Frelsuð!
Ég og Jenný fórum á Frelsuð (Saved) í gær enda hafði Árni Svanur mælt með henni. Myndin stóð fullkomlega undir þeim væntingum sem ég hafði gert mér til hennar.
More…
Ég og Jenný fórum á Frelsuð (Saved) í gær enda hafði Árni Svanur mælt með henni. Myndin stóð fullkomlega undir þeim væntingum sem ég hafði gert mér til hennar.
More…

Í gær gerði ég mér ferð út á Hvalsnes til að mynda legstein Steinunnar Hallgrímsdóttur. En glíma föður hennar við sorgina er eitt af temunum í nýju fermingarfræðsluefni fyrir fermingarnámskeið í Vatnaskógi.
Oft hefur verið tekist hér á annálum og í ummælum um mismunandi nálganir á veruleikanum. Ég og dóttir mín 5 ára ræddum í dag um Menningarnótt. Hún sagði mér það að henni hefði þótt leiðinlegt. Þegar ég ynnti hana eftir ástæðunni, var svarið skýrt og klárt: “Ég sá ekkert nema fætur og rassa”.
Stundum eyðir maður löngum tíma í verkefni sem manni finnst lítilvæg og vart þess virði. Eitt þeirra var að fá leyfi fyrir flugeldasýningu á Sæludögum í Vatnaskógi 2003.
More…
Hvernig útskýra Íslendingar fyrir sjálfum sér og öðrum, þegar 1/3 þjóðarinnar stendur niður við höfn og syngur í kór, í rokkaðri pönkstemmningu: Þið munuð öll, þið munuð öll DEYJA!
Þarfnast þetta annars ekki einhverrar útskýringar?
Að þessu sinni er dagskrá menningarnætur á netinu á gagnvirku korti eða á pdf-formi. Hugmyndin um gagnvirka kortið er skemmtileg en hins vegar er okkur með lélegu ADSL-tengingarnar lítill greiði gerður.
More…
Í kvöld eldaði ég með aðstoð sjö fermingarbarna og eins prests máltíð fyrir 94 einstaklinga sem síðan tóku þátt í guðsþjónustu hér í Grensáskirkju.
More…
Það hringdi kona í vinnuna til mín fyrir hádegi. Hún vildi að ég útskýrði af hverju barnið hennar ætti að fara á Biblíusögunámskeið þegar það gæti farið á siðfræðinámskeið í vetur sem biði upp á virka þátttöku, umræður og þroskandi kennslu. Mér þótti spurningin góð.
More…
Ég rakst á flakki mínu um netið á http://www.opensourcetheology.net. Þarna sýnist mér á öllu að glímt sé við alternative helgihald og leitast við að nálga kirkjuna þeim raunveruleika sem ríkir í post-religious heimi. Þ.e. þeim heimi sem Nick Hornby skrifar um, Robbie Williams syngur um og Bono boðar.
Stundum er maður ögn of sjálfhverfur. Mér flaug í hug færsla eftir sjálfan mig á trúmálaþráðum striksins fyrir nokkrum árum (lítillega breytt):
More…