Archive for September 2005
Vegna þeirra blaðaskrifa sem átt hafa sér stað síðustu daga, sér í lagi viðbrögð yfirmanns Haga og bréf Gunnar Inga læknis í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu tók ég þá ákvörðun í gær að gerast á ný áskrifandi að Morgunblaðinu. Enda er með ólíkindum að eigendur og yfirmenn eins stærsta fyrirtækis á landinu skuli voga sér að heimta fund um fréttastefnu fjölmiðils.
September 30th, 2005 | Íslenska | Tags: | Comments Off
Í gær mánudaginn 19. september kl. 12:53 fæddist sonur á Landspítalanum. Hann mældist eftir fæðingu 3785 gr. eða rétt rúmar 15 merkur og 52 sm langur. Móður og barni heilsast vel, systur og pabba líka. Hægt er að skoða myndir af drengnum á vefnum, slóðin er www.hrafnar.net/vefkerfi/gallery/birthday.
September 20th, 2005 | Íslenska | Tags: | Comments Off
Ég var að glugga í blogg hjá nemendum í Trinity Lutheran Seminary, enda ekki verri leið að kynnast umhverfinu eftir jól en hvað annað. Þar rakst ég á þessa setningu:
And Binau would probably move beyond that by saying something about how we should not look at things as “right and wrong,” but whether the things are “helpful or unhelpful.” That in interpreted, again, through CONTEXT (our favorite word!).
September 19th, 2005 | Íslenska | Tags: religion | Comments Off
Dóttir mín var að byrja í skóla nú í haust. Skólinn gengur vel og henni finnst svaka gaman, það er hins vegar gífurleg breyting fyrir foreldrana.
More…
September 17th, 2005 | Íslenska | Tags: family, kfum/k | Comments Off
Sumir bloggarar reyna að slá sig til riddara með vantrúarrausi um Steve Jobs og snilligáfu hans, það er sama hversu fegurðin er mikil sumir trúa ekki. Fyrir okkur hin þá verð ég að benda á Widgets sem er hluti af nýja Tiger-stýrikerfinu, Dashboard-ið og smádótið sem má setja á það er einfaldlega snilld.
September 10th, 2005 | Íslenska | Tags: atheists | Comments Off
Í grein eftir Justin Dennisson úr Renewal í apríl 1989 bendir hann á að karlmenn vilji fremur hittast í trúarumræðum í karlaklúbbum, heldur en í umhverfi þar sem konur eru líka. Þetta er áhugaverð “staðreynd” þegar við höfum í huga kynjaþátttöku í trúarhópum á Íslandi.
September 5th, 2005 | Íslenska | Tags: church | Comments Off