Archive for November 2004
Vikuna 15.-22. nóvember stóð EYCE að námskeiði um samræður milli menningarsvæða og trúarhópa. Í lok námskeiðsins samþykktu allir 34 þátttakendur námskeiðsins samhljóða sjö grundvallarreglur til notkunar í samræðum milli trúarhópa. En reglurnar voru þróaðar og prófaðar á námskeiðinu. Samþykktin er eins og hér segir:
More…
November 28th, 2004 | Íslenska | Tags: religion | Comments Off
Á námskeiði EYCE, FEMYSO og SYNDESMOS í síðustu viku var viðfangsefnið Inter-religious Dialogue – avoid conflicts. Eitt af því sem var rætt var eðli samræðna (e. dialogue) og hvernig samræður væru í eðli sínu ólíkar einræðum, rökræðum, frásögu eða spjalli.
More…
November 27th, 2004 | Íslenska | Tags: religion | Comments Off
Eins og fram kemur fyrr hef ég fengið inni í meistaranám í Leikmannafræðum við Trinity Lutheran Seminary í Columbus, Ohio. Ég hef verið spurður í hverju námið felist og hyggst leitast við að svara því hér.
More…
November 24th, 2004 | Íslenska | Tags: my studies | Comments Off
Þegar ég kom til Íslands í nótt biðu mín margvíslegar góðar fréttir. Þar má nefna að ég er uppáhalds-tengdabarnabarn Jennýjar Karlsdóttur. Ég, fyrir hönd Skógarmanna KFUM hef fengið fjármagn til að ljúka gerð fermingarfræðsluefnis um Hallgrím Pétursson og Guðrún systir hefur fengið styrk til áframhaldandi rannsókna á tónlistararfi Íslendinga.
Það er þó ekki það eina. Í gær fékk ég svohljóðandi bréf í pósti:
More…
November 23rd, 2004 | Íslenska | Tags: kfum/k, my studies | Comments Off
Ég minni á það að forseti Íslands neitaði að skrifa undir lög sem áttu að takmarka eignarhald auðmanna á fjölmiðlum og koma í veg fyrir samþjöppun á fjölmiðlamarkaði. Þróun sem við höfum séð nú síðustu vikur. Þessi sami forseti skrifaði í gær undir lög sem banna ákveðinni stétt manna að berjast fyrir réttindum sínum.
Það er merkilegt að réttindi auðmanna til samþjöppunar valds er meira virði í augum forsetans en réttindabarátta kennara.
November 14th, 2004 | Íslenska | Tags: politics | Comments Off
Nú styttist óðfluga í að ég, Hansi og Magga höldum til klaustursins Panagia Soumela í nágrenni Vería í Grikklandi. Þar munum við taka þátt í spennandi samræðum undir yfirskriftinni, “Intercultural and inter-religious Dialogue avoid conflicts.
More…
November 13th, 2004 | Íslenska | Tags: religion | Comments Off

Ég tók nokkrar myndir á Óttamarkakeppni ÆSKR í kvöld. Þessi er líklega hvað skemmtilegust.
November 8th, 2004 | Íslenska | Tags: church | Comments Off
Þar sem kjörstöðvum lokaði ekki fyrr en um 3 klst á eftir áætlun í Columbus, Ohio og her lögfræðinga á þeim bæ tók að sér að efast um fjölda nýskráðra kjósenda, liggur fyrir að lokaniðurstöður kosninganna í BNA liggja ekki fyrir fyrr en eftir 7-11 daga.
More…
November 3rd, 2004 | Íslenska | Tags: politics | Comments Off
Á síðu msnbc.com má sjá útgönguspár einstakra ríkja, m.a. Ohio. Hér má m.a. sjá athugun á því hvernig fólk skilgreinir trú sína og það borið saman við hvorn frambjóðandann fólk kýs.
More…
November 3rd, 2004 | Íslenska | Tags: church, politics | Comments Off
Ætlaði að taka forskot á Dan Rather og horfa á kosningasjónvarp Stöðvar 2 þar til hann tæki við á RÚV. Gafst upp eftir 10 mínútur.
More…
November 2nd, 2004 | Íslenska | Tags: politics | Comments Off