Archive for January 2005

 
 

Til umhugsunar

Mér varð hugsað til þess áðan á fyrirlestri, hvort neðangreind setning væri rétt:

Það hvað þú lætur ofan í þig, segir til um hversu mikla [breytt] virðingu þú berð fyrir sjálfum þér.

Líkklæði Krists

Fyrir 6 árum fór ég með konunni minni í frábæra interrail-ferð um Evrópu, um Ítalíu, Austurríki, Sviss, Þýskaland og Danmörku [leiðr]. Við keyptum handunninn glös í Feneyjum og sáum merkilega sýningu í Zurich þar sem mismunandi skreyttar kýr léku aðalhlutverkið.
Í upphafi ferðarinnar fórum við hins vegar til Torino og skoðuðum líkklæði Krists í Dómkirkjunni þar. Á þeim tíma trúði ekki einu sinni páfinn að þau væru ekta.

Gleðidagur fyrir konuna – ekki mig

Jenný bað mig í dag að setja upp TeXShop á iBook-ina mína svo hún gæti skoðað TeX á mac-a. Ég var búinn að setja upp R, svo að nú er allt eins víst að ég fái fartölvuna mína aldrei aftur.

Ótrúleg umræða

Nú liggur það fyrir að Birgir vantrúarsinni byggir hugmyndir sínar um sköpunarsöguna á þeirri boðun sem enn er lifandi í huga hans úr sunnudagaskóla. Þannig fullyrðir hann að kirkjan hafi um allar aldir túlkað sköpunarsögu 1. Mósebókar bókstaflega, því þannig nálgaðist að hans mati sr. Árni Pálsson sögurnar í samtali við börn í kringum 1970. Hann reyndar gengur lengra. Hann yfirfærir minningar sínar úr sunnudagaskóla yfir alla presta á 20. öld og fullyrðir að þeir hafi verið sköpunarsinnar.
More…

Af hverju lét Guð koma flóð?

Dóttir mín spurði rétt í þessu, undir myndum af flóðinu í Asíu.

Af hverju lét Guð flóðið koma, trúði fólkið ekki á hann?


More…

Hvers kyns stýrikerfi ertu?

Það er alltaf gaman að svara internet-könnunum sem eru gagnslausar. Núna veit ég að ég er:

You are Palm OS. Punctual, straightforward and very useful. Your mother wants you to do more with your life like your cousin Wince, but you're happy with who you are.

Hvernig vita þessir menn, svona mikið um mann eftir að ég hef svarað 20 spurningum?

Glíman við viðskiptasiðferði

Ég tók ákveðið til orða í máli mínu um ráðstefnu Glímunnar og fleiri um viðskiptasiðferði. Ég gaf mér tíma í gærkvöldi til að lesa innlegg Halldórs Reynissonar og Gylfa Magnússonar. Þriðja innleggið eftir Þröst Ólaf Sigurjónsson er hins vegar ekki þess virði að vísað sé á það á annálnum mínum.


More…

Fegurðin í hlutunum

Stundum er eins og allar fréttir séu slæmar, pirringurinn ræður ríkjum á annálnum mínum og það er ekkert gaman. En þá skyndilega birtist fegurðin og snilldin í sinni skírustu mynd. Hvernig er hægt að vera leiður þegar svona hlutir birtast.

Annars, jú, það er auðvitað sorglegt að enn skuli vera til fólk sem vafrar um í vantrú og efa og missir af fegurðinni.

Much ado about nothing

Ég var að setjast niður í vinnunni, nýkomin af morgunverðarfundi á Grand Hótel um siðferði í íslensku viðskiptalífi. Glíman, SA og Verslunarráð héldu fundinn og ég hafði væntingar um spennandi þanka.


More…

Áhugavert fjölmenningarverkefni

Ég fékk í tölvupóstinn minn rétt í þessu vísun á áhugavert fjölmenningarverkefni. Ég þarf einhvern daginn að finna mér tíma til að skoða það nánar.