Archive for October 2005

 
 

Nýtt landslag fyrir starfsfólk kirkjunnar

Starfsréttindi og kjör annarra stétta en presta hefur löngum verið vandamál í þjóðkirkjunni. Þannig hafa organistar, djáknar, kirkjuverðir og æskulýðsleiðtogar, svo einhverjir séu nefndir, þurft að berjast fyrir launum sínum hver í sinni sókn. Af þessum sökum hefur staða og starfsöryggi viðkomandi starfsmanna verið lítið.
More…

Djáknar á kirkjuþing

Eitt af stóru málunum á Kirkjuþingi var um breytingar á starfsháttum þingsins. Fjölgað er á þinginu og auk þess er nú búið að opna fyrir setu djákna á Kirkjuþingi. Þetta er einhvert mikilvægasta skrefið sem stigið hefur verið til að viðurkenna stöðu djákna innan kirkjunnar.

Þjónandi prestar og djáknar hvers kjördæmis, kjósa úr sínum hópi einn kirkjuþingsmann fyrir kjördæmið og tvo til vara. Í 1., 2. og 3. kjördæmi skal þó kjósa tvo vígða menn og tvo til vara. Prestur sem settur er til þjónustu nýtur ekki kosningarréttar. Þó skal prestur sem settur er í embætti, þar sem ekki er skipaður prestur fyrir, hafa kosningarrétt í því kjördæmi sem hann þjónar í. Prestur, sem sinnir aukaþjónustu, getur ekki greitt atkvæði fyrir það embætti. Prestur í launalausu leyfi eitt ár eða lengur, nýtur ekki kosningarréttar.

Prédikunin í kirkjum landsins

Það eru fleiri áhugaverðir punktar í ræðu biskups en ég nefndi í síðustu færslu:

Dægurmálaumræðan er oft fyrirferðamikil á prédikunarstólunum, með smá skvettu af kristilegu kærleikshjali í bland. En ef okkur tekst ekki að lyfta upp nafni, mætti og dýrð frelsarans Krists í orði og verki, þá höfum við í raun ekki annað fram að færa en það sem heimurinn nú þegar veit, þá erum við aðeins bergmál angurs eða umhyggju, reiði eða vona mannshjartans. Það er út af fyrir sig góðra gjalda vert, en Kristur dó ekki og reis af gröf til þess.

Við þetta er engu að bæta!

Að gefa sig að fátækum og þurfandi

Ræða Biskups í upphafi Kirkjuþings er spennandi og vel samin. Sérstaklega fannst mér áhugaverð tilvísun hans til greinar í The Guardian.

Hattersley bendir á að nærfellt allir þeir sem standa að þess háttar hjálparstarfi séu á vegum trúarsafnaða eða kirkjustofnana. Og hann bætir við, „áberandi er að hvergi sjást hjálparteymi vantrúarfélaga, fríhyggjusamtaka, guðleysingjaflokka, – þess háttar fólks sem ekki einasta gerir lítið úr þeim sannindum sem trúarbrögðin standa fyrir, heldur telur þau standa gegn framförum og jafnvel vera undirrót ills.


More…

Hvað er á seyði hjá Flugleiðum? – II

Í maí 2004 velti ég fyrir mér hvað væri á seyði hjá Flugleiðum og ljóst að margt hefur gerst síðan það var skrifað. Í dag birtust í fjölmiðlum fréttir af hugsanlegum “samruna” Sterling og Icelandair, en slíkt myndi gerast með kaupum FL-Group á hlut Fons-félaga í Sterling.


More…

Fjölskyldufréttir

Eins og nútímavæddri fjölskyldu sæmir höfum við hjónin opnað heimasvæði með myndum og reglulegum fréttum af lífi okkar. Þetta raunveruleikasjónvarp okkar er ætlað að auðvelda upplýsingaflæði til þeirra fjölmörgu sem telja sig þurfa að vita hvað á daga okkar drífur. Vefslóð fjölskyldufréttanna er: hrafnar.net.
Annáll Ella verður þó áfram vettvangur fyrir skoðanir mínar, þanka og upplýsingar um áhugaverða hluti.

Harun Yahya

Tvær áhugaverðar síður tengdar Islam sem gaman gæti verið að skoða eru http://www.perishednations.com og ekki síður http://www.harunyahya.com. Síðurnar eru báðar tengdar “pop”-kennimanninum Harun Yahya.

Andaglas

Á fermingarnámskeiðum í Vatnaskógi kemur reglulega upp þörf hjá unglingsstelpum að fara í andaglas. Spurningunni um andaglas er svarað yfirvegað og vel á Vísindavefnum. Þar er leitt að því líkum að það séu aðgerðir einstaklinganna sjálfra sem kalla fram svörin og vísað í rannsóknir þess efnis. Ekki skal ég efast um það. Hins vegar er áhugavert að velta fyrir sér hvað það þýðir í raun þegar unglingar kalla fram óhugnanleg svör í þessum leik, í flestum tilvikum ómeðvitað.
Ef einhverjir hafa áhuga á að kynna sér andaglasið, er hægt að fara í eitt slíkt hér.