columbus, Ohio til búsetu. Það er hugsanlega rétt að Columbus verði seint talið miðpunktur heimsins, en Vestmannaeyjar? Hverju var eiginlega logið að manninum?
Við Crew-aðdáendurnir hér í Bexley, glottum við tönn og óskum Andy góðrar skemmtunar í saltrokinu og rigningunni.

Hverfa inn í sig

Ég hef verið við nokkrar hjónavígslur um ævina en hef þú ekki enn upplifað prestinn í hlutverki trúðsins, eins og biskup sá ástæðu til að vara við nýverið. Síðasta sumar upplifði ég þann gleðilega atburð að ræða prestsins var meira en sæt orð til vígsluþega og upplestur á margnotuðum textum.


More…

Emergent/Postmodern

Það er alltaf gaman af könnunum um viðhorf manns. Stimplanir og flokkanir eru nauðsynlegur hluti af lífinu, eða hvað? Á quizfarm.com er könnunin What’s your theological worldview?


More…

Emergent/Postmodern

You scored as Emergent/Postmodern. You are Emergent/Postmodern in your theology. You feel alienated from older forms of church, you don’t think they connect to modern culture very well. No one knows the whole truth about God, and we have much to learn from each other, and so learning takes place in dialogue. Evangelism should take place in relationships rather than through crusades and altar-calls. People are interested in spirituality and want to ask questions, so the church should help them to do this.

Emergent/Postmodern – 86%
Roman Catholic – 75%
Neo orthodox – 75%
Evangelical Holiness/Wesleyan – 68%
Reformed Evangelical – 61%
Modern Liberal – 50%
Classical Liberal – 50%
Charismatic/Pentecostal – 39%
Fundamentalist – 11%

What’s your theological worldview?
created with QuizFarm.com

Myndaval á mbl.is

Það er merkileg myndin og myndatextinn með þessari grein á mbl.is í dag. Ég skil ekki af hverju sá sem valdi myndina og skrifaði textann endar ekki einfaldlega fréttina á orðunum “en þeir eru það víst, múslímar eru víst þröngsýnir, leiðinlegir og á móti mannréttindum”.

Djáknar með kosningarétt

Ég hef áður glaðst yfir breytingum á lögum og starfsreglum um kirkjuþing, m.a. hér og hér. Sú ánægja er óbreytt þrátt fyrir vonbrigðin með tilnefningarnar. Annað sem hlýtur að kalla á umræður og vangaveltur er að þrátt fyrir að 28 djáknar hafi verið vígðir til starfa hér á landi síðan 1995, eru aðeins 8 þeirra með kosningarétt í kosningum til Kirkjuþings, hugsanlega reyndar 9.


More…

Að deila ábyrgð

Það er sárt til þess að vita að tilnefningar leikmanna til Kirkjuþings að þessu sinni skyldu fara á þann veg sem raun ber vitni. Þannig virðist okkur æskulýðsfrömuðum kirkjunnar síðustu 15 árin algjörlega hafa mistekist að kalla ungt fólk til ábyrgðar á kirkjunni.


More…

Af hverju gefa?

Í Morgunblaðinu í dag er fjallað stuttlega um MA-ritgerð Marínar Þórsdóttur. En hún rannsakar í verkefni sínu m.a. “motivation” blóðgjafa. Rannsókn hennar og niðurstöður eru gífurlega mikilvægar fyrir allt góðgerðastarf. Það er gaman að heyra af spennandi og skemmtilegum verkefnum eins og þessu.

Tilnefningar til kirkjuþings

Það kom mér ekki á óvart, en olli mér samt vonbrigðum að einungis sé tilnefndur einn einstaklingur undir þrítugu í kjöri til leikmanna á kirkjuþingi. Sá er Halldór Magnússon, kt. 220677-4789, Engjavegi 26, Sveitarfélaginu Árborg, Selfosssókn.


More…