Archive for February 2006

 
 

Nýr dagur

Það verður ekki hjá því komist að benda lesendum á guðlastarana á Deiglunni.com. En umfjöllun Flugufótarins þeirra um stúdentsbróður minn úr Menntaskólanum, Dag B. Eggertsson, er hrein snilld [1, 2, 3].

Einstaklega óhæfir einstaklingar

Það er magnað að sjá lóðaklúðrið í Reykjavík. Ítrekað tekst Borgaryfirvöldum að klúðra úthlutun með lélegum vinnubrögðum. Í Morgunblaðinu talar Alfreð Þorsteinsson um að aðferðir Reykjavíkurborgar séu þó betri en Kópavogsbæjar, en er það endilega svo.
More…

Fyrirheitna landið

Glíma Spielberg við herleiðinguna, fyrirheitna landið, frelsarann, hatrið og ógnina er um margt mögnuð saga. Um leið held ég að hún sitji ekki lengi í mér. Það var eitthvað í framsetningunni sem var of snyrtilegt.


More…

Trú og gildi

Það er alltaf gaman að lesa Faith&Values-section-ið í The Columbus Dispatch, en það kemur með blaðinu á föstudögum. Síðasta föstudag var úttekt á afmælisbarni dagsins meginþemað en í dag eru það skopmyndirnar og The Creation Museum.


More…

Frjálslyndi flokkurinn alltaf spes

Fyrir Alþingi liggur fyrir frumvarp um enn eitt jákvætt skrefið í ferlinu að aðskilnaði ríkis og kirkju. En samkvæmt því er skipulagning og kjörgengi á Kirkjuþing ekki í höndum Alþingismanna heldur Kirkjuþings sjálfs. Þannig eru innri ákvarðanir kirkjunnar færðar til hennar en eru ekki viðfangsefni Alþingismanna. Skv. frétt á mbl.is skiluðu fulltrúar Frjálslyndaflokksins inn séráliti vegna þessa frumvarps um að þeir teldu að Alþingismenn ættu ekki að fjalla um innri mál kirkjunnar. Og … ætli þeir hafi ekki skilið að um það snýst frumvarpið.

Kúgaðar skoðanir

Í nóvember 2004 var ég á málþingi í Grikklandi um samskipti milli trúarhópa. Málþingið var um margt spennandi og skemmtilegt en um leið reyndi margt á. Eitt af því sem hefur alltaf setið í mér, var “session” þar sem fimm einstaklingar úr hópnum voru fengnir til að velta upp nokkrum spurningum um stöðuna í Evrópu og af einhverjum ástæðum var ég valinn til þátttöku. Umræðan fór vítt og breitt og ég fann að oft átti ég litla samleið með hinum fulltrúunum. Þegar kom að spurningu um hverjar væru helstu hætturnar í Evrópu á næstu árum, komu fjölbreytt svör.


More…

Eldri sonurinn

En eldri sonur hans var á akri. Þegar hann kom og nálgaðist húsið, heyrði hann hljóðfæraslátt og dans. Hann kallaði á einn piltanna og spurði, hvað um væri að vera.
Hann svaraði: Bróðir þinn er kominn, og faðir þinn hefur slátrað alikálfinum, af því að hann heimti hann heilan heim.
Þá reiddist hann og vildi ekki fara inn. En faðir hans fór út og bað hann koma.
En hann svaraði föður sínum: Nú er ég búinn að þjóna þér öll þessi ár og hef aldrei breytt út af boðum þínum, og mér hefur þú aldrei gefið kiðling, að ég gæti glatt mig með vinum mínum.
En þegar hann kemur, þessi sonur þinn, sem hefur sóað eigum þínum með skækjum, þá slátrar þú alikálfinum fyrir hann.
Hann sagði þá við hann: Barnið mitt, þú ert alltaf hjá mér, og allt mitt er þitt. En nú varð að halda hátíð og fagna, því hann bróðir þinn, sem var dauður, er lifnaður aftur, hann var týndur og er fundinn.

More…

Erfðasyndin í Evróvision

Það er skemmtilegt að fylgjast með Evróvision-hneykslinu í kringum Silvíu, en annar höfunda hennar sagði að við hönnun persónunnar hafi þau litið til þeirra eiginda í lífi manneskju sem eru neikvæðar og slæmar og skapað Silvíu út frá því. Þannig er sjálfhverfan í laginu sem deilt er um og sú staðreynd að laginu var lekið hluti af persónusköpuninni. Sjálfhverfan samþykkir ekki önnur lög en þau sem hentar hverju sinni. Þannig hefði verið anti-climax fyrir Silvíu að leita ekki leiða til að sveigja keppnina að sínum þörfum.

More…

Munkurinn

Ég og Anna Laufey gengum í fyrradag í gegnum Campus-inn hjá Capital University. Á miðju háskólasvæðinu er stytta af munki með Biblíu í hendi (líklega Lúther). Anna Laufey spurði hvernig maður þetta væri og ég útskýrði að munkar væru menn sem tæku ákvörðun um að giftast aldrei, en tileinkuðu líf sitt því að biðja, lesa í Bibliunni og segja öðrum frá Guði.

More…